Fréttir

true

Vilja Þjóðgarðsmiðstöð á Hvanneyri

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi nýverið til umsagnar sveitarfélaga frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti að senda umsögn þar sem meðal annars segir að með stofnun miðhálendisþjóðgarðs myndi stærð og umfang þjóðgarða á Íslandi aukast gríðarlega til viðbótar. „Í því samhengi hefur verið rædd nauðsyn þess að setja á stofn Þjóðgarðastofnun…Lesa meira

true

Unnið að bættu útivistarsvæði við Langasand

Nú í vor lét Akraneskaupstaður setja upp tíu bekki með jöfnu millibili við göngustíginn meðfram Langasandi, frá Dvalarheimilinu Höfða að Faxabraut. Nú geta íbúar á Höfða því notið þess að ganga meðfram Langasandi og tyllt sér á bekkina til að hvíla sig á leiðinni. Að sögn Sindra Birgissonar, umhverfisstjóra hjá Akraneskaupstað, er það vilji bæjarins…Lesa meira

true

Fjallar um sitthvað sem snertir Grund á Akranesi

„Það er meiri íþrótt að kunna að lesa hús, en að geta lesið bækur,“ sagði Þorbergur Þórðarson rithöfundur og bætti við: „Húsið er sannleikurinn um líf kynslóðanna.“ Húsin á Skipaskaga, eins og í öðrum útgerðarplássum, voru fyrr á árum reist sem næst sjónum þar sem bátar ábúenda biðu í vör og stutt var í sjávargötuna.…Lesa meira

true

Reykköfunaræfing Slökkviliðs Borgarbyggðar haldin á víðavangi

Slökkviliðið í Borgarbyggð hélt síðasta þriðjudagskvöld óvenjulega reykköfunaræfingu að því leiti að æfingin fór fram úti og þátttakendur voru látnir ganga um blindandi í fullum skrúða með reykköfunarbúnað og poka yfir höfði. „Við höfum yfirleitt gert þesskonar æfingar í aðstöðu sem við höfum í gamla vatnstankinum úti í Brákarey sem er ein besta æfingaaðstaða fyrir…Lesa meira

true

Mjög víða góður fiskur

Strandveiðar hófust í ellefta sinn fimmtudaginn 2. maí síðastliðinn og standa yfir út ágústmánuð. Strandveiðunum fylgir jafnan líf og fjör við hafnir landsins. Sú var sannarlega raunin á Akranesi þegar bátarnir lögðust að bryggju síðdegis með full kör af boltafiski. „Ég fékk þennan hérna úti í Faxaflóa, bara norður af Baulurifinu,“ segir Frímann Jónsson á…Lesa meira

true

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit í nótt

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit og í Kjós frá miðnætti í kvöld til klukkan sjö í fyrramálið vegna vinnu í aðveitustöð Rarik á Brennimel á Hvalfjarðarströnd. Vegagerðin hyggst nýta tækifærið og sinna vinnu í Hvalfjarðargöngum á meðan. Fylgdarakstur verður um göngin. Á vef Vegagerðarinnar segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að ökumenn aki varlega í…Lesa meira

true

Vígsluhátíð nýrrar Frístundamiðstöðvar á laugardaginn

Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir bjóða bæjarbúum og gestum til opnunar á nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll laugardaginn 11. maí. Dagskráin stendur yfir frá kl. 12:00 – 15:00. Á dagskrá er formleg vígsla hússins og ræðuhöld kl. 13:00. Opið hús verður fyrir gesti og gangandi til kl. 15:00 með kaffiveitingum. Þá verður kynning á golfi fyrir byrjendur…Lesa meira

true

Ný lög um ófrjósemisaðgerðir

Frumvarp heilbrigðisráðherra til laga um ófrjósemisaðgerðir hefur verið samþykkt á Alþingi. Með lögunum er skýrt kveðið á um rétt fólks til ófrjósemisaðgerða, að þær skuli vera gjaldfrjálsar og framkvæmdar af þeim sem hafa tilskilda menntun og reynslu. Frumvarpið var lagt fram sem hluti af heildarendurskoðun laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og…Lesa meira

true

Stór hreinsunardagur á Akranesi í gær

Umhverfis- og hreinsunarvika hófst á Akranesi í gær með vorhreinsun aðildarfélaga ÍA. Komið var saman við íþróttahús bæjarins, börn og fullorðnir fengu poka og hanska og svæðum innan bæjarins skipt milli hópanna. Að lokinni hreinsun var frítt í sund fyrir alla plokkara og boðið upp á kakó og kleinur. Skessuhorn fylgdist með hreinsunarstarfinu og mátti…Lesa meira

true

Hvetja foreldra til að bólusetja

Á fundi fræðslunefndar Dalabyggðar 29. apríl síðastliðinn lagði Þuríður Jóney Sigurðardóttir fram tillögu um að frá og með næsta hausti verði staðfesting á að barn hafi verið bólusett, samkvæmd skipulagi sem sóttvarnarlæknir leggur fram, gert að skilyrði fyrir dagvistun í leikskóladeild Auðarskóla. „Fræðslunefnd er sammála um mikilvægi bólusetninga. Leggja þarf áherslu á fræðslu um mikilvægi…Lesa meira