Fréttir

true

Nýja Frístundamiðstöðin við Garðavöll vígð í gær

Akraneskaupstaður og Golfklúbburinn Leynir buðu bæjarbúum og gestum til formlegrar opnunar á nýrri Frístundamiðstöð við Garðavöll í gær. Frístundamiðstöðin er þúsund fermetrar að flatarmáli, fjölnota hús sem í senn verður klúbb- og félagsaðstaða golfklúbbsins Leynis með æfingaaðstöðu í kjallara, fundaaðstöðu og veitingastaðnum Galitó bistro café, en auk þess allt að tvö hundruð manna veislusalur til…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti í Brákarey á árlega stórsýningu

Sýning Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Bifhjólafjelagsins Raftanna var haldin í Brákarey í gær. Félögin tvö hafa staðið að þessari sýningu í sameiningu undanfarin ár en Raftar héldu sína fyrstu sýningu 2001. Gríðarlegur fjöldi fólk á öllum aldri lagði leið sína í eyjuna og fjölmargir sem komu akandi á eðaltækjum, mótorhjólum eða eldri bílum. Komu gestir m.a.…Lesa meira

true

Skemmdir unnar á Hnausavita

Lögreglan á Vesturlandi hefur óskað eftir upplýsingum frá almenningi um mögulegar mannaferðir dagana 26. apríl til 3. maí, en þá voru unnar skemmdir á Grundarfjarðarvita (einnig nefndur Hnausaviti) að Búðum, við norðanvert Kirkjufell. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu Grundarfjarðarbæjar. „Hafi fólk orðið vart við mannaferðir á eða við það svæði, eða búi yfir ábendingum…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu Val á Hlíðarenda

ÍA og Valur áttust við í þriðju umferð Pepsí Max deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Spilað var á gervigrasinu á Hlíðarenda og voru aðstæður býsna góðar; sól, heiðskýrt, lítilsháttar gola en fremur kalt. Fyrirfram hafði verið búist við að leikurinn yrði brekka fyrir Skagamenn, en sú varð ekki raunin. 2-1 sigur var staðreynd og um…Lesa meira

true

Vinna við mótun nýrrar heildarsýnar í menntamálum á Akranesi

Vinnu við framtíðaráherslur í menntamálum Akraneskaupstaðar var ýtt úr vör í vetur, en einn liður í því var samtal bæjaryfirvalda við menntamálaráðherra. „Þessi vinna sem komin er af stað snýr að því að móta heildarsýn á menntun í bæjarfélaginu til frambúðar. Við viljum eiga samtal við fagfólk, bæjarbúa og við menntamálaráðuneytið varðandi menntamál og áherslur…Lesa meira

true

Selja merki til stuðnings Píeta samtökunum

ToyRun eru góðgerðarsamtök mótorhjólamanna sem hjóluðu um landið síðastlið sumar í þeim tilgangi að kynna Pieta samtökin og safna fé til reksturs Píeta húss með því að selja merki sem félagar hönnuðu sjálfir. Félagar úr ToyRun verða á morgun staddir á Bíla- og hjólasýningunni í Brákarey í Borgarnesi og munu þar selja merki til styrktar…Lesa meira

true

Tónleikaröð til styrktar Hallgrímskirkju í Saurbæ

Fyrir ekki svo löngu voru stofnuð Hollvinasamtök fyrir Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd með það að markmiði að blása lífi í staðinn. Farið er að sjá á húsakosti að sögn Jóseps Gíslasonar sem er frukvöðull að stofnun félagsins. „Ég var þarna í fyrrasumar að hreinsa steina og legsteina á gröfum ættingja og tók eftir því…Lesa meira

true

Gunnhildur og Hlynur valin í úrvalsliðin

Lokahóf KKÍ var haldið í hádeginu í dag var tilkynnt um val á bestu leikmönnum ársins í Domino‘s deildum karla og kvenna. Vestlendingar eiga þar tvo fulltrúa, því Gunnhildur Gunnarsdóttir og Hlynir Bæringsson voru bæði valin úr úrvalslið vetrarins. Úrvalslið Domino‘s deildar kvenna er þannig skipað: Gunnhildur Gunnarsdóttir úr Snæfelli, Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum,…Lesa meira

true

Stórt tap hjá Skallagrími

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Álftnesingum í annarri umferð 3. deildar karla í fótbolta á í gærkvöldi. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli og var vel mætt í brekkuna. Borgnesingar byrjuðu leikinn betur og voru áræðnir við mark Álftnesinga strax frá upphafi. Dæmd var rangstaða á heimamenn snemma í hálfleiknum þegar þeir héldu…Lesa meira

true

Vilja fækka héraðsvegum í Borgarbyggð

Á fundi byggðarráð Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram bréf Vegagerðarinnar þar sem tilkynnt er um niðurfellingu nokkurra héraðsvega af vegaskrá. Við niðurfellingu slíkra vega leggst af viðhald þeirra á þeirri forsendu að um fasta búsetu er ekki lengur að ræða á bæjum sem þeir tengja við þjóðvegakerfið. Um er að ræða eftirfarandi vegi:…Lesa meira