Fréttir

true

Snæfell í úrslit Lengjubikarsins

Snæfell sigraði Björninn í undanúrslitum C deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Akraneshöllinni og fengu áhorfendur heldur betur fjörugan leik því sex mörk litu dagsins ljós og eitt rautt spjald fór á loft. Snæfellingar fengu óskabyrjun þegar Eivinas Zagurskas kom Stykkishólmsliðinu yfir á 9. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í…Lesa meira

true

N4 sækir um styrki

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur að undanförnu sent styrkbeiðnir til vestlenskra sveitarfélaga vegna sjónvarpsþáttagerðar í landshlutanum. Akraneskaupstaður ákvað nýverið að styrkja stöðina um hálfa milljón króna. Sambærilegt erindi, sem sent var Borgarbyggð, var afgreitt á fundi byggðarráðs í liðinni viku, með þeim hætti að vísa umsókninni til umfjöllunar í atvinnu,- markaðs- og menningarnefnd sem leggja…Lesa meira

true

Byggja raðhús á Reykhólum

Í fundargerð sveitarstjórnar Reykhólahrepps frá 9. apríl síðastliðnum segir að fallið hafi verið frá þeim áformum að bjóða í alútboði út byggingu íbúða við Hólatröð á Reykhólum en semja þess í stað við Hrafnshóla ehf. um verkið. Sveitarstjóra var falið að semja við Hrafnshóla um byggingu raðhússins. Verður miðhús byggingar minnkað og kostnaður lækkaður sem…Lesa meira

true

Hvað verður um mig?

Á morgun, mánudaginn 29. apríl, fer ráðstefnan „Hvað verður um mig“ fram kl. 15-17:30 í húsi Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Ráðstefnunni verður einnig streymt beint á heimasíðu Krabbameinsfélagsins. Á málþinginu fjalla fyrirlesarar um stöðu barna sem missa foreldri. Fjallað er um málið frá ýmsum hliðum, en í fyrsta sinn hafa verið teknar…Lesa meira

true

Umferð hleypt á nýtt hringtorg

Nú fyrir helgi var umferð hleypt á þrjár aðkomuleiðir af fjórum á endurgerðu Kalmanstorgi á Akranesi, en það er hringtorgið á mótum Esjubrautar, Kalmansbrautar og Akranesvegar. Þó er eftir að ljúka við frágang á mönum og gönguleiðum að torginu. Torg þetta var í daglegu tali kallað spæleggið, en hefur nú breytt um útlit svo spurning…Lesa meira

true

Fjölmenn hópslysaæfing fyrir viðbragðsaðila á Vesturlandi

Í gær var umfangsmikil hópslysaæfing viðbragðsaðila á Vesturlandi haldin á Snæfellsnesvegi á móts við Kaldármela. Undirbúningur að æfingunni hefur staðið í nokkra mánuði en þátt í henni tóku lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið, sjúkraflutningafólk, Landhelgisgæslan og félagar í Rauða kross deildum. Komið var upp slysavettvangi þar sem bæði hópferðabíll og fólksbílar höfðu lent í árekstri. Voru eldar…Lesa meira

true

Skagamenn með verðskuldaðan sigur í fyrsta leik

Leik ÍA og KA var rétt í þessu að ljúka á Akranesvelli með 3-1 sigri ÍA. Þetta er fyrsti leikur beggja liða í Pepsí Max deildinni í sumar. Heimamenn sóttu mun meira allan leikinn og gáfu gestunum fá tækifæri. Það var því í takti við gang leiksins að Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði fyrsta markið á…Lesa meira

true

Glæsileg sýningaratriði á Skeifudeginum

Skeifudagurinn, uppskeruhátíð hestakennsku á Hvanneyri, var haldinn venju samkvæmt á sumardaginn fyrsta. Dagskráin hófst eftir hádegi á Mið-Fossum með fánareið og setti Álfheiður Marinósdóttir kennslustjóri dagskrána. Borgfirzk börn undir stjórn Þórdísar Fjeldsted sýndu atriði og á eftir fylgdi kynning á frumtamningartryppum nemenda. Sýningaratriði frá Töltgrúbbu Vesturlands undir stjórn Ragnheiðar Samúelsdóttur kom svo í salinn og…Lesa meira

true

Gestastofa fyrir friðland fugla opnuð á Hvanneyri

Síðastliðinn miðvikudag var Gestastofa fyrir friðland fugla í Andakíl opnuð í gömlu fjóshlöðunni við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri. Um er að ræða fyrsta áfanga gestastofunnar, en drög að næstu áföngum verkefnisins voru lögð með ráðningu Brynju Davíðsdóttur sem sinna mun ráðgjöf við næstu skref við uppbyggingu gestastofunnar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra opnaði sýninguna formlega og…Lesa meira

true

Brúin komin á Berjadalsána

Félagar í Rótarýklúbbi Akraness fóru venju samkvæmt upp í Berjadal í Akrafjalli á sumardaginn fyrsta og settu göngubrúna á Berjadalsá. Eins og vani er verður brúin látin standa í sumar en verður tekin niður í haust, áður en veður tekur að versna. Brúin er í tveimur hlutum og sett saman á staðnum. Brúarvinnuflokkur Rótarýklúbbsins naut…Lesa meira