Fréttir

true

Valdís Þóra líklega úr leik í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, náði sér ekki á strik á öðrum hring Lalla Meryem Cup mótsins sem hófst í Marokkó í gær. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Valdís lék fyrsta hring mótsins í gær á 76 höggum, eða þremur yfir pari vallarins. Hringinn í dag lék hún á 77 höggum, eða…Lesa meira

true

Lagersala ársins og ný vefverslun á kb.is

Í kvöld, föstudaginn 26. apríl frá klukkan 20 til 22, býður Kaupfélag Borgfirðinga félagsmönnum og öðrum viðskiptavinum til ánægjulegrar kvöldstundar, lagersölu ársins. Margrét Katrín Guðnadóttir verslunarstjóri lofar frábærum tilboðum og stemmara í sumarbyrjun. Á lagersölunni verður 50-70% afsláttur af ýmsum vörum en auk þess 15-20% tilboð á gæludýrafóðri, leikföngum, vinnufatnaði, hestavörum og sauðburðarvörum. Nýlega var…Lesa meira

true

Jörfagleði stendur nú yfir í Dölum

Jörfagleði, menningarhátíð Dalamanna hófst að kvöldi síðasta vetrardags með sýningu Leikfélags Hólmavíkur á Nönnu systur. Dagskráin hélt síðan áfram og í gær var m.a. skátamessa haldin í Hjarðarholtskirkju, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin framan við kirkjuna. Í dag og næstu daga heldur síðan dagskráin áfram m.a. með sýningu og stuttmynd í Auðarskóla, vinnusmiðja fer…Lesa meira

true

Skagamenn taka á móti KA í fyrsta leik sumarsins

ÍA fagnaði sigri í 1. deild karla á síðasta ári og leikur því í deild þeirra bestu í sumar, Pepsi Max deildinni sem nú heitir. Skagamenn leika sinn fyrsta leik í mótinu á morgun þegar þeir mæta KA á Akranesvelli. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, var fullur eftirvæntingar þegar Skessuhorn ræddi við hann á miðvikudaginn.…Lesa meira

true

Stór hópslysaæfing á Kaldármelum á morgun

Hópslysaæfing verður verður haldin á Kaldármelum fyrir umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í fyrramálið, laugardaginn 27. apríl. Í henni munu viðbragðsaðilar á starfssvæðinu taka þátt og því búist við miklum fjölda björgunar- og annarra viðbragðsaðila. „Slysstaðurinn“ verður á Kaldármelum þar sem rútuslys verður sviðsett og unnið samkvæmt hópslysaáætlun. Söfnunarsvæði fyrir sjúklinga verður sett upp í félagsheimilinu…Lesa meira

true

Snæfellsjökull líklega horfinn um miðja öldina

Snæfellsjökull hefur rýrnað mikið síðustu áratugi vegna hlýnandi loftslags og talið er að hann verði að mestu horfinn um árið 2050, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Flatarmál hans er nú innan við 10 ferkílómetrar, en var um það bil 22 ferkílómetrar árið 1910. „Jökullinn er að jafnaði aðeins um 30 metra…Lesa meira

true

Lokahátíð Þjóðleiks á Hólmavík 30. apríl – 1. maí

Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni að frumkvæði Þjóðleikhússins og í góðu samstarfi við menningarráð og marga aðra aðila á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Lokahátíðir…Lesa meira

true

ON opnar hleðslustöð í Búðardal

Fyrr í þessum mánuði opnaði Orka náttúrunnar nýja hleðslustöð í Búðardal. Hún er við Kjörbúðina á Vesturbraut 10. Af því tilefni var haft samband við rafbílaeigandann Jón Trausta Markússon rafvirkja í Búðardal og honum færður glaðningur við formlega opnun, en Jón Trausti er fyrsti íbúinn í Dalabyggð til að eignast bifreið sem eingöngu er knúin…Lesa meira

true

Siguroddur og Skáney/ Hestaland sigurvegarar

Lokamótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum var haldið á skírdag. Hefur deildin gengið vel í vetur fyrir utan að þurfti að fresta einu mótið vegna veðurs. Á þessu lokamóti var keppt í tölti og fljúgandi skeiði í gegnum höllina og var mikil spenna í loftinu bæði í einstaklings- og liðakeppni. Leikar fóru þannig að í liðakeppninni…Lesa meira

true

Gleðilegt sumar!

Hiti og blíðviðri heilsar Vestlendingum í upphafi sumars 2019. Spáin er góð og jafnvel gætu hitamet fallið. Því er fátt að vanbúnaði að drífa sig út og njóta dagsins. Skessuhorn óskar lesendum sínum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.Lesa meira