Fréttir

true

Fjölbreytt dagskrá í boði á 1. maí

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu auk fjölmargra viðburða á höfuðborgarsvæðinu hjá stóru stéttarfélögunum. Meðfylgjandi upplýsingar sendi ASÍ og snerta Vesturland: Akranes Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga. Hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3. hæð Kirkjubrautar 40…Lesa meira

true

Krónan fær Kuðunginn fyrir samfélagsábyrgð í umhverfismálum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra veitti í dag Krónunni Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla í Reykjavík og Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Krónunni sem handhafa Kuðungsins kemur fram að allt frá árinu 2015 hafi fyrirtækið markvisst…Lesa meira

true

Trausti Jónsson leitar upphafs íslenskrar dægurlagatónlistar

Trausti fjallar í fyrirlestri í Bókhlöðu Snorrastofu í kvöld um fyrstu ár íslenskrar dægurtónlistar, sem fylgt verður eftir með lifandi tónlist í Reykholtskirkju. Hann er best þekktur sem veðurfræðingur en er jafnframt áhugamaður um tónlist. Kvöldstundina hefur hann nefnt „Var hún á leiðinni?“ Svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistar – með fáeinum tóndæmum. Fjallað verður…Lesa meira

true

Ýmis óhöpp í umferðinni

Árekstur varð við Brúartorg í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Reyndist hann vera minniháttar, eitthvað tjón á bifreiðunum en enginn meiddur. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni við Höfðasel á Akrafjallsvegi í gær, mánudag. Bíllinn fór út af veginum og hafnaði ofan í skurði. Engin slys urðu á fólki. Ferðamenn á leið um Borgarfjörð á sunnudag misstu…Lesa meira

true

Skagapiltar Íslandsmeistarar unglingaliða

Íslandsmóti unglingaliða í keilu lauk laugardaginn 27. apríl síðastliðinn þegar fjögur lið léku til úrslita. Niðurstaða mótsins varð sú að ÍA 1 stóð uppi sem sigurvegari. Liðið var skipað þeim Hlyni Atlasyni, Jónasi Hreini Sigurvinssyni og Matthíasi Leó Sigurðssyni. Skagapiltar lögðu KFR 1 með tveimur vinningum gegn einum í æsispennandi viðureign í undanúrslitum þar sem…Lesa meira

true

Vorferð Blóðbankabílsins framundan á Snæfellsnes

Dagana 6. og 7. maí verður blóðsöfnun í Grundarfirði, Stykkishólmi og Ólafsvík. Eins og kunnugt er er Blóðbankabíllinn útibú frá Blóðbankanum. Í Grundarfirði verður bíllinn við Kjörbúðina mánudaginn 6. maí kl. 12:00-17:00. Bíllinn verður við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi miðvikudaginn 7. maí klukkan 8:30-12:00 og við Söluskálann ÓK í Ólafsvík sama dag frá klukkan 14:30-18:00. (Takið…Lesa meira

true

Hollvinasamtökin hefja söfnun fyrir sjúkrarúmum á HVE

Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hefur hrint af stað söfnunarátaki þar sem leitað er eftir stuðningi til kaupa á 29 nýjum sjúkrarúmum sem nauðsynlegt er að endurnýja í HVE. „Við förum þá leið að við munum merkja rúmin fyrirtækjum, félagasamtökum og stofnunum sem styðja við söfnunina. Fyrir páska póstlögðum við 903 bréf til fyrirtækja og félagasamtaka…Lesa meira

true

Kallað eftir umsóknum um þátttöku í Plan-B

„Það er sönn ánægja að tilkynna að opið er fyrir umsóknir um þátttöku listamanna á Plan-B Art Festival 2019 sem fer fram í fjórða sinn dagana 9. – 11. ágúst í Borgarnesi. Kallað er eftir öllum gerðum samtímalistar, frá gjörningum til videoverka og öllu þar á milli. Listafólk sem valið er til þátttöku fær greidda…Lesa meira

true

Skagahraðlestin í loftið

Fyrsti þáttur Skagahraðlestarinnar var gerður aðgengilegur síðastliðinn föstudag, daginn fyrir fyrsta heimaleik ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur, en að honum standa félagarnir Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson. Björn gegnir hlutverki umsjónarmanns en öll tæknimál eru í höndum Snorra. Stefna þeir að því að taka upp þátt fyrir hvern…Lesa meira

true

Lionsklúbbarnir gáfu handlyftu á Jaðar

Það er árleg hefð hjá Lionsklúbbnum Rán í Snæfellsbæ að heimsækja Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar á sumardaginn fyrsta. Mæta Ránarkonur þann dag og spila bingó með heimilisfólki á Jaðri ásamt því að bjóða upp á veglegar veitingar með kaffinu að bingói loknu. Það er svo spurning hverjir skemmta sér best á bingóinu; Ránarkonur eða heimilisfólk,…Lesa meira