Fréttir

true

UMFÍ vantar mótshaldara fyrir Landsmót 50+

Landsmót UMFÍ fyrir fimmtíu ára og eldri hefur verið haldið víða um land frá 2011. Það verður í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní í sumar og í Borgarnesi sumarið 2020. Nú er komið að því að finna mótsstað árið 2021 og auglýsir UMFÍ eftir áhugasömum sveitarfélögum í það verkefni. Landsmót UMFÍ 50+ er blanda…Lesa meira

true

Tillögur varðandi raforkusölu til garðyrkjubænda

Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda hefur skilað skýrslu sinni til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. „Starfshópurinn var skipaður vorið 2018 og var ætlað að kortleggja þróun framleiðslukostnaðar garðyrkjubænda og hlut raforku í honum, þróun gjaldskrárbreytinga, taxta og niðurgreiðslna vegna raforkunotkunar garðyrkjubænda, kanna möguleika til aukinnar nýsköpunar, þróunarverkefna og samstarfs í greininni og skoða hvaða möguleikar og verðmæti…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við Þjóðgarðsmiðstöð

Síðastliðinn föstudag hófst með formlegum hætti jarðvegsvinna fyrir nýja Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mætti af því tilefni á staðinn, steig upp í gröfu og hóf framkvæmdir með táknrænum hætti. Viðstödd var einnig fyrirrennari hans í embætti, Sigrún Magnúsdóttir, sem fyrir þremur árum tók fyrstu skóflustunguna að miðstöðinni. Íbúum á svæðinu var boðið…Lesa meira

true

Mjótt var á munum í kosningu til stjórnar Stéttarfélags Vesturlands

Í síðustu viku var kosið á þremur stöðum á starfssvæði Stéttarfélags Vesturlands um þrjú af sex sætum í stjórn félagsins til næstu tveggja ára. Í fyrsta skipti frá stofnun félagsins árið 2006 barst mótframboð við tillögu trúnaðarráðs og var því kosið milli A-lista og B-lista. Niðurstaðan varð sú að A-listinn bar sigur úr býtum, hlaut…Lesa meira

true

Mávur frá Mávahlíð er lambafaðir ársins

Opinn fagráðsfundur í sauðfjárrækt var haldinn í Bændahöllinni fyrir skemmstu. Þar voru meðal annars veitt verðlaun til ræktenda þeirra sæðingastöðvahrúta sem þykja hafa skarað fram úr. Sæðingastöðvarnar gefa verðlaunin en það er í höndum faghóps Rannsóknarmiðstöðvar Landbúnaðarins að velja hrútana út frá árangri þeirra. Hrúturinn Mávur 15-990 frá Mávahlíð á Snæfellsnesi valinn besti lambafaðirinn árið…Lesa meira

true

Vegfarendur eiga að tilkynna um óhöpp sem þeir verða vitni að

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi kom að umferðaróhappi á mánudag. Þar hafði bíll farið út af á veginum við Hafnarfjall og var ökumaður heppinn að velta ekki bílnum. Ökumaður var erlendur ferðamaður, einn á ferð. Lögregluþjónninn veitti því athygli að margir óku framhjá vettvanginum. Hann segir töluvert um að tilkynningar um óhöpp berist lögreglu seint.…Lesa meira

true

Stíga vistvæn skref í endurvinnslu frauðplastkassa

HB Grandi, dótturfélag þess Norðanfiskur, Íslenska gámafélagið og Samskip undirrituðu á fimmtudag umhverfisyfirlýsingu sem snýr að endurvinnslu og útflutningi á frauðplasti. Verkefnið byggir á frauðpressuvél sem staðsett er í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á Akranesi. Með vélinni má minnka rúmtak fiskikassanna um 95%. Með því að pressa frauðplastið gefst tækifæri til að flytja það til…Lesa meira

true

Kynningarfundur í Lyngbrekku um landbúnað og náttúruvernd

Í byrjun desember á liðnu ári var undirrituð samstarfsyfirlýsing á milli Bændasamtaka Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytis þess efnis að könnuð verði tækifæri í samþættingu landbúnaðar og náttúrverndar. Verkefnið er fjármagnað af umhverfisráðuneytinu sem hefur gert samning við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. um að vinna verkefnið. Markmið og tilgangur verkefnisins er að kanna möguleika á samþættingu…Lesa meira

true

Tillögur til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að eignast húsnæði

Starfshópur undir forystu Frosta Sigurjónssonar, sem félagsmálaráðherra skipaði í lok síðasta árs, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til fjórtán tillögur og breytingar á þeim úrræðum sem fyrir eru til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Tillögur hópsins voru kynntar í húsakynnum Íbúðalánasjóðs í dag. Þær miða m.a. að því…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Þjóðgarðsmiðstöð hefjast í dag

Í dag hefst með formlegum hætti jarðvegsvinna við nýja Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra er af því tilefni væntanlegur á staðinn og er íbúum boðið að koma og fagna á þessum tímamótum klukkan 14:45, en boðið verður upp á kaffi og kleinur í Sjóminjasafninu. Þrjú ár er síðan fyrsta skóflustunga var tekin að…Lesa meira