Fréttir

true

Sjö manns sagt upp í kjölfar skipulagsbreytinga

Starfsemi Norðanfisks öll undir eitt þak Norðanfiskur ehf. á Akranesi, dótturfélag HB Granda, hefur ákveðið að færa alla starfsemi fyrirtækisins undir eitt þak, í húsnæði sitt að Vesturgötu 5, en samhliða því að loka starfsstöðinni sem verið hefur í gamla HB húsinu við Bárugötu. HB Grandi hefur leigt hluta þess rýmis sem Ísfiskur keypti af…Lesa meira

true

Vilja koma á fót heimavinnslu afurða í Dölum

Síðdegis í dag verður fundur í Árbliki í Dölum þar sem heimavinnslu afurða verður til umræðu. Erindi flytja Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi hjá SSV, Ólafur Þór Hilmarsson hjá Matís, Erlendur Björnsson sláturhúsarekandi á Seglbúðum, Páll Kr. Pálsson frá fyrirtækinu Áttum, Hlédís Sveinsdóttir ræðir um Beint frá býli og REKO og Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum segir…Lesa meira

true

Páll á Húsafelli – sextugur í faðmi fjallahrings

Einn fremsti listamaður þjóðarinnar, Páll Guðmundsson á Húsafelli, er sextíu ára í dag, 27. mars. Páll er fæddur á Húsafelli 1959 og ólst upp í faðmi fjallhringsins sem mótuðu hann strax frá barnæsku. Hann gekk í barnaskóla á Kleppjárnsreykjum, í Hagaskóla en stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1977-1981. Eftir það stundaði hann nám…Lesa meira

true

Sjóvá flytur á nýjan stað á Akranesi

Útibú tryggingafélagsins Sjóvár á Akranesi verður opnað á nýjum stað mánudaginn 1. apríl næstkomandi. Skrifstofan hefur til þessa verið á Garðabraut en verður frá aprílbyrjun að Þjóðbraut 1, þar sem tryggingafélagið leigir starfsstöðvar af Landsbankanum í sama húsi og bankinn. „Þetta felur því í sér hagræðingu í rekstri og styrkir grundvöll útibúsins enn frekar. Það…Lesa meira

true

Leituðu að fólki á Langjökli

Óttast var um fólk á Langjökli um helgina. Þar var á ferðinni átta manna hópur á þremur bílum. Þegar lögreglu barst tilkynning um málið kl. 22:00 á sunnudagskvöld hafði ekkert heyrst frá fólkinu í marga klukkutíma. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitanna Brákar, Oks og Heiðars við leit að fólkinu. Farið var á björgunarsveitarbílum og vélsleðum…Lesa meira

true

Datt af baki

Slys varð í Borgarfirði á mánudagskvöld í þessari viku þegar kona féll af hestbaki. Hesturinn hafði fælst með fyrrgreindum afleiðingum. Konan vissi ekki hvort hún hefði misst meðvitund eður ei, var illa áttuð og fann til í mjöðm. Hún var flutt með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina í Borgarnesi til aðhlynningar.Lesa meira

true

Jarðarstund á Snæfellsnesi á laugardagskvöld

Næstkomandi laugardag, 30. mars, verður umhverfisviðburðurinn Earth Hour, eða Jarðarstund, haldinn í tólfta skipti. Um er að ræða árlegan alþjóðlegan viðburð þar sem milljónir jarðarbúa sameinast um að vekja athygli á loftslagsmálum. Af því tilefni munu sveitarfélög á Snæfellsnesi, í samstarfi við RARIK, taka þátt með því að slökkva á götuljósum milli kl. 20:30 og…Lesa meira

true

Suðvestan hvassviðri eða stormur með éljagangi í dag

Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll fram á kvöld, staðbundið yfir 40 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og á Barðaströnd.  Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt norðvestanvert landið og miðhálendið í dag. Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og afmarkaðar samgöngutruflanir eru taldar líklegar. Fólk…Lesa meira

true

Gamlir félagar í Brák tóku fyrstu skóflustunguna ásamt forsetanum

Einar Örn Einarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi, er hæstánægður með hvernig til tókst, en um 100 manns voru viðstaddir skóflustungu að nýju húsi björgunarsveitarinnar síðastliðinn föstudag. 150 gestir mættu í veislu sem haldin var í Hótel Borgarnesi að því loknu. „Mér fannst afmælið hafa tekist mjög vel og miðað við hvernig veðrið þróaðist á…Lesa meira

true

Dýnamít og dóp á verkefnalista lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði ræktun á kannabisplöntum í Borgarfirði miðvikudaginn 20. mars síðastliðinn. Plönturnar voru gerðar upptækar og málið er til rannsóknar. Í sömu leit fannst einnig dýnamít, sem sömuleiðis var gert upptækt. Kallað var eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Ríkislögreglustjóra sem í samvinnu við sprengjudeild Landhelgisgæslunnar tóku sprengiefnið og komu því í geymslu. Að sögn lögreglu…Lesa meira