
Úthlutun á styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands fyrir árið 2019 fór fram í Klifi í Ólafsvík síðastliðinn föstudag. Fjöldi fólks var við athöfnina og Stefanía Klara Jóhannsdóttir, nemandi í Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, spilaði á trompet fyrir gesti. Úthlutað var styrkjum til ýmissa vestlenskra verkefna en alls bárust 130 styrkjaumsóknir. Úthlutunarnefnd ákvað að úthluta samtals 46.838.000 krónum til…Lesa meira








