Fréttir

true

Dramatískur sigur Snæfells

Snæfellskonur halda mikilli spennu í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Þær mættu Haukum í hörkuleik í Stykkishólmi á laugardaginn og sigruðu eftir æsispennandi lokamínútur, 76-74. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum og þau fylgdust að fyrstu mínúturnar. Undir lok leikhlutans náðu gestirnir smá rispu og leiddu með fjórum stigum…Lesa meira

true

Bilaðir jeppar sunnan Þórisjökuls

Í nótt voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar til leitar að fólki á Langjökli. Aðstandendur fólksins, sem er á þremur jeppum, hafði samband þar sem farið var að óttast um það. Sjö jeppar voru sendir á Langjökul eftir tveimur leiðum en fljótlega tókst að staðsetja fólkið ekki langt frá Þórisjökli, sunnan Langjökuls. Um hálfáttaleytið sá björgunarsveitarfólk…Lesa meira

true

Gestirnir sterkari í síðari hálfleik

Skallagrímskonur töpuðu gegn KR, 66-85, þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð Domino‘s deildar kvenna. Leikið var í Borgarnesi á laugardaginn. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirhöndina lengst framan af fyrri hálfleik. Þær náðu átta stiga forskoti í fyrsta leikhluta sem KR minnkaði niður í tvö. Skallagrímskonur svöruðu því og leiddu með fimm stigum eftir…Lesa meira

true

Verulegur fjárhagsvandi ungs fólks vegna skyndilána

Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5% á árinu 2018 miðað við árið á undan. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára. Umboðsmaður skuldara hefur áður vakið athygli á vaxandi fjölda ungs fólks í vanda vegna töku skyndilána en UMS skilgreinir skyndilán sem lán tekin á vefsíðum eða…Lesa meira

true

Sveitarfélög á Vesturlandi verða af 330 milljónum úr Jöfnunarsjóði

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri skerðingu ríkisins á framlögum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Sjóðurinn hefur það hlutverk að jafna fjárhagsstöðu milli sveitarfélaga og því mun skerðing á framlögum koma harðast niður á fámennum sveitarfélögum, einkum í dreifbýli. Samkvæmt samantekt sambandsins er áætlað að sveitarfélög á Vesturlandi verði af ríkisframlagi til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts…Lesa meira

true

Áfram haldið með ljósleiðaravæðingu í dreifbýli

Skrifað hefur verið undir samninga um svokalla samvinnustyrki til sveitarfélaga sem greiðast úr ríkissjóði í gegnum Fjarskiptasjóð auk byggðastyrkja sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið úthlutar. Renna styrkirnir til ljósleiðaravæðingar í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt. Fjórtán sveitarfélög eiga að þessu sinni kost á byggðastyrk á grundvelli byggðaáætlunar og 22 sveitarfélög eiga kost á samvinnustyrk. Samningarnir gefa…Lesa meira

true

Stefnt verður að lengingu fæðingarorlofs

Í félagsmálaráðuneytinu er nú hafin vinna við heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof í samráði við hagsmunaaðila. Þetta kynnti Ásmundur Einar Daðason ráðherra barnamála á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi og sagði vel við hæfi enda verða á næsta ári liðin 20 ár frá gildistöku laganna. Samhliða þessu er stefnt að því að fæðingarorlof verði lengt í…Lesa meira

true

Telja náttúrulega laxastofna eiga að njóta vafans

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent sveitarfélögum til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi. Í því felst meðal annars áhættumat vegna erfðablöndunar við náttúrulega laxastofna, úthlutun eldissvæða til fiskeldis í sjó, stjórnvaldssektir ef á lögunum er brotið og fleiri atriði. Sveitarfélagið Borgarbyggð fékk frumvarpið til umsagnar og bókaði allítarlega vegna þess, enda eru fjölmargar af fengsælustu laxveiðiám…Lesa meira

true

Óvíst um matarúthlutun vegna bágrar fjárhagsstöðu

Vegna bágrar fjárhagsstöðu Mæðrastyrksnefndar Akraness er óvíst að páskaúthlutun verði í ár. “Ef fyrirtæki, félagasamtök, verslanir og/eða einstaklingar sjá sér fært að styrkja Mæðrastyrksnefnd þá er bent á reikningsnúmer félagsins,“ segir í tilkynningu frá Mæðrastyrksnefnd Akraness. Bankareikningur nefndarinnar er: 552-14-402048 og kennitala 411276-0829.Lesa meira

true

Vetrarfærð um norðanvert landið

Lægð sem fylgdi töluverð ofankoma gekk yfir landið síðastliðinn föstudag og í gær. Á föstudag var versta veðrið um norðanvert landið og vegir lokuðust. Í gær var veðrið verst um norðvestanvert landið, Strandir og á Vestfjörðum. Um miðjan dag í gær byrjuðu ökumenn að lenda í vandræðum á ferð sinni yfir Bröttubrekku og ýmist festu…Lesa meira