Fréttir

true

Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Úthlutun á styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands fyrir árið 2019 fór fram í Klifi í Ólafsvík síðastliðinn föstudag. Fjöldi fólks var við athöfnina og Stefanía Klara Jóhannsdóttir, nemandi í Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, spilaði á trompet fyrir gesti. Úthlutað var styrkjum til ýmissa vestlenskra verkefna en alls bárust 130 styrkjaumsóknir. Úthlutunarnefnd ákvað að úthluta samtals 46.838.000 krónum til…Lesa meira

true

„Ef ég fæ að elda fisk er deginum bjargað“

Þegar gengið er inn á veitingastaðinn Sker í Ólafsvík finnur maður vel fyrir nálægð hafsins. Það er Lilja Hrund Jóhannsdóttir, 25 ára kokkur, sem er eigandi staðarins en hún var að undirbúa daginn á Skeri þegar blaðamaður Skessuhorns hitti hana þar á föstudaginn og ræddi við hana um lífið og veitingareksturinn. Lilja er fædd og…Lesa meira

true

Fimmtán sækja um starf seðlabankastjóra

Forsætisráðuneytinu hafa borist 15 umsóknir um embætti seðlabankastjóra sem auglýst var laust til umsóknar 20. febrúar sl. en frestur til umsóknar rann út á miðnætti 25. mars. Sérstök hæfnisnefnd verður skipuð til þess að fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra samkvæmt lögum um bankann. Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra: Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra Ásgeir Jónsson,…Lesa meira

true

Blesgæsin er mætt í friðlandið á Hvanneyri

Fyrsti hópur blesgæsa mætti í friðlandið í Andakíl í dag. Ragnhildur Helga Jónsdóttir greinir frá því á Facebook hópnum Fuglar á Vesturlandi að 35 gæsa hópur hafi sest á túnin á Hvanneyri í dag og líklega fjölgi þeim nú ört næstu dagana. Benda má á að blesgæsin er friðuð, en hún kemur á vorin frá…Lesa meira

true

Mikið vatnsveður í Grundarfirði

Mikil úrkoma var á Vesturlandi í gær og þá sérstaklega í Grundarfirði þar sem að úrkoman mældist yfir 100 mm samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þetta olli nokkru tjóni en Snæfellsnesvegur var byrjaður að fara í sundur við bæinn Mýrar rétt hjá Kirkjufelli. Þar mætti mannskapur á vinnuvélum og rufu þeir skarð í lítinn afleggjara á svæðinu…Lesa meira

true

Kæra ólöglega netsölu lyfja og fæðubótarefna

Matvælastofnun hefur, í samvinnu við Lyfjastofnun, kært vef með íslensku léni til lögreglu og farið fram á að honum verði lokað. Rétthafi léns er skráður í Mið-Ameríku en vefleit gefur til kynna starfsemi í Ástralíu. Á vefnum eru auglýst til sölu bæði ólögleg fæðubótarefni og lyf. „Matvælastofnun varar við viðskiptum við vefinn www.roidstop.is og neyslu…Lesa meira

true

Tóku við nýjum hugbúnaði byggingarfulltrúa

Á fimmtudagskvöld tók sveitarfélagið Borgarbyggð formlega í við hugbúnaðinum OneLandRobot. Um er að ræða nýtt umsóknar- og úttektarkerfi byggingarfulltrúa sveitarfélagsins. Hugbúnaðinum er ætlað að gera byggingarleyfisumsóknir skilvirkari og aðgengilegri fyrir húsbyggjendur, ásamt því að gera umsækjendum og öllum sem koma að verkinu kleift að fylgjast með stöðu mála í gegnum íbúagátt sveitarfélaganna. Borgarbyggð er með…Lesa meira

true

Fundað um einkarekna fjölmiðla

Síðastliðinn laugardag fór fram í Háskólanum á Akureyri fundur um stöðu einkarekinna fjölmiðla og væntanlegt frumvarp til stuðnings rekstri þeirra. Það var Símenntun Háskólans á Akureyri og Blaðamannafélag Íslands sem buðu til fundarins. Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur löngum verið erfitt og hefur þeim fækkað talsvert á liðnum árum. Sambærilegir miðlar í grannlöndunum njóta…Lesa meira

true

Grundfirsku blakstelpurnar upp um deild

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í blaki sem lauk á dögunum. Þetta varð ljóst eftir síðustu keppnishelgina en Grundarfjörður endaði með 27 stig eftir veturinn en Ungmennafélagið Hjalti varð hlutskarpara með 32 stig. Það er því ljóst að Ungmennafélag Grundarfjarðar mun leika í 1. deild að nýju eftir smá hlé.…Lesa meira

true

Skóladagur í Borgarbyggð á laugardaginn

Laugardaginn 30. mars á milli klukkan 13 og 15 munu skólar á öllum skólastigum í Borgarbyggð kynna starfsemi sína á Skóladegi sem haldinn verður í Hjálmakletti. Vítt og breitt um bygginguna verður margt forvitnilegt að sjá og hægt að kynnast gróskumiklu skólastarfi allra skólastiga í sveitarfélaginu. Þetta er í fyrsta skipti sem skólarnir kynna sig…Lesa meira