Fréttir

true

Æfðu viðbrögð við bruna í vélsmiðju

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar hélt óvænta útkallsæfingu í síðustu viku. Æfingin var liður í undirbúningi og þjálfun nýliða. Áttu slökkviliðsmenn að mæta á æfingu kl. 18:00 en níu mínútum áður barst þeim útkall um eld í vélsmiðju á Grundartanga. Þar skíðlogaði eldur í gámi. Það sem þeir vissu hins vegar ekki var að þjálfararnir höfðu…Lesa meira

true

Útgerðin opnar í Pakkhúsinu í Ólafsvík

Rut Ragnarsdóttir tók í byrjun mánaðarins við rekstri Pakkhússins í Ólafsvík og stefnir á að opna þar verslun og veitingasölu. Rut langaði að skapa sér atvinnu í heimabæ sínum eftir að hún lauk fæðingarorlofi um síðustu mánaðamót og fór á fund bæjarstjórnar og bar þar upp beiðni um að leigja Pakkhúsið. „Bæjarstjórn tók vel í…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum

Skallagrímsmenn biðu lægri hlut gegn Njarðvík, 113-84, í lokaleik Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Mikið jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta. Þá tóku heimamenn að síga fram úr og leiddu með níu stigum eftir upphafsfjórðunginn, 36-27. Skallagrímsmenn komu til baka og minnkuðu muninn hægt og sígandi…Lesa meira

true

Tap eftir jafnan síðari hálfleik

Skallagrímskonur lutu í lægra haldi gegn Stjörnunni þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Leikið var í Garðabæ. Síðari hálfleikur var lengi jafn og leikurinn spennandi, en að lokum fór svo að Stjarnan hafði fimm stiga sigur, 72-67. Stjarnan var mun betri í fyrsta leikhluta og leiddi 20-11 að honum loknum.…Lesa meira

true

Volgnaði heldur betur undir íslenskum briddsspilurum

Margir af fremstu briddsspilurum landsins voru á faraldsfæti um liðna helgi. Meðal annars fór 24 manna hópur til þátttöku á Samverkstvímenningnum í Færeyjum. Á ferðalagi milli staða lenti hópurinn hins vegar í miður skemmtilegu atviki þegar eldur gaus upp í rútu sem ferjaði þá milli staða. „Við hefðbundna tóbaksreykjarinnöndun bættist svo hressilega við í háls…Lesa meira

true

Lýst eftir milljónamæringi í Stykkishólmi

„Átt þú kannski milljónir hjá okkur,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá sem leitar að þremur milljónamæringum sem ekki hafa vitjað lottóvinninga sinna. Meðal annars er vinningur sem kom á miða sem seldur var í Olís í Stykkishólmi. Við útdrátt 23. febrúar síðastliðinn kom vinningsupphæð 7.639.900 krónur á miða sem þar var seldur. Tölurnar voru:…Lesa meira

true

Lækkað álverð dregur úr jákvæðri afkomu OR

Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2018 hefur verið samþykktur í stjórn. Rekstrartekjur námu tæpum 46 milljörðum króna og rekstrarkostnaður 17,3 milljörðum. Að teknu tilliti til afskrifta, skatta og reiknaðra stærða var nettóhagnaður samsteypunnar jákvæður um sex milljarða króna, sem er tíu milljörðum króna lakari afkoma en var árið 2017. Lægra álverð spilar þar mest inní.…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Snæfells

Snæfellskonur unnu mikilvægan sigur í Domino‘s deildinni þegar þær lögðu KR í Stykkishólmi á miðvikudagskvöld. Snæfell náði undirtökunum snemma leiks og var feti framar allt til leiksloka. Hólmarar fóru með sigur af hólmi, 89-81. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks og staðan var 8-7 fyrir Snæfellskonum eftir fjögurra mínútna leik. Þær náðu síðan…Lesa meira

true

Fagerlund átti frábært kvöld í gæðingafiminni

Keppni í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni fór fram í síðustu viku í Faxaborg. Greinin er krefjandi bæði fyrir knapa og hest og kannski hægt að segja að hún sé ekki í miklu uppáhaldi hjá öllum knöpum. Trúlega er það ástæðan fyrir því að sjaldan er keppt í greininni og menn því óvanir henni. En kvöldið var…Lesa meira

true

Jóhannes Karl semur við ÍA til fimm ára

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur endurnýjað samnining sinn við Knattspyrnufélag ÍA um þjálfun meistaraflokks karla til næstu fimm ára. Jóhannes Karl er sem kunnugt er alinn upp hjá ÍA og hefur mikla reynslu sem leikmaður hérlendis. Á sínum atvinnumannaferli á erlendri grundu lék Jóhannes með liðum á borð við Real Betis, AZ Alkmaar, Wolverhampton Wanderers, Burnley, …Lesa meira