Fréttir

true

Fjölgreindaleikar í Grunnskóla Grundarfjarðar

Miðvikudaginn fyrir vetrarfrí, 27. febrúar síðastliðinn, voru Fjölgreindaleikarnir haldnir í þriðja sinn í Grunnskóla Grundarfjarðar. Leikarnir eru hugsaðir sem góð og skemmtileg tilbreyting í skólastarfi þar sem nemendur og starfsmenn eiga góðan dag við leik og skemmtun. Þá fá starfsmenn tækifæri til þess að sjá alla nemendur við vinnu og nemendur fá að kynnast og…Lesa meira

true

Bæring Breiðfjörð vann til verðlauna í teiknimyndasamkeppni

Nýverið fór fram teiknimyndasamkeppni meðal nemenda fjórða bekkjar grunnskóla í landinu. 1400 myndir voru sendar inn úr 70 skólum af öllu landinu. Keppnin var haldin í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn. Myndefni keppninnar var frjálst en mátti þó gjarnan tengjast mjólk, hreyfingu og heilbrigði. „Af því leiddi að vinsælast var að teikna kýr í öllum mögulegum…Lesa meira

true

Lofslagsverkfall á Akranesi á morgun

Boðað hefur verið lofslagsverkfalls á Akratorgi á Akranesi á morgun, föstudaginn 14. mars kl. 12:00. Er það að fyrirmynd bylgju loftslagsverkfalla sem hin sænska Greta Thunberg hefur komið af stað meðal ungmenna víða um heim. Á sama tíma verða verkföll fyrir loftslagið á yfir 1300 stöðum í heiminum í 98 löndum. Það eru nemendur í…Lesa meira

true

Þórdís Kolbrún verður dómsmálaráðherra

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tekur við embætti dómsmálaráðherra af Sigríði Á. Andersen. Mun Þórdís taka við embættinu tímabundið, ásamt öðrum störfum. Þetta hefur Vísir eftir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, sem ræddi við blaðamenn í Alþingishúsinu að loknum þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks í dag, þar sem rætt var um þá stöðu sem upp er komin…Lesa meira

true

Óttast að heilsársræktun jarðarberja sé útilokuð við núverandi aðstæður

Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir garðyrkjubændur á Sólbyrgi í Borgarfirði hafa sett garðyrjustöðina á sölu. Einar segir þau hjónin vera að skoða þá möguleika sem þau hafa en ræktunin þeirra stendur illa undir sér í dag. „Síðustu tvö ár hafa bara verið rosalega erfið. Fyrst kom Costco inn á markaðinn, þá hefur rafmagnið hækkað um…Lesa meira

true

Oddfellowstúkur gáfu til líknarmála í landshlutanum

Á þessu ári eru 200 ár frá því Oddfellowreglan á Íslandi var stofnun. Í tilefni afmælisins tóku Oddfellowstúkurnar á Akranesi; Egill og Ásgerður, höndum saman um gjöf til líknarmála á starfssvæði stúkanna, með stuðningi styrktar- og líknarsjóðs Oddfellow. Var það sameiginleg niðurstaða reglusystkina að láta Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða á Akranesi…Lesa meira

true

Vinnslugetan eykst með hverri vikunni sem líður

Nú eru nokkrar vikur síðan vinnsla hófst í nýrri fiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði. „Það hafa að sjálfsögðu verið einhverjir hnökrar svona eins og búist var við,” segir Unnsteinn Guðmundsson tæknistjóri og einn eigenda fyrirtækisins í samtali við Skessuhorn. „Þetta er samt allt á réttri leið og vinnslugetan eykst með hverri vikunni sem líður,…Lesa meira

true

Mokfiskerí í öll veiðarfæri

„Það hefur verið vægast sagt mokveiði í öll veiðarfæri hjá bátunum á Breiðafirði að undanförnu, þegar gefur á sjó,“  segir Þórður Björnsson hafnarvörður í Ólafsvík í samtali við Skessuhorn. Netabáturinn Bárður SH hefur mokfiskað og landað allt að 40 tonnum yfir daginn, en til þess að koma öllu þessu magni að landi hefur báturinn landað…Lesa meira

true

Kynningarfundir um verkefnið GróLind í Lindartungu

Þessa dagana er Landgræðslan á fundaferðalagi um Vesturland. Um er að ræða kynningar- og samráðsfundi um verkefnið GróLind. Markmið verkefnisins er að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins og gera grein fyrir breytingum þar á, sem og að þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu þessara auðlinda. „Íslensk þurrlendisvistkerfi veita fjölbreytta þjónustu; þau…Lesa meira

true

Fjölmennt sjóstangveiðimót framundan á Akranesi

Við birtingu í fyrramálið hefst aðalmót sjóstangveiðifélagsins Sjóskips á Akranesi. Róið verður föstudag og laugardag. Þetta er fyrsta sjóstangveiðimót ársins og telur til Íslandsmeistara. Mótið verður sett klukkan 20 í kvöld í húsnæði Fiskmarkaðarins við Faxabraut 7. Þar verða skipstjórar og trúnaðarmenn settir í störf sín. Mæting verður svo á kajann klukkan 5:30 á laugardagsmorgni…Lesa meira