Fréttir

true

Menningarhátíðin Írskir vetrardagar að hefjast

Dagana 14. til 17. mars er menningarhátíðin Írskir vetrardagar haldin á Akranesi. Fjölbreytta dagskrá má finna í Skessuhorni vikunnar. Dagskráin hefst síðdegis í dag með því að starfsfólk Landmælinga býður upp á gönguferð meðfram strandlengjunni og niður að vita. Nótutónleikar verða í Tónlistarskólanum klukkan 18 og djasstónleikar á Gamla kaupfélaginu í kvöld. Á morgun, föstudag…Lesa meira

true

Suðurnesjamenn sameinast VR

Félagsmenn í Verslunarmannafélagi Suðurnesja (VS) samþykktu í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær að sameina félagið VR. Til að sameining yrði samþykkt þurfti samþykki a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða fullgildra félagsmanna VS. Niðurstaðan var sú að 82,54% félagsmanna VS sem þátt tóku í kosningunni samþykktu sameiningu en 17,14% voru henni mótfallin. VS mun því sameinast undir…Lesa meira

true

Ríkisráðsfundur verður í dag á Bessastöðum

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum í dag, fimmtudaginn 14. mars kl. 16.00. Það er gert í kjölfar afsagnar Sigríðar Á Andersen dómsmálaráðherra í gær, í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um skipan Landsréttar. Nýr ráðherra þarf því að taka við dómsmálum í ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Óvíst er hver það verður né…Lesa meira

true

Fríða Kristín er nýr viðburðastjóri Akraneskaupstaðar

Fríða Kristín Magnúsdóttir hefur verið ráðin til að sjá um viðburði á vegum Akraneskaupstaðar og tók hún við starfinu 1. mars síðastliðinn. Hún er sjúkraliði að mennt með diplómu í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og starfar í dag sem stuðningsfulltrúi í Brekkubæjarskóla og sem sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Hún er fædd og uppalin á…Lesa meira

true

Kastalinn í Búðardal fær nýja eigendur

Á næstu dögum munu Ásdís Kr. Melsted og Jóhannes Haukur Jóhannesson hætta rekstri gistiheimilisins Kastalans í Búðardal. Gistiheimilið opnuðu þau við Brekkuhvamm 1 vorið 2016 en nú hafa þau selt reksturinn þeim Skildi Orra Skjaldarsyni og Carolin A Baare Schmidt. „Við ætlum okkur að halda áfram þessum fína rekstri sem verið hefur á gistiheimilinu fram…Lesa meira

true

Árleg byssusýning verður um helgina á Stokkseyri

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. „Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar,…Lesa meira

true

Sigríður Andersen stígur til hliðar

Sigríður Á. Andersen hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem dómsmálaráðherra. Hún tilkynnti um þetta á blaðamannafundi í dómsmálaráðuneytinu rétt í þessu. Sagði hún að persóna hennar kynni að hafa áhrif á ákvarðanir sem taka þarf í Landsréttarmálinu og í ljósi þess muni hún stíga til hliðar næstu vikurnar. Hún kveðst fara þessa leið…Lesa meira

true

Tökum á 20/20 lokið í Stykkishólmi

Tökum Saga Film á efni í sjónvarpsþættina 20/20 er nú lokið í Stykkishólmi. Einungis frágangsvinna og þrif eftir. Starfsfólk Saga Film er hæstánægt með veruna í Stykkishólmi. Það vill koma á framfæri þökkum til íbúa fyrir móttökurnar og aðstoðina á meðan á kvikmyndatökum stóð síðustu vikur. „Allt gekk vonum framan, bæði vegna aðstæðna og veðurs,…Lesa meira

true

Samfelldur afgreiðslutími þjónustuvers

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti nýverið að breyta opnunartíma þjónustuvers bæjarskrifstofunnar við Stillholt 16-18 frá næstkomandi mánudegi, 18. mars, og út þetta ár. Verður þá opið mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 9-15 en á föstudögum klukkan 9-14. Fram til þessa hefur opnunartíminn verið kl. 9:30-12:00 og 12:30-15:30 alla virka daga og því lokað í hálftíma í hádeginu.…Lesa meira

true

Nemendur fá að kynnast störfum fyrirtækja í Borgarnesi

Í Grunnskólanum í Borgarnesi er nemendum 9. og 10. bekkjar boðið upp á val sem kallast IÐN, verknám á vinnustað. Í IÐN velja nemendur sér, í samráði við Guðrúnu St. Guðbrandsdóttur hönnunar- og smíðakennara, vinnustað í Borgarnesi til að starfa á í tvær klukkustundir á mánudögum í sex til sjö vikur í senn. Tilgangur með…Lesa meira