Fréttir

true

ÍA í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni

ÍA mátti játa sig sigrað gegn Leikni R., 108-118, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi. ÍA var fyrir leikinn með 16 stig í fjórða sæti deildarinnar, sem veitir sæti í úrslitakeppninni, en gestirnir í því sjötta með tólf stig en einn leik til góða í mótinu.…Lesa meira

true

Brák fagnar 70 ára afmæli með fyrstu skóflustungu að nýju húsnæði

Föstudaginn 22. mars verða 70 ár liðin frá því skipulagt slysavarnar- og björgunarstarf hófst í Borgarnesi. Þennan dag árið 1949 var Slysavarnadeildin Þjóðbjörg stofnuð og upp frá því varð Björgunarsveitin Brák til. Af þessu tilefni ætla meðlimir Björgunarsveitarinnar Brákar að halda daginn hátíðlegan með smá afmælisfagnaði. Dagskráin hefst á því að fyrsta skóflustungan að nýju…Lesa meira

true

Slydda eða rigning vestanlands í dag

Í dag er spáð vaxandi austlægri átt og að þykkni upp, 10-20 m/s og slydda eða rigning sunnan- og vestanlands eftir hádegi. Hvassast verður við fjöll. Hægara og úrkomulítið norðan- og austanlands. Lægir heldur með skúrum suðvestantil í kvöld, en hvessir í öðrum landshlutum. Austlæg átt, víða 8-15 m/sek og dálítil rigning eða slydda á…Lesa meira

true

Verslun Olís í Stykkishólmi lokað og ný verslun opnuð

Verslun Olís í Stykkishólmi verður lokað á morgun, fimmtudag, nýr verslunaraðili tekur við og mun opna nýja verslun á föstudag. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Olís á Vesturlandi segir mikla eftirsjá af verslun Olís í Stykkishólmi, enda er með því að ljúka áratugalöngum verslunarrekstri Olís í Hólminum. „Ég persónulega sé mikið eftir stöðinni í Stykkishólmi, mér þykir…Lesa meira

true

Tónleikar á Gamla Kaupfélaginu annað kvöld

Hljómsveit Unnar Birnu og Björns Thoroddsens blæs til tónleika á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi annað kvöld, fimmtudaginn 14. mars kl. 20:30. Tónleikarnir eru liður í dagskrá Írskra vetrardaga sem hefjast sama dag. Unnur Birna Bassadóttir fiðluleikari og söngkona og Björn Thoroddsen gítarleikari eru á ferð um landið ásamt Sigurgeiri Skafta Flosasyni bassaleikara og Skúla Gíslasyni…Lesa meira

true

Marshalláætlunin og tæknivæðing Íslands á fyrirlestri

Þriðjudaginn 19. mars næstkomandi flytur Sigrún Elíasdóttir sagnfræðingur frá Ferjubakka, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti. Hún mun fjalla um aðstoð Bandaríkjastjórnar við Íslendinga eftir síðari heimsstyrjöldina, kennda við þáverandi utanríkisráðherra þeirra, George Marshall. Í fyrirlestrinum verður leitað svara við því hver hugmyndafræðin var á bakvið aðstoðina, hvernig fjármagn hennar var nýtt og hver aðkoma okkar…Lesa meira

true

Listería í laxa- og rækjusalati frá Sóma

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af laxa- og rækjusalati frá Sóma ehf. vegna listeríu (Listeria monocytogenes) sem greindist í reglulegu eftirliti fyrirtækisins. Sómi hefur ákveðið að innkalla salatið af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Sómi ehf. Vöruheiti: Laxa og rækjusalat Strikamerki: 5690596069045 Umbúðir:…Lesa meira

true

Gróska sett á sölu

Kristjana Helga Ólafsdóttir eigandi Grósku garðvöruverslunar á Akranesi hefur sett verslunina á sölu og hyggst nú snúa sér að öðrum störfum. Kristjana opnaði verslunina fyrst í október 2015 en nú segist hún hafa fundið sig betur í öðrum störfum. „Ég er að sjá um bókhald fyrir fyrirtæki og langar að einbeita mér meira að því,…Lesa meira

true

Grunnskólanemendur læra kínversku

Í ár er sú nýbreytni tekin upp í Grunnskóla Grundarfjarðar að boðið er upp á kínversku sem valgrein á unglingastigi. Nemendur tóku þessari nýjung vel og eru nú sex þeirra sem þreyta kínverskunám undir handleiðslu Alexöndru Sukhova. Nemendur læra hvort tveggja tungumálið og tákn. Fyrstu tímar eru búnir og heyra má að nemendur séu mjög…Lesa meira

true

Vilja að allur afli verði seldur í uppboðskerfi

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda áttu í síðustu viku fund með fulltrúum Sjómannasambands Íslands, Félagi vélstjóra-og málmtæknimanna og Félagi skipstjórnarmanna. Ýmis málefni félaganna voru rædd, kjaramál og verðlagsmál. Í tilkynningu segir að fundarmenn hafi verið sammála um að skora á stjórnvöld að tryggja að allur sá afli sem ekki kemur til vinnslu hjá samþættum útgerðar- og…Lesa meira