Fréttir

true

Bíða af sér óveður við Írlandsstrendur

Sex íslensk uppsjávarveiðiskip leituðu á mánudaginn vars inni á Donegalflóa en óveður geisar nú á kolmunnamiðunum vestur af Írlandi. Að sögn Theódórs Þórðarsonar, skipstjóra á Venusi NS, er veðurútlit slæmt og ekki horfur á að óveðrið gangi niður fyrr en á föstudag. „Það er búið að vera leiðindaveður og það var bræla á miðunum þegar…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur söfnuðu fyrir húsbúnaði í Fellaskjól

Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði hélt Góugleði síðastliðinn laugardag en félagið heldur slíka hátíð annað hvert ár og safnar um leið fyrir góðu málefni. Söfnuðu félagskonur fyrir krabbameinsdeild Landspítalans fyrir tveimur árum og voru þá keypt nokkur sjónvörp fyrir ágóðan. Að þessu sinni söfnuðu kvenfélagskonur fyrir húsbúnaði í nýbyggingu Dvalarheimilisins Fellaskjóls. Tæplega 80 konur…Lesa meira

true

Vegagerðin telur óbreytt öryggi í Hvalfjarðargöngum

Á vef Vegagerðarinnar var á þriðjudaginn í síðustu viku birt löng tilkynning sem að hluta eða öllu leyti er svar við frétt Skessuhorns frá 20. febrúar síðastliðnum. Þar var rætt við Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og ítarlega farið yfir atvikalýsingu í kjölfar óhapps sem varð í Hvalfjarðargöngunum 12. febrúar síðastliðinn. Þá var…Lesa meira

true

Berglind Gunnarsdóttir er íþróttamaður Snæfells

Körfuknattleikskonan Berglind Gunnarsdóttir var á föstudagskvöld útnefnd íþróttamaður Snæfells 2018. Er þetta annað árið í röð sem hún er sæmd þessari heiðursnafnbót. Berglind hefur leikið með Snæfelli alla tíð og á að baki nálægt 300 leiki fyrir félagið. Þar að auki á hún að baki 21 landsleik fyrir A landslið Íslands í körfuknattleik og 18…Lesa meira

true

Bólusetning við mislingum ábatasöm fjárfesting

Dauðsföllum af völdum mislinga á heimsvísu fækkaði um 80% milli áranna 2000 og 2017 vegna aukinnar áherslu á bólusetningu. Áætlað er bólusetning fyrir mislingum hafi komið í veg fyrir 21,1 milljón dauðsfalla á þessu árabili, segir í samantekt Landlæknisembættisins. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur tekið saman staðreyndir um mislinga og bólusetningu við þeim og segir stofnunin bólusetningu…Lesa meira

true

Ók yfir götu og á kyrrstæðan bíl

Umferðaróhapp varð á Kirkjubraut á Akranesi núna rétt fyrir klukkan 13:00. Bíl var ekið af bílastæðinu við enda hússins að Kirkjubraut 40, í gegnum lágan steinvegg og út á Kirkjubraut. Þaðan var bílnum ekið yfir umferðareyjuna sem aðskilur akbrautirnar, yfir götuna og inn á bílastæðið á bakvið sjúkrahúsið þar sem hann hafnaði á kyrrstæðum bíl…Lesa meira

true

Gengi fellur í hlutabréfum Icelandair

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur fallið um tæp 9% í viðskiptum dagsins. Sömu sögu er að segja af gengi bréfa í öðrum flugfélögum sem eiga og reka flugvélar af gerðinni Boeing 737 MAX 8, sömu gerðar og vélarnar sem fórust í Eþíópíu í gær og Indónesíu fyrir fimm mánuðum. Gengi í norska flugfélaginu Norwegian féll…Lesa meira

true

Hvasst um sunnanvert landið í dag

Veðurstofan gerir ráð fyrir vaxandi austlægri átt og slyddu eða snjókomu sunnanlands í dag sem síðar færist yfir í rigningu. Austan og síðan norðaustan hvassviðri á sunnanverðu landinu síðdegis en 23-30 m/s undir Eyjafjöllum og einnig á Suðausturlandi í kvöld og nótt. Veðrið verður skaplegra um vestanvert landið, en þó gæti orðið drjúghvasst á syðst…Lesa meira

true

Tveir seldu en 99 vildu kaupa

Fyrsti innlausnardagur ársins á greiðslumarki í mjólk var 1. mars. Greiðslumark tveggja búa var innleyst en 99 framleiðendur lögðu inn kauptilboð. Um 60 þúsund lítrar skiptu þannig um eigendur. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 100 krónur á lítra á þessu ári og annast Matvælastofnun innlausn þess. Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi í ársbyrjun 2017, skulu framleiðendur…Lesa meira

true

Sjúkrabílaútboði enn á ný frestað

Sjúkratryggingar Íslands hafa að ósk heilbrigðisráðuneytisins fengið opnun útboðs vegna kaupa á sjúkrabílum frestað fram í ágúst næstkomandi. Ástæðan er að samningaviðræðum milli ráðuneytisins og Rauða kross Íslands þarf að ljúka. Forsenda þess að hægt sé að fara í útboð er að samkomulag náist milli þessara aðila, að því er fram kemur í tilkynningu frá…Lesa meira