Fréttir

true

Tap í síðasta heimaleiknum

Skallagrímur lék síðasta heimaleik sinn í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í bili þegar þeir mættu Tindastóli í Borgarnesi í gærkvöldi. Borgnesingar eru sem kunnugt er fallnir úr deild þeirra bestu eftir tap gegn Val á fimmtudagskvöld. Þeir voru því ekki að spila upp á neitt nema stoltið á sunnudaginn. Skallagrímsmenn réðu ferðinni allan fyrri…Lesa meira

true

Hlúð að manni við Glym

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um hálf tvö í gær vegna tilkynningar frá manni í vanda í Botnsdal í Hvalfirði. Maðurinn hafði verið á göngu í litlum hópi að fossinum Glymi. Rúmum klukkutíma síðar var björgunarsveitarfólk komið að manninum en meiðsli hans reyndust minni en talið var í upphafi. Hlúð var að honum og…Lesa meira

true

Misstu af gestunum í síðari hálfleik

Á föstudagskvöld léku Snæfellingar síðasta heimaleikinn í 1. deild karla í körfuknattleik þegar þeir tóku á móti liði Þórs frá Akureyri. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Snæfell leiddi í hléinu. Það var síðan í þriðja leikhluta að gestirnir komust yfir og náðu að slíta sig frá Snæfellingum og leggja grunn að sigri…Lesa meira

true

Ástand hjólbarða verra en í fyrra

Loftþrýstingur í hjólbörðum reyndist vera of lítill, of mikill eða mismikill í meira en helmingi bíla. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem tryggingarfélagið VÍS lét gera á ástandi dekkja um eitt hundrað tjónabíla. Alls reyndust 53% bíla hafa of lítinn, of mikinn eða misjafnan loftþrýsting í dekkjum, samanborið við 43% í könnun sem VÍS frá…Lesa meira

true

Elsta ókláraða málið er frá 2017

Töluverður munur er á því eftir lögregluumdæmum í landinu hversu mörg mál eru enn til rannsóknar hjá þeim. Hjá Lögreglunni á Vestfjörðum var elsta málið innan við ársgamalt en tvö elstu málin sem voru til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru frá 2012. Í flestum lögregluumdæmum landsins eru elstu ókláruðu málin frá árunum 2016 eða…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af í fjórða leikhluta

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn Keflvíkingum, 70-92, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur en það var síðan í fjórða leikhluta sem gestirnir úr Keflavík stungu af og innsigluðu sigurinn. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Skallagrímskonur leiddu með tveimur stigum þegar fyrsti leikhluti var…Lesa meira

true

Róður Snæfellskvenna þyngist

Snæfell tók á móti Stjörnunni í stórleik 24. umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Liðin eru í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni. Fyrir leikinn var Snæfell í fimmta sæti, tveimur stigum á eftir Stjörnunni. Leikurinn í Stykkishólmi þróaðist þannig að Stjarnan hafði undirtökin allan tímann og…Lesa meira

true

Valdís í fimmta sæti í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í fimmta sæti á NSW Open mótinu sem fram fór í Ástralíu um helgina. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Valdís lék frábært golf á fyrsta hring mótsins, fór hann á 63 höggum eða hvorki meira né minna en átta höggum undir pari. Annan hringinn fór hún…Lesa meira

true

Líf og fjör á öskudaginn

Að venju var líf og fjör á öskudaginn síðastliðinn miðvikudag. Börn um allan landshlutann klæddu sig upp, fóru í heimsóknir til fyrirtækja og vinnustaða þar sem þau sungu og fengu eitthvað gott að launum.Lesa meira

true

Margrét Katrín ráðin kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga

Fyrsta konan sem gegnir starfinu Margrét Katrín Guðnadóttir hefur verið ráðin í starf kaupfélagsstjóra Kaupfélags Borgfirðinga svf. í Borgarnesi og mun taka við starfinu 1. júní næstkomandi. Verður hún fyrsta konan til að gegna starfi kaupfélagsstjóra KB í 115 ára sögu félagsins. Margrét tekur við starfinu af Guðsteini Einarssyni, núverandi kaupfélagsstjóra, sem hefur sagt starfi…Lesa meira