Fréttir

true

Tveir fluttir með þyrlu eftir bílveltu í Snæfellsbæ

Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu á milli Ólafsvíkur og Rifs í nótt. Laust fyrir klukkan þrjú í nótt var óskað eftir aðstoð þyrlunnar sem tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli skömmu síðar. Sjúkrabíll flutti hina slösuðu á flugvöllinn í Rifi en þar lenti TF-LIF um klukkan fjögur í nótt. Þyrlan flutti hina slösuðu…Lesa meira

true

Hannes endurkjörinn formaður KKÍ

Í gær var 53. Körfuknattleiksþing KKÍ haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hannes S. Jónsson var endurkjörinn formaður en hann var einn í framboði. Stjórn KKÍ var sjálfkjörinn en úr henni gengu Páll Kolbeinsson og Eyjólfur Þór Guðlaugsson. Nýir stjórnarmenn voru kosnir þeir Guðni Hafsteinsson, Herbert Arnarson og Jón Bender. Stjórnin er því skipuð þeim Birnu…Lesa meira

true

Gera framdal Skorradals að verndarsvæði í byggð

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 20. febrúar að auglýsa tillögu að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal. Í stuttu máli felur tillagan í sér að svipmót búsetulandslags framdalsins verði verndað, sem og að þekkingu um fornar þjóðleiðir um svæðið verði viðhaldið. Framtalurinn er suðaustasti hluti Skorradalsvatns auk dalsins beggja vegna við vatnið og…Lesa meira

true

Lagt til að leikskólavist verði háð því að börn séu bólusett

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær lögðu fulltrúar Framsóknarflokks í sveitarstjórn fram tillögu þess efni að foreldrum barna á leikskólaaldri verði gert að láta bólusetja börn sín, vilji þau fá dagvistunarpláss fyrir þau á leikskólum í sveitarfélaginu. Var samþykkt samhljóða á fundi sveitarstjórnar að vísa tillögunni til byggðarráðs og velferðarnefndar. Í heild sinni er tillagan…Lesa meira

true

Verkfall fyrir loftslagið á Akranesi

Skólafólk á Akranesi fór í verkfall fyrir loftslagið á Akranesi í dag. Milli 80 og 90 manns voru þar saman komin í hádeginu til að vekja athygli á málstaðnum. Flestir eru á fjölbrautaskólaaldri en þó nokkuð af grunnskólakrökkum líka, allt niður í 5. bekk, sem og eldra fólk sem lokið hefur skólagöngu en brennur fyrir…Lesa meira

true

Vísbendingar um að ferðamönnum fjölgi mest á Vesturlandi

Ferðamenn í Leifsstöð voru ríflega 132 þúsund í febrúar og fækkaði um 8% samanborið við febrúar 2018. Í skammtímahagvísi ferðaþjónustunnar sem Hagstofan gefur út kemur fram að talið er að sú fækkun sem varð á erlendum farþegum í gegnum Keflavíkurflugvöll á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs megi eingöngu rekja til fækkunar ferðamanna. Reiknað er með…Lesa meira

true

Stefnan að fella strompinn í næstu viku

Stefnt er að því að fella sementsstrompinn á Akranesi næstkomandi fimmtudag, 21. mars. Stjórnvöld á Akranesi vinna þessa dagana með lögreglu að áætlun um rýmingar og hvernig girða þurfi svæðið af þegar strompurinn verður felldur. Þá er ljóst að veðrið kemur til með að hafa sín áhrif á endanlega dagsetningu. Þetta kom fram í máli…Lesa meira

true

Færði Krabbameinsfélagi Akraness peningagjöf

Soffía G. Þórðardóttir ljósmóðir fagnaði nýverið 70 ára afmæli sínu. Á afmælisdaginn afþakkaði hún gjafir en hafði þess í stað söfnunarkassa og tók við frjálsum framlögum. Alls söfnuðust í kassann 208.500 kr., sem Soffía ákvað að láta renna til Krabbameinsfélags Akraness og heiðra þannig minningu föður síns, Þórðar Jónssonar og systur sinnar, Agnesar Sigrúnar Þórðardóttur,…Lesa meira

true

Snæfellingar enduðu mótið á sigri

Snæfellingar gerðu góða ferð austur til Hornafjarðar og sigruðu Sindra, 63-69, í lokaleik Hólmara í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Liðin fylgdust af framan af fyrsta leikhluta og staðan var jöfn, 9-9, eftir sex mínútna leik. Þá náðu Snæfellingar góðum kafla og höfðu þægilegt forskot eftir upphafsfjórðunginn, 25-12. Hólmarar voru áfram sterkari í…Lesa meira