
Jón Einar Jónsson frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands í Stykkishólmi heimsótti nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði í morgun. Að því er fram kemur í frétt á vef skólans aðstoðaði Jón Einar nemendur við krufningu á æðarfugli. Nemendur skoðuðu líffærin og opnuðu maga og skoðuðu hvað það er sem æðarfuglinn étur. Í janúar fengu nemendur einnig…Lesa meira








