Fréttir

true

Tæplega 48 milljóna króna hagnaður af rekstri KFÍA

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA var haldinn síðastliðið mánudagskvöld. Fundurinn hófst á stuttu ávarpi Guðna Bergssonar, formanns Knattspyrnusambands Íslands. Að svo búnu fór Magnús Guðmundsson, stjórnarformaður KFÍA, yfir ársskýrslu félagsins. Sigurður Þór Sigursteinsson framkvæmdastjóri og Heimir Fannar Gunnlaugsson fóru síðan yfir ársreikning síaðsta árs og kynntu áætlun ársins 2019. Í ársreikningi og ársskýrslu kemur fram að tekjur…Lesa meira

true

Minningarsjóður Heimis formlega skráður

Nú hafa bakverðir Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar komið honum formlega á laggirnar og sýslumaður gefið út leyfisbréf. Eins og kunnugt er voru fyrstu tónleikar á vegum sjóðsins haldnir í vetur í Reykholtskirkju. Markmið sjóðsins er að heiðra minningu Heimis Klemenzsonar tónlistarmanns frá Dýrastöðum og styrkja með aflafé ungt og efnilegt tónlistarfólk í Borgarfirði. „Við í stjórn…Lesa meira

true

Íbúum boðið til kynningarfundar á Rótarýdeginu

Rótarýdagurinn verður sem fyrr haldinn hátíðlegur laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Dagurinn er á alþjóðavísu nýttur til að vekja athygli á starfi hreyfingarinnar og verkefnum sem hún beitir sér fyrir. Þórir Páll Guðjónsson er forseti Rótarýklubbs Borgarness. Klúbburinn býður íbúum og öllum áhugasömum á kynningarfund næstkomandi laugardag á Hótel Borgarnesi. Þar mun fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir flytja…Lesa meira

true

Íbúar telja gatnamótin hættuleg

Nokkrar umræður sköpuðust í íbúahópi Akurnesinga í vikunni um gatnamót Dalbrautar, Esjubrautar og Smiðjuvalla þar í bæ. Einn íbúi vakti máls á því að aldraður faðir hennar hefði lent þar í árekstri fyrir skemmstu og spurði hvort einhverjar vissi hvort áætlanir væru uppi um úrbætur á gatnamótunum. Voru margir þeirra sem lögðu orð í belg…Lesa meira

true

Aukasýningar á Leitinni í Bíóhöllinni

Leikritið Leitin, verk nemenda Brekkubæjarskóla, hefur nú verið sýnt fjórum sinnum fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi. Tvær aukasýningar hafa verið ákveðnar á verkinu. Fimmta sýning verður á morgun, fimmtudaginn kl. 18, og eru að sögn starfsmanna skólans einungis nokkrir miðar óseldir á hana. Sjötta sýning verður laugardaginn 23. febrúar klukkan 15.  Miðasala er…Lesa meira

true

Tveir sjóðir í stað eins

Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar hefur verið lagður niður. Í hans stað hafa verið stofnaðir tveir nýir sjóðir sem taka við hlutverki hans; annars vegar Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar og hins vegar Íþrótta- og æskulýðssjóður Hvalfjarðarsveitar. Frá þessu er greint á heimasíðu sveitarfélagsins. Úthlutun úr nýju sjóðunum verður einu sinni á ári og er það breyting frá því sem áður…Lesa meira

true

Kaka ársins með bitter marsipani og appelsínutröffel

Landssamband bakarameistara efndi nýlega til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin var haldin í…Lesa meira

true

Hvalveiðar heimilaðar næstu fimm árin

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra hefur undirritað reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019–2023. „Ákvörðun þessi byggist á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, en jafnframt hafði ráðherra hliðsjón af nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu sem var að berast. Við ákvörðun sína studdist ráðherra jafnframt við minnisblað…Lesa meira

true

Brotist inn í bústað í Þrætuási

Tilkynnt var um innbrot í sumarbústað í Þrætuási í Borgarbyggð á föstudagskvöld. Farið var inn í húsið og þaðan stolið heimabíókerfi og áfengi, að sögn lögreglu. Ekki er vitað hvernig þjófarnir komust inn í bústaðinn, því engin merki eru um að þeir hafi brotið upp hurð eða glugga. För sáust á vettvangi og ummerki í…Lesa meira