Fréttir

true

Lýsa reiði og vonbrigðum með útspil ríkisstjórnarinnar

„Stéttarfélögin fjögur sem leitt hafa yfirstandandi kjaraviðræður, VR, Efling, VLFA og VLFG, lýsa reiði og sárum vonbrigðum með þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði fram á fundi með forseta og varaforsetum ASÍ í dag, 19. febrúar,“ segir í tilkynningu frá félögunum. „Viðræður hafa staðið tæpt eftir að SA lögðu fram tilboð í síðustu viku sem leitt…Lesa meira

true

Tap gegn Fjölni

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Fjölni á útivelli, 89-65, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn stjórnuðu leiknum frá því snemma í fyrsta leikhluta og unnu að lokum öruggan 24 stiga sigur. Snæfellingar skoruðu fyrstu stigin en voru ekki lengi í forystu. Heimamenn héldu Hólmurum stigalausum næstu sex mínúturnar…Lesa meira

true

Öldungaráð stofnað á Akranesi

Velferðar- og mannréttindaráð Akraneskaupstaðar samþykkti á síðasta fundi að óska eftir tilnefningum í öldungaráð bæjarins. Er óskað eftir tilnefningu þriggja fulltrúa frá Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni og einum fulltrúa frá heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Bæjarstjórn mun tilnefna þrjá fulltrúa í öldungaráðið. „Velferðar- og mannréttindaráð leggur áherslu á að við skipun í ráðið verði…Lesa meira

true

Flutningabíll fulllestaður lambahornum valt í Gufufirði

Flutningabíll valt á föstudag í Gufufirði, innst á Hofsstaðahlíð. Óhappið varð þegar flutningabíllinn var að mæta minni bíl. Vegurinn er mjór þar sem óhappið varð, en smávegis snjórastir í köntunum gerðu það að verkum að vegurinn virtist breiðari en hann raunverulega er. Á Reykhólavefnum er greint frá því að á þessum kafla sé vegurinn innan…Lesa meira

true

Strangir á aldurstakmarki á dansleiki

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar síðastliðinn fimmtudag var til umsagnar tillaga félagsmálanefndar sem snýr að hækkun aldurstakmarks á dansleiki úr 16 í 18 ár. Þar segir: „Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir í húsnæði í eigu Dalabyggðar, þar sem áfengi er haft um hönd, verði 18 ár. Sama gildi hvort sem…Lesa meira

true

Vatnaskil í jafnvægi framleiðslu og sölu lambakjöts

Sterkar vísbendingar eru nú um að framleiðsla og sala lambakjöts hér á landi nálgist jafnvægi. Samkvæmt bráðabirgðatölum búnaðarstofu Matvælastofnunar hefur sauðfé á landinu fækkað um 28 þúsund, eða um 10% á síðustu tveimur árum, þar af um 6% árið 2018. Á sama tíma eru batnandi horfur í útflutningi á kjöti sem að stórum hluta má…Lesa meira

true

Borgarbyggð og Dalabyggð fá úthlutað til ljósleiðaravæðingar

Sveitarfélög sem tóku þátt í forvali Fjarskiptasjóðs vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt hafa fengið tilboð um samtals 450 milljón króna styrki vegna ársins 2019, ásamt vilyrði um frekari styrki vegna áranna 2020 og 2021 eftir atvikum, með fyrirvara um fjárlög. Fjórtán sveitarfélög eiga nú jafnframt kost á sérstökum byggðastyrk, samtals 150 milljónum króna. Hér á Vesturlandi…Lesa meira

true

Kúabændur kolfelldu afnám kvóta í mjólkurframleiðslu

Niðurstaða er fengin í atkvæðagreiðslu mjólkurframleiðenda um framtíð kvótakerfis í mjólkurframleiðslu. Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð yfir í eina viku, en lauk á hádegi í dag og er niðurstaðan kynnt á vef Bændasamtakanna. Hver mjólkurframleiðandi hafði eitt atkvæði án tillits til fjölda aðstandenda að búinu, aðildar að Bændasamtökum Íslands eða Landssambandi kúabænda. Á kjörskrá voru…Lesa meira

true

Venus með fyrsta kolmunnafarminn

Venus NS er nú við það að koma til hafnar á Vopnafirði með fyrsta kolmunnafarm ársins. Kolmunninn fékkst vestur af Írlandi en þaðan er um 800 sjómílna sigling til Vopnafjarðar. ,Það er veiði eins og er. Aðalveiðin er yfir nóttina en á daginn dreifir kolmunninn sér og veiðin er lítil. Það er misjafnt hve lengi…Lesa meira

true

Frábær sýning fyrir alla aldurshópa

Þessa dagana standa yfir sýningar á leiksýningunni Leitinni í Bíóhöllinni á Akranesi. Sýningin er sett upp af unglingastigi Brekkubæjarskóla og koma allir nemendur sem það vildu auk kennara að henni. Verkið var frumsýnt síðastliðinn föstudag, 15. febrúar. Skessuhorn skellti sér á Leitina á laugardag og mælir hiklaust með sýningunni. Sögusvið verksins er Akraneskaupstaður við upphaf…Lesa meira