Fréttir

true

Óska eftir vitnum að umferðaróhappi

Lögreglan á Vesturlandi óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Akranesvegar og Akrafjallsvegar um kl. 15:25 sl. föstudag, 15. febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar eru vitni að óhappinu beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444-0300 eða í gegnum einkaskilaboð á Facebook.Lesa meira

true

Mikið fjör á Skíðasvæði Snæfellsness

Skíðasvæði Snæfellsness hefur náð að hafa opið í þónokkra daga í röð að undanförnu. Veður hefur verið með ágætum og aðstæður til skíðaiðkunar hinar bestu. Fréttaritari Skessuhorns brá sér í fjallið á föstudag og laugardag um liðna helgi og á laugardaginn voru frábærar aðstæður. Veðrið var ákjósanlegt og gott færi til skíðaiðkunar, enda var ásóknin…Lesa meira

true

Skrifaði starfsfólki Umhverfisstofnunar opið bréf vegna loftmengunar

Ragnheiður Þorgrímsdóttir bóndi á Kúludalsá við Hvalfjörð sendi í gær opið bréf til forstjóra og starfsfólks Umhverfisstofnunar vegna útsleppis mengandi efna frá Grundartanga. „Þegar ég kom út á hlaðið á Kúludalsá í morgun, sunnudaginn 17. febrúar 2019, fann ég í lofti svo mikinn fnyk að ekki var hægt að anda með eðlilegum hætti. Ég forðaði…Lesa meira

true

Umhverfisvaktin vill bæta mengunarmælingar við stóriðjuna

„Umhverfisvaktin við Hvalfjörð skorar á Umhverfisstofnun sem starfsleyfisgjafa og eftirlitsstofnun og Faxaflóahafnir sem eiganda Grundartanga, að halda skaðsemi vegna stóriðju á Grundartanga í algjöru lágmarki með auknu eftirliti og grunnrannsóknum á áhrifum eiturefna á umhverfið. Loftgæðamælingar vegna flúors og brennisteins eru í skötulíki og útsleppi í stórum stíl frá Elkem Ísland er leikur að heilsu…Lesa meira

true

Móta heildarstefnu í almenningssamgöngum

Grunnur að fyrstu heildarstefnu ríkisins um almenningssamgöngur fyrir allt landið hefur verið mótuð og er nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda til 7. mars nk. Starfshópur sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra skipaði leggur til að almenningssamgöngur með flugi, ferjum og almenningsvögnum myndi eina sterka heild og að boðið verði upp á eitt leiðarkerfi fyrir allt…Lesa meira

true

Leitin frumsýnd í Bíóhöllinni

Nemendur unglingadeildar Brekkubæjarskóla á Akranesi hafa undanfarnar vikur staðið í ströngu við æfingar á leiksýningunni Leitinni. Nú er stóra stundin í þann mund að renna upp, því Leitin verður frumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, föstudaginn 15. febrúar, kl. 20:00. Leitin er eftir Samúel Þorsteinsson og Heiðrúnu Hámundardóttur. Leikritið er fullt af tónlist, dansi…Lesa meira

true

Galito tekur að sér veitingarekstur í nýrri frístundamiðstöð

Frá því er greint á vef Golfklúbbsins Leynis á Akranesi að tekist hafi samkomulag við veitingastaðinn Galito um að taka við rekstri veitinga og þjónustu í nýrri frístundamiðstöð sem nú er risin við Garðavöll. „Galito mun reka starfsemina í frístundamiðstöðinni samhliða rekstri veitingastaðar við Stillholt og mun opna formlega þegar Garðavöllur opnar golfvöllinn í vor,…Lesa meira

true

Fjölmargir gefa umsögn um væntanlegt fjölmiðlafrumvarp

Nú þegar aðeins nokkrir klukkutímar eru þar til að frestur til að gefa umsögn um Fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra rennur út á Samráðsgátt stjórnvalda, hafa 17 lýst skoðun sinni á frumvarpinu eða bent á atriði sem lagfæra mætti að þeirra mati. Af þeim eru 11 fulltrúar fjölmiðla, en auk þess Samkeppniseftirlitið, einyrkjar í fjölmiðlun og fleiri. Við…Lesa meira