Fréttir

true

Guðlaug tilnefnd til Steinsteypuverðlauna

Steinsteypufélag Íslands hefur tilnefnd Guðlaugu við Langasand á Akranesi til Steinsteypuverðlaunanna 2019, en laugin var vígð til notkunar í desember. Frá þeim tíma hafa um tvö þúsund gestir nýtt sé laugina. Til Steinsteypuverðlauna bárust 13 tillögur og af þeim valdi félagið fimm mannvirki sem tilnefnd eru til verðlaunanna. Auk Guðlaugar eru það Safnaðarheimilið við Ástjarnarkirkju,…Lesa meira

true

Streyma frá fundum sveitarstjórnar

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í gær var jafnframt í fyrsta skipti sýnt beint frá fundinu á YouTube rásinni Dalabyggð TV. Framvegis verða fundir hreppsnefndar sýndir í beinni útsendingu. Á fundinum voru alls 38 dagskrárliðir til umfjöllunar að meðtöldum fundargerðum nefnda og ráða. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir og tuttugu mínútur. Áhugasamir geta streymt fundinum á…Lesa meira

true

Berserkir fá nýjan bát

Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi fékk á dögunum nýlegan harðbotna slöngubát af gerðinni Ribcraft. „Báturinn er árgerð 2014 og kemur til með að leysa af hólmi eldri bát sveitarinnar, sem var af gerðinni Atlantic 21, árgerð 1985,“ segir Kristján Lár Gunnarsson í samtali við Skessuhorn. „Nýi báturinn er sex metra langur og knúinn áfram af tveimur…Lesa meira

true

Opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar

Síðdegis í gær var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar með opið hús og æfingu í slökkvistöðinni við Kalmansvelli á Akranesi. Auk þess að geta skoðað búnað slökkviliðsins var gestum sýnt þegar slökkviliðsmenn athöfnuðu sig við sviðsett umferðaróhapp. Þurftu þeir að beita klippum á bíl sem lent hafði í óhappi en ökumaður sat fastklemmdur í bílnum. Þá…Lesa meira

true

Leikskólafólk boðaði til baráttufundar á Degi leikskólans

Stjórnendur, kennarar og starfsfólk leikskólanna á Akranesi boðuð til baráttufundar miðvikudaginn 6. febrúar sl., í tilefni af Degi leikskólans. Fundurinn var afar vel sóttur, en milli 70 og 80 manns úr starfliði leikskólanna leikskólanna fjögurra á Akranesi lögðu leið sína á fundinn. Leikskólarnir fjórir eru Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel. Á fundinum voru kjaramál kennara…Lesa meira

true

Jarðvinna við þjóðgarðsmiðstöð boðin út

Framkvæmdasýsla ríkisins hefur kynnt opið útboð vegna jarðvinnu og girðingarvinnu á verksvæði þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. Eins og áður hefur verið rakið í Skessuhorni á málið sér nokkuð langa sögu. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 2001 og árið 2006 var efnt til hönnunarsamkeppni um þjóðgarðsmiðstöðina. Áform um miðstöðina voru sett á ís í kjölfar bankahrunsins 2008. Fyrsta…Lesa meira

true

Amtmannshúsið og síðar Stapahúsið til sölu

Fasteignasalan Miklaborg hefur auglýst til sölu hið sögufræga hús sem í daglegu tali nefnist Stapahúsið og er á Arnarstapa. Húsið er sögufræg húseign, var uppruna byggt árin 1774-1787 fyrir dönsku konungsverslunina á Arnarstapa. Það var síðan tekið niður og endurreist árið 1849 á Vogi á Mýrum þar sem það stóð allt til ársins 1983 að…Lesa meira

true

Norðurlandamót í skák í Borgarnesi um helgina

Norðurlandamótið í skólaskák fer fram í Hótel Borgarnesi um helgina, dagana 15.-17. febrúar. Teflt verður í fimm aldurflokkum frá 11 ára og yngri til 20 ára og yngri. Fulltrúar allra Norðurlandanna mæta til leiks, alls 60 keppendur, eða tíu frá hverju Norðurlandanna. Alls koma um 120 gestir til landsins vegna mótsins. Mótið á sér um…Lesa meira

true

Fjárhagsstaðan ekki eins slæm og frambjóðandi til forseta KSÍ vildi meina

“Undanfarið hefur verið fjallað um að staða knattspynufélaga í efstu deildum á Íslandi sé fjárhagslega erfið. Nauðsynlegt er að koma því á framfæri að það á ekki við um öll félögin. Í tilfelli Knattspyrnufélags ÍA er fjárhagsstaðan traust,” skrifa formaður og varaformaður Knattspyrnufélags ÍA í aðsendri grein í Skessuhorni. Tilefni þessara ummæla er ekki síst…Lesa meira

true

Opið hús hjá slökkviliðinu á Akranesi síðdegis í dag

Síðdegis í dag, klukkan 17-19, verður opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar í slökkvistöðinni við Kalmansvelli. Þetta er gert í tilefni 112 dagsins sem var á mánudaginn. Slökkviliðið verður með æfingu og mun m.a. sýna klippibúnað liðsins. Verður bíll klipptur á vettvangi. Þá geta gestir skoðað tækjakost slökkviliðsins og rætt við slökkviliðsmenn.Lesa meira