Fréttir

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Tap eftir spennandi undanúrslitaleik gegn Val   Snæfell og Val mættust í stórskemmtilegum leik í undanúrslitum bikarsins í Laugardalshöll í gærkvöldi. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina bróðurpart leiksins en gríðarsterkt lið Vals hélt sér alltaf inni í leiknum. Valur tók síðan öll völd á vellinum í upphafi lokafjórðungsins. Sá leikkafli varð til þess að Valskonur fóru með…Lesa meira

true

Starfsemi stöðvuð og frekari innkallanir vegna listeríu

„Frekari rannsókn á örverumengun hjá Ópal Sjávarfangi gefur tilefni til að ætla að ekki hafi tekist að uppræta listeríumengun í fyrirtækinu og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Fyrirtækið hefur ákveðið að innkalla allar reyktar afurðir þess úr verslunum, í samráði við Matvælastofnun. Ópal Sjávarfang í Hafnarfirði…Lesa meira

true

Fasteignaverð hækkaði mest á Akranesi

Fasteignaverð á Akranesi hækkaði um 19,2% milli áranna 2017 og 2018. Hvergi annars staðar á landinu varð jafn mikil hækkun fasteignaverðs, samkvæmt Hagsjá Landsbankans sem birt var 13. febrúar. Þar kemur einnig fram að fasteignaverð hækkaði meira í fjórum stærstu bæjarfélögunum utan höfuðborgarsvæðisins en á höfuðborgarsvæðinu sjálfu frá 2017 til 2018. Bæjarfélögin fjögur eru Akraneskaupstaður,…Lesa meira

true

Sterk sjálfsmynd og jákvæð viðhorf eru skilaboð skólaþings

„Hvaða eiginleikum og hæfni viljum við að nemendur sem útskrifast úr Grunnskóla Snæfellsbæjar búi yfir?“ Þessi spurning var rædd í þaula á skólaþingi sem Grunnskóli Snæfellsbæjar bauð til síðastliðinn miðvikudag, 6. febrúar. Að sögn Hilmas Más Arasonar skólastjóra var þátttaka mjög góð og umræður líflegar. Yfir 80 manns mættu á þingið, fólk á öllum aldri…Lesa meira

true

Keiluspilarar sóttu verðlaun á Íslandsmót unglinga

Félagar úr Keilufélagi Akraness gerðu gott mót á Íslandsmóti unglinga í keilu, sem haldið var helgina 9. og 10. febrúar síðastliðna. Krakkarnir sneru heim með sjö verðlaun í heildina, þar af fjóra Íslandsmeistaratitla. Jóhann Ársæll Atlason fagnaði Íslandsmeistaratitli í opnum flokki og hann hafnaði í öðru sæti í 1. flokki pilta. Sindri Már Einarsson varð…Lesa meira

true

Engar Flóasiglingar í sumar

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á síðasta fundi sínum að vinna að útboðsgögnum vegna Flóasiglinga árið 2020. Samhliða skal vinna greinargerð um reynslu af siglingum milli Akraness og Reykjavíkur árið 2017. Þar með er ljóst að ekkert verður af Flóasiglingum á þessu ári. Bæjarstjórn fjallaði um málið á fundi sínum á þriðjudag í síðustu viku.…Lesa meira

true

Borgarbyggð býður yngstu íbúana velkomna með Barnapakka

Sveitarfélagið Borgarbyggð, í samstarfi við fyrirtæki og félagasamtök í héraði, hefur ákveðið að afhenda hér eftir foreldrum nýbura svokallaða Barnapakka. „Það er fagnaðarefni í hverju samfélagi þegar nýr einstaklingur fæðist í heiminn. Hver fæðing og hver nýr einstaklingur er kraftaverk út af fyrir sig enda þótt fæðing þyki ekki síður sjálfsagður hluti af tilverunni eins…Lesa meira

true

Bikarslagur í kvöld

Snæfellskonur mæta Val í undanúrslitum Geysisbikarsins í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni og hefst kl. 20:15. Snæfell tryggði sér farseðilinn í undanúrslitin með sigri á Haukum leik í átta liða úrslitum, 72-68. Valur lagði hins vegar Keflavík með 89 stigum gegn 71 í síðustu umferð bikarsins. Snæfell varð bikarmeistari kvenna í fyrsta…Lesa meira

true

Nýr Hagvísir um fjárhag sveitarfélaga á Vesturlandi

Meirihluti vestlenskra sveitarfélaga kemur vel út í nýrri samantekt sem birt var á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í dag. Ef horft er til allra sveitarfélaga á Vesturlandi þá liggur fjárhagslegur styrkur vestlenskra sveitarfélaga helst í hagfelldum skatttekjum, veltufé frá rekstri og skuldastöðu. Veikleikinn felst aðallega í háum launakostnaði og óhagstæðri íbúaþróun. Sveitarfélög á sunnanverðu…Lesa meira