Fréttir

true

Gæsluvarðhald framlengt vegna stunguárásar

Með dómi hefur Landsréttur framlengt gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sjötugri konu sem grunuð er um tilraun til manndráps á Akranesi í nóvember á síðasta ári. Konunni er gefið að sök að hafa stungið tengdason sinn með hnífi í brjóstkassann. Hún neitar sök og heldur því fram að tengdasonurinn hafi sjálfur gengið að henni og farið þannig á…Lesa meira

true

Innköllun vegna listeríu í graflaxi

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á graflaxi frá Ópal Sjávarfangi vegna greiningar listeríu (Listeria monocytogenes) í laxinum. Fyrirtækið hefur innkallað graflaxinn af markaði í samráði við Matvælastofnun. Um er að ræða tvær vörutegundir af graflaxi. Innköllunin á við allar lotur af Graflaxi frá Ópal Sjávarfangi (bitar, hálf flök, heil flök og sneiðar) sem eru á…Lesa meira

true

Vilja tafalausar viðræður um þjónustu hjúkrunarheimilanna

Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) héldu félagsfund 1. febrúar síðastliðinn. Meðal hjúkrunarheimila sem eiga aðild að samtökunum eru dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og Stykkishólmi, Fellsendi og Silfurtún í Dalabyggð, Höfði Akranesi og Fellaskjól í Grundarfirði. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og heilbrigðisráðuneytið (HBR) að hefja nú þegar markvissar…Lesa meira

true

Bergþór stígur til hliðar sem nefndarformaður

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins í NV kjördæmi, hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt verður að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik…Lesa meira

true

Fór fyrsta hringinn á pari

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hóf leik á Handa Vic Open mótinu í Ástralíu í nótt. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís fór fyrri níu holur Beach vallarins á pari, þar sem hún fékk einn fugl og einn skolla. Á seinni hringnum kom hún sér einu höggi undir parið og hélt því…Lesa meira

true

Sjö komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes í sumar

Fyrsta farþegaskip ársins kemur til hafna Faxaflóahafna föstudaginn 15. mars, en það er farþegaskipið Astoria sem siglir til Reykjavíkur. „Árið 2019 verður tvímælalaust það stærsta hvað varðar skipakomur farþegaskipa og farþegafjölda hingað til lands. Alls er áætluð 201 skipakoma farþegaskipa til Faxaflóahafna með 190.784 farþega,“ segir í frétt frá Faxaflóahöfnum. Fjölgun á skipakomum og fjölda…Lesa meira

true

Stórsigur Snæfells í Vesturlandsslagnum

Snæfell vann stórsigur á Skallagrími, 79-42, þegar liðin mættust í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur gáfu tóninn snemma leiks, voru sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu með átta stigum að honum loknum, 20-12. Skallagrímsliðið minnkaði muninn lítið eitt í upphafi annars leikhluta áður en Snæfellskonur tóku smá rispu og…Lesa meira

true

Líf í tuskunum hjá Ingu Guðjóns

Ingibjörg Guðjónsdóttir, handverkskona á Akranesi, heldur bútasaumssýningu á Bókasafni Akraness, dagana 8. febrúar til 8. mars næstkomandi. Ingibjörg er fædd 1949 og uppalin á Arkarlæk í Skilmannahreppi. Hún flutti til Akraness 16 ára gömul, þar sem hún hefur verið búsett síðan. Ingibjörg, sem alltaf er kölluð Inga, er sjúkraliði og vinnur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á…Lesa meira

true

Átaksverkefnið Lífshlaupið hófst í morgun

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var sett í morgun í tólfta skipti með athöfn sem fram fór í Breiðholtsskóla í Reykjavík. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍÖÍ. Markmið þess er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum…Lesa meira

true

VG er tuttugu ára í dag

Í dag eru tuttugu ár liðin frá stofnfundi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Fundurinn var haldinn í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík, þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Eftir tvo daga hyggst hreyfingin halda afmælisveislu sem fram fer á Grand Hótel í Reykjavík. „Árnaðaróskum rignir nú yfir forystu og starfsfólk VG, þar sem félagar hreyfingarinnar óska hreyfingunni langrar…Lesa meira