Fréttir

true

Töpuðu suður með sjó

Skallagrímur mátti játa sigraðan gegn Keflvíkingum, 104-82, þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Heimamenn náðu snemma nokkurra stiga forystu og höfðu yfirhöndina í upphafi leiks. Þeir náðu góðum spretti undir lok fyrsta leikhluta og leiddu með 13 stigum að honum loknum, 32-19. Heimamenn juku muninn…Lesa meira

true

Hálkublettir á vegum og sumsstaðar skafrenningur

Á vegum á Vesturlandi er nú hálka, hálkublettir eða snjóþekja og sumsstaðar er skafrenningur. Þungfært er frá Fróðárheiði að Arnarstapa á Snæfellsnesi. Uppfært klukkan 9:30: Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna óveðurs en hægt er að komast um Bröttubrekku (60) og Laxárdalsheiði (59). Veðurspá fyrir vestanvert landið gerir ráð fyrir norðanátt næsta sólarhringinn, frost frá 0-8…Lesa meira

true

Sýning nemenda Brekkubæjarskóla frumsýnd 15. febrúar

Nemendur unglingadeildar Brekkubæjarskóla á Akranesi eru um þessar mundir að undirbúa sýningu á leikritinu Leitinni. Verkið er samið af tónmenntakennurunum Heiðrúnu Hámundardóttur og Samúel Þorsteinssyni en þetta er þriðja verkið sem þau semja fyrir nemendur Brekkubæjarskóla. Um 70 nemendur taka á einhvern hátt þátt í sýningunni að þessu sinni. „Við leggjum alltaf mikla áherslu á…Lesa meira

true

Ögn um útfararsiði í Snorrastofu

Snorrastofa býður til fyrirlesturs Þórólfs Sveinssonar á Ferjubakka, Ögn um útfararsiði, þriðjudaginn 12. febrúar næstkomandi í Bókhlöðu Snorrastofu. Fyrirlesturinn fellur í röð stofnunarinnar, Fyrirlestrar í héraði, sem að jafnaði eru einu sinni í mánuði að vetrinum. Þórólfur fjallar mest um húskveðjuna, sið sem kom og fór. Þá verður í fyrirlestrinum fjölmargt annað sem tengist útförum…Lesa meira

true

Fjöldi sumar- og framtíðarstarfa auk verktakastarfs í boði

Ástæða er til að benda á fjölda starfa sem auglýst eru laus til umsóknar í Skessuhorni vikunnar. Elkem Ísland á Grundartanga auglýsir sumarstörf í verksmiðjunni. Sækja þarf um fyrir 15. mars. Veitur auglýsa sömuleiðis eftir jákvæðum og framtakssömum starfskrafti í sumarstarf á Vesturlandi með aðsetur á Akranesi. Þar er umsóknarfrestur 1. mars. Háskólinn á Bifröst…Lesa meira

true

Lýsa áhyggjum af stöðu og þróun leikskólamála á Akranesi

Stjórnendur, kennarar og starfsfólk leikskólanna á Akranesi hafa sent bæjaryfirvöldum ályktun þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum af stöðu og þróun leikskólamála í bænum. Jafnframt er kallað eftir samtali við bæjaryfirvöld þar um. Ályktunin var samþykkt á baráttufundi sem haldinn var á Akranesi í tilefni af Degi leikskólans í gær. Fundinn sóttu milli 70 og…Lesa meira

true

Stefna lögð fram vegna legsteinasafns og pakkhúss í Húsafelli

Atlas lögmenn f.h. Sæmundur Ásgeirsson eigandi Gamla bæjarins á Húsafelli, hafa stefnt Borgarbyggð og Páli Guðmundssyni á Húsafelli II. Í stefnunni er gerð krafa um að felld verði úr gildi ákvörðun þess stefnda, frá 20. desember 2018, um að synja kröfu um að fjarlægja af lóðinni Bæjargili í Húsafelli mannvirki væntanlegs legsteinasafns auk pakkhúss sem…Lesa meira

true

Alþýðusambandið leggur til að stofnaður verði samfélagsbanki

„Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka enda er almenningur langþreyttur á skorti á samkeppni á fjármálamarkaði, miklum kostnaði og háu vaxtastigi hér á landi,“ segir í tilkynningu frá miðstjórn ASÍ. „Með eignarhlut sínum í ríkisbönkum eru stjórnvöld í kjörstöðu til að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka, þar sem hagsmunir neytenda verði hafðir að leiðarljósi…Lesa meira

true

Hver var að aka innkaupakerrunni?

Talsvert hefur snjóað í Borgarnesi að undanförnu eins og víðast hvar á landinu. Þá þarf að ryðja snjó af götum og bílastæðum. Oddný Þórunn Bragadóttir kaupmaður í Kristý í Borgarnesi tók þessa mynd af manngerðum snjóskafli við bílastæðið við Hyrnutorg. Á toppi haugsins trónir innkaupakerra. Myndinni póstaði Oddný á facebook síðu sína og eðli málsins…Lesa meira

true

Áfangastaðaáætlun Vesturlands komin út

Fyrr í vikunni var Skarphéðni Berg Steinarsson ferðamálastjóra afhent eintak af nýrri áfangastaðaáætlun Vesturlands. Áfangastaðaáætlun Vesturlands var unnin af Markaðsstofu Vesturlands fyrir Ferðamálastofu. Í henni er að finna ýmsar upplýsingar um stöðu ferðaþjónustu í landshlutanum og er ætlað að styðja við ábyrga þróun ferðamála á svæðinu. Áfangastaðaáætlanir eru unnar í samvinnu við markaðsstofur landshlutanna. Um…Lesa meira