Fréttir

true

Ungmenna- og tómstundabúðirnar verða fluttar á Laugarvatn

Ungmenna- og tómstundabúðir hafa verið starfræktar á Laugum í Sælingsdal frá árinu 2005 en nú er liggur fyrir að þetta er síðasti veturinn sem búðirnar verða starfræktar þar. Leigusamningur UMFÍ og Dalabyggðar um starfsemina á Laugum rennur út í lok maí á þessu ári. UMFÍ hefur gengið frá samningi við Bláskógabyggð um húsnæði í íþróttamiðstöð…Lesa meira

true

Hefur trú á að hægt sé að gera stóra hluti með fjarhjúkrun um síma

Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni ætlar stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrennis að standa fyrir því að birta greinar eftir hjúkrunarfræðinga í Skessuhorni. Greinarnar verða birtar jafnt og þétt yfir afmælisárið og í þeim munu lesendum fá smá innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir…Lesa meira

true

Enn verður frestun á útboði vegna sjúkrabifreiðakaupa

„Opnun útboðs vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabílum sem átti að fara fram 7. febrúar sl. hefur verið frestað til 13. mars næstkomandi,“ segir í sameiginlegri tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi. „Unnið er að samkomulagi milli þessara aðila um lyktir samnings um útvegun og rekstur sjúkrabíla sem Rauði krossinn hefur sinnt til fjölda ára.…Lesa meira

true

Spýja féll úr hlíðum Akrafjalls

Síðastliðinn föstudag féll lítið snjóflóð úr norðvesturhlíðum Akrafjalls, ofantil á móts við Reynisrétt. Frá þessu var greint á Facebook síðu Björgunarfélags Akraness þar sem meðfylgjandi mynd var birt. „Þetta er góð áminning. Snjóflóð geta fallið í hvaða brekku sem er, sé snjór til staðar og réttar veðuraðstæður, en algengt í 30-60 gráðu halla.“ Björgunarfélagsfólk notar…Lesa meira

true

Fjarverurnar sanna gildi sitt

Skessuhorn greindi frá því í desember síðastliðinn þegar Fjölbrautaskóli Snæfellinga festi kaup á svokölluðum fjarverum. Lýsa mætti fjarverunum sem nokkurs konar vélmenni á hjólum, með skjá og myndavél. Sá sem notar  búnaðinn getur verið hvar sem er í heiminum við tölvu og andlit hans sést á skjá fjarverunnar. Viðkomandi getur síðan fært fjarveruna til innan…Lesa meira

true

Víða hálka, hálkublettir og snjóþekja á vegum

Á Vesturlandi er víða hálka á vegum, hálkublettir eða snjóþekja og sums staðar skafrenningur. Hálka og Skafrenningur er á Holtavörðuheiði og slæmt skyggni, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar. Ófært er um Fróðárheiði, skv. töflu Vegagerðarinnar um færð í landshlutanum. Víðast eru vegir greiðfærir á Suðvesturhorni landsins en hálkublettir eru á Mosfellsheiði og…Lesa meira

true

Hættumerkingum skotelda ábótavant

„Engir skoteldar af þeim 25 sem voru skoðaðir í eftirliti Umhverfisstofnunar milli jóla og nýárs reyndust merktir með fullnægjandi hætti,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni. „Vegna sprengihættu sem stafar af skoteldum ber að merkja þá með hættumerkinu „Sprengifimt“ í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablanda. Þá skulu…Lesa meira

true

„Hurðafarsi eins og þeir gerast bestir“

Leikdeild Umf. Skallagríms ætlar að færa Fullkomið brúðkaup á fjalirnar í vetur. Sýnt verður í félagsheimilinu Lyngbrekku og frumsýning er föstudagskvöldið 22. febrúar næstkomandi. Fullkomið brúðkaup er eftir Robin Hawdon og þýðandi er Örn Árnason. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. „Fullkomið brúðkaup er hurðafarsi eins og þeir gerast bestir og býður upp á að það…Lesa meira

true

Ætla að ferðast saman í kjördæmaviku

„Nú í kjördæmaviku mun þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefja hringferð um landið undir yfirskriftinni „Á réttri leið – hittumst á heimavelli,“ sem varir næstu vikur og mánuði.“ Hér á Vesturlandi eru fyrirhugaðir fimm fundir í mars. „Alls mun þingflokkurinn heimsækja yfir 50 bæi í öllum landsfjórðungum þar sem ýmist verða haldnir fundir eða vinnustaðir heimsóttir,“ segir í…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á ISPS Handa Vic Open mótinu í Ástralíu, en mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís lék fyrsta hring mótsins á pari og annar hringurinn var leikinn í nótt. Hún byrjaði ekki vel og fékk skramba strax í upphafi. Henni tókst að koma sér aftur niður á…Lesa meira