Fréttir

true

Samsýning um arkitektúr og Sementsreit opnuð á Akranesi

Klukkan 17 í dag verður í verslunarmiðstöðinni við Smiðjuvelli á Akranesi opnuð samsýning nemenda á þriðja ári við umhverfisskipulagsbraut LbhÍ á Hvanneyri og nemenda á þriðja ári í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Efnt er til þessarar sýningar í samstarfi við Akraneskaupstað enda verkin sem til sýnis verða tengd Akranesi, einkum Sementsreitnum sem…Lesa meira

true

Ný útgáfa af íslenskum vegabréfum

Framleiðsla nýrra vegabréfa hefst hjá Þjóðskrá Íslands á morgun, 1. febrúar. Eldri vegabréf halda gildi sínu þar til þau renna út og því þurfa handhafar vegabréfa ekki að sækja um ný nema eldri vegabréf séu runnin út. Ný útgáfa vegabréfa hefur verið í undirbúningi síðan 2015. Stofnkostnaður er um 200 milljónir króna og var fjármagnaður…Lesa meira

true

Urðarfellsvirkjun formlega tekin í notkun

Síðastliðinn laugardag var sannkallaður hátíðisdagur í Húsafelli í Borgarfirði. Veisla í tilefni 60 ára afmæli Bergþórs Kristleifssonar ferðaþjónustubónda hófst með því að gestir mættu í stöðvarhús Urðarfellsvirkjunar í Reyðarfellsskógi. Þar var virkjunin tekin í notkun með formlegum hætti. „Það mættu að vísu hvorki prestur né ráðherra. Virkjunin hefur verið í rekstri allt frá 20. mars…Lesa meira

true

Nytjamarkaðurinn Búkolla fagnar fyrsta tugnum

Þriðjudaginn 29. janúar voru tíu ár liðin frá því nytjamarkaðurinn Búkolla á Akranesi var fyrst opnaður. Af því tilefni leit Skessuhorn við í Búkollu og ræddi við Ingibjörgu Elfu Sigurðardóttur, forstöðukonu Búkollu, og Guðmund Pál Jónsson, forstöðumann Fjöliðjunnar á Akranesi. „Búkolla varð til í samvinnu Fjöliðjunnar á Akranesi, Endurhæfingarhússins HVER, Rauða kross deildar Akraness, Sjúkrahússins…Lesa meira

true

Rætt við nýjan hótelstjóra á Glym í Hvalfirði

Margrét Rósa Einarsdóttir tók nýverið við stjórn Hótels Glyms í Hvalfirði. Margrét er fædd og uppalin í Reykjavík en hún á ættir að rekja vestur á Mýrar og var alltaf með annan fótinn á bænum Ölvaldsstöðum þegar hún var barn. Hún býr nú í Mosfellsdal og á tvo uppkomna syni. Margrét Rósa er framreiðslumeistari að…Lesa meira

true

Kristjana póstur lætur af störfum eftir 40 ára feril

Um áramótin urðu tímamót í lífi Kristjönu Þórarinsdóttur og um leið íbúa Hvalfjarðarsveitar þegar hún lét af störfum sem landpóstur sunnan Skarðsheiðar, eftir tæp 40 ár í starfi. Hún hefur borið út bréf og böggla til íbúanna síðan 1. maí 1979. Á þeim tíma hefur hún fylgst með börnum í sveitinni vaxa úr grasi og…Lesa meira

true

Ráðherra vill flýta þrífösun rafmagns á Mýrum og Skaftárhreppi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hyggst leggja til þriggja ára átak til að flýta þrífösun rafmagns í væntanlegri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2020-2024. Í áætluninni verður lögð áhersla á að ljúka þrífösun á Mýrum og í Skaftárhreppi. Í vilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að á Mýrum fari saman brýn þörf vegna landbúnaðar…Lesa meira

true

Töluvert frost í spákortunum næstu daga

Spáð er venju fremur köldu á landinu öllu næstu dagana. Í dag verður norðanátt, víða 8-13 m/s og él á norðanverðu landinu, en léttskýjað sunnan heiða, en stöku él allra syðst fram eftir degi. Svipað veður verður á morgun, snjókoma eða él fyrir norðan, en léttskýjað sunnanlands og áfram kalt. Á föstudag gengur norðanáttin niður,…Lesa meira

true

Ráðherra hafnar beiðni Brákarhlíðar eftir tveggja ára umhugsun

Á fundi stjórnar Brákarhlíðar í Borgarnesi 24. janúar síðastliðinn var á kynnt svarbréf sem barst frá Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við erindi sem hjúkrunarheimilið sendi ráðherra í febrúar fyrir tveimur árum. Erindið var tvíþætt. Annarsvegar ósk um að bæta við fjórum nýjum rýmum í húsakynnum Brákarhlíðar og hinsvegar að fjölga hjúkrunarrýmum og fækka þá á móti…Lesa meira

true

Ísólfur Haraldsson stendur á fertugu

Ísólfur Haraldsson, athafnamaður á Akranesi, fagnar fertugsafmæli sínu laugardaginn 2. febrúar næstkomandi. Ísólfur er fæddur þann dag árið 1979, sonur Haraldar Sturlaugssonar og Ingibjargar Pálmadóttur. Hann hefur alla tíð búið á Akranesi, ólst upp á Vesturgötu 32a og fyrir nokkrum árum síðan keypti hann húsið. Þar unir Ísólfur hag sínum vel ásamt Aldísi Birnu Róbertsdóttur,…Lesa meira