Fréttir

true

Verið að hreinsa eftir lágarenning næturinnar

Samkvæmt Vegagerðinni er nú vetrarfærð á öllu landinu, ýmist hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð og víða verið að hreinsa eftir nóttina. Hér á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja og víða skafrenningur. Þungfært er frá Vegamótum að Heydalsafleggjara en verið að hreinsa.Lesa meira

true

Fé heimt af fjalli eftir að snjó tók að festa

Bændur í uppsveitum Borgarfjarðar hafa víða heimt fé að undanförnu, en sökum aurbleytu og slæmrar færðar til fjalla hefur frá því fyrir jól reynst erfitt að hafa hendur í hári útigangskinda. Nýverið náðust til dæmis 30 útigengnar kindur í landi Örnólfsdals í Þverárhlíð og dágóður hópur í landi Hermundarstaða. Sömuleiðis var í liðinni viku hópi…Lesa meira

true

Þjóðahátíð haldin í Borgarnesi á sunnudaginn

Félag nýrra Íslendinga gengst fyrir árlegri þjóðahátíð sunnudaginn 3. febrúar klukkan 14-17. Hátíðin verður að þessu sinni haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Sem fyrr er það Pauline McCarthy, formaður Félags nýrra Íslendinga, sem skipuleggur hátíðina. „Það verður fólk frá tuttugu löndum sem kemur og kynnir sín þjóðlönd með…Lesa meira

true

Hrossastóð valda hættu á vegum

Nokkur mál tengt hrossum voru bókuð í dagbók lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Ung manneskja datt af hestbaki í reiðhöllinni í Staðarhúsum í Borgarhreppi. Var hún flutt með sjúkrabíl undir læknishendur en meiðsli hennar eru ekki talin alvarleg. Þrisvar sinnum í vikunni sem leið var lögreglu gert viðvart um hrossastóð á vegum. Tilkynnt…Lesa meira

true

Tveir keiluspilarar frá Akranesi í ungmennalandsliðið

Keilufélag Akraness á tvo fulltrúa í ungmennalandsliðinu í keilu, þá Jóhann Ársæl Atlason og Matthías Leó Sigurðsson. Tilkynnt var um valið á föstudaginn. Framundan eru tvö verkefni hjá ungmennalandsliðinu, annars vegar vináttuleikar í Katar 11. – 17. febrúar og síðan Evrópumót unglinga 18 ára og yngri í Vínarborg 13.-22. apríl. Jóhann Ársæll og Matthías Leó…Lesa meira

true

Segja viðveru löglærðra fulltrúa ekki nógu mikla

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar fjallaði á síðasta fundi sínum um starfsemi embættis Sýslumanns Vesturlands á Akranesi. Ítrekaði ráðið athugasemdir sínar við þjónustustig sýsluskrifstofunnar á Akranesi. Telur ráðið viðveru löglærðs fulltrúa sýslumanns of litla og skorar á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra að tafarlaust verði ráðin bót í máli. „Bæjarráð telur óásættanlegt með öllu að íbúar á Akranesi, sem…Lesa meira

true

Fjallað um Viðeyjarrannsókn í Snorrastofu í kvöld

Í kvöld, þriðjudaginn 29. janúar, mun Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytja fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Fornleifarannsóknin í Viðey 1987–1995. Tilurð klausturstofnunar”. Fyrirlesturinn, sem er hluti sk. „Fyrirlestra í héraði“, verður fluttur í Bókhlöðu Snorrastofu og hefst kvöldstundin kl. 20:30. Aðgangur er kr. 500. Gerð verður grein fyrir fornleifarannsókn í Viðey, sem Margrét…Lesa meira

true

Northern Wave og Plan-B Art Festival tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Frá árinu 2005 hafa Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík veitt viðurkenningu í nafni Eyrarrósarinnar til afburða menningarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósinni er ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Alls bárust 30 umsóknir um Eyrarrósina 2019 hvaðanæva af landinu en sex þeirra…Lesa meira

true

Snjóþekja og víða skafrenningur

Vetrarfærð er um allt land, hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er víðast hvar á Vestfjörðum sem og austur á Héraði og þungfært er á Þjóðvegi 1 norðan Egilsstaða og yfir Fjarðarheiði. Unnið er að mokstri um allt land. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja og skafrenningur víða. Þæfingsfærð er sunnan Vegamóta að Heydalsvegi.Lesa meira

true

Borgarnes borðar saman í þriðja sinn

Heiðrún Bjarnadóttir í Borgarnesi fór af stað með viðburð síðastliðið haust sem hún kallar „Borgarnes borðar saman“. Íbúar geta þá hist yfir einni máltíð í mánuði og borðað saman án tilstands eða fyrirhafnar. Hugmyndina fékk Heiðrún þegar hún bjó í Danmörku en þar tíðkast að fólk hittist í félagsheimilum og borði saman kvöldmat. Sjálfboðaliðar taka…Lesa meira