Fréttir

true

Hættir hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins

Þórhildur Þorsteinsdóttir sauðfjárbóndi á Brekku í Norðurárdal hefur eftir nærri sex ár sem framkvæmdastjóri hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins sagt starfi sínu lausu. Þórhildur tók upphaflega til starfa hjá Framleiðnisjóði í september 2006 sem starfsmaður á skrifstofu. Fimm árum síðar var hún gerð að skrifstofustjóra og að lokum framkvæmdastjóra. „Ég mun ljúka störfum í vor eða sumar,…Lesa meira

true

Flutningabílar rákust saman við Glerárskóga

Óhapp varð um átta leytið í gærkvöldi þegar tveir vöruflutningabílar voru að mætast á þjóðveginum við Glerárskóga í Dölum. Svo virðist sem hurð á flutningakassa annarrar bifreiðarinnar hafi opnast með þeim afleiðingum að hún slóst harkalega utan í stýrishús hinnar bifreiðarinnar. Framrúðan bílstjóramegin mölbrotnaði við höggið og rigndi glerbrotum yfir bílstjórann. Samkvæmt upplýsingum lögreglumanns á…Lesa meira

true

Folaldasýning framundan í Söðulsholti

Folaldasýning verður haldin í Söðulsholti á Snæfellsnesi á morgun, laugardaginn 26. janúar, og hefst klukkan 13. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og gestir velja fallegasta folaldið. Hver skráning kostar þúsund krónur og er hægt að skrá hjá Einari í síma 899-3314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is. Sýningin er opin öllum. Við skráningu þarf að gefa…Lesa meira

true

Borgnesingar rændir sigrinum

Skallagrímur heimsótti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Um háspennuleik var að ræða en eftir æsispennandi lokamínútur tókst ÍR-ingum að stela sigrinum, 96-95. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Eftir eftir um fimm mínútna leik náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 31-19. Skallagrímsmenn minnkuðu muninn…Lesa meira

true

Nýju snjóruðningstækin reynast vel

Snjóruðningstæki sáust í fyrsta skipti á þessu ári á götum Ólafsvíkur á mánudaginn í liðinni viku. Það eru bræðurnir í B.Vigfússyni ehf. sem sjá um að ryðja götur bæjarins. Vigfús Þráinn Bjarnason vélamaður sagði í samtali við Skessuhorn að þetta væri í fyrsta skiptið sem þeir notuð nýju tækin að einhverju ráði, eftir að fyrirtækið…Lesa meira

true

Rykmengun hefur aukist í göngunum

Vegfarendur sem daglega aka í gegnum Hvalfjarðargöng hafa tekið eftir að rykmengun í Hvalfjarðargöngum hefur aukist upp á síðkastið. Velta þeir fyrir sér hvort ástæðan sé aukinn flutningur fokgjarnra jarðefna um göngin, eða hvort Vegagerðin hafi dregið úr notkun blásara sem ætlað er að viðhalda stöðugum loftskiptum. Íbúi á Vesturlandi, sem daglega ekur göngin, sagði…Lesa meira

true

Fjallað um Viðeyjarrannsókn í Snorrastofu

Þriðjudaginn 29. janúar nk. mun Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytja fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Fornleifarannsóknin í Viðey 1987–1995. Tilurð klausturstofnunar”. Fyrirlesturinn, sem er hluti svokallaðra „Fyrirlestra í héraði,“ verður fluttur í Bókhlöðu Snorrastofu og hefst kvöldstundin kl. 20:30. Aðgangur er kr. 500. Gerð verður grein fyrir fornleifarannsókn í Viðey, sem Margrét stjórnaði…Lesa meira

true

Hertar reglur um tóbaksnotkun á skólaböllum

„Í samráði við foreldrafélag FVA og í samræmi við reglur annarra framhaldsskóla hefur nú verið ákveðið að allt tóbak/rafrettur/veip sem nemendur taka með sér á skólaböll NFFA verður gert upptækt og afhent stjórnendum FVA,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Fjölbrautaskóla Vesturlands sem send var út í dag. Árlegt nýársball NFFA fer fram á Gamla kaupfélaginu…Lesa meira

true

ASÍ vill róttækar breytingar á skattkerfinu

Á fundi miðstjórnar ASÍ 23. janúar sl. voru samþykktar tillögur sambandsins um breytingar á skattkerfinu. Markmið breytinganna er að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu. „Rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017 sýnir að skattbyrði hinna tekjulægstu hefur hækkað mest á undanförnum árum og dregið hefur úr jöfnunarhlutverki…Lesa meira

true

Ljúfir tónar á bóndadaginn

Tónlistarskólinn á Akranesi býður til hádegistónleika á bóndadaginn í skólanum. „Hvernig væri að bjóða bóndanum á hádegistónleika föstudaginn 25. janúar klukkan 12.10?  Nemendur í tónlistarskólanum töfra fram ljúfa tóna og konur úr kvennakórnum Ymi bera fram heita og góða súpu sem seld er á 1000 krónur. Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá Tónlistarskólanum á Akranesi.Lesa meira