Fréttir

true

Ferðablaðið Travel West 2019-2020

Í apríl í vor mun útgáfuþjónusta Skessuhorns gefa út Ferðablaðið Travel West Iceland 2019-2020 á íslensku og ensku. Skessuhorn er í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands um útgáfuna og mun MV ekki gefa út annan kynningarbækling á þessu ári. Blaðið verður litaprentað í 60.000 eintökum í A5 broti. Vesturland var valið „Vetraráfangastaður Evrópu“ árið 2018 af…Lesa meira

true

Kannað hvaða hópur eldri borgara stendur höllustum fæti

Verst settu einstaklingarnir í hópi aldraðra eru þeir sem hafa takmörkuð réttindi í almannatryggingum á Íslandi vegna fyrri búsetu erlendis, hafa áunnið sér lítil eða engin réttindi til greiðslna úr lífeyrissjóðum, lifa eingöngu eða nánast eingöngu á bótum almannatrygginga, eða búa í leiguhúsnæði eða mjög skuldsettu eigin húsnæði. Líklegt þykir að hluti hóps aldraðra falli…Lesa meira

true

Vignir Snær er Íþróttamaður HSH 2018

Vignir Snær Stefánsson knattspyrnumaður úr Víkingi Ólafsvík var kjörinn Íþróttamaður HSH 2018, en kjörinu var lýst í Stykkishólmi síðastliðinn föstudag. Íþróttamenn úr einstaka íþróttagreinum voru jafnframt heiðraðir fyrir góðan árangur auk þess sem veitt var viðurkenning fyrir vinnuþjark ársins. Eftirtaldir hlutu viðurkenningar: Blakmaður HSH – Lydía Rós Unnsteinsdóttir , Umf. Grundarfjarðar Hestaíþróttamaður HSH – Siguroddur…Lesa meira

true

Farðu á þinn stað – frumsýning á Söguloftinu

Á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi var í gærkveldi frumsýndur einleikurinn Farðu á þinn stað, minningar Theodórs Kristins Þórðarsonar, í leikstjórn Geirs Konráðs Theodórssonar. Sjálfur kynnir höfundurinn og eini leikarinn í sýningunni verkið sem sjálfsævilegan einleik þar sem ferðast er allt frá Kínahverfinu í Borgarnesi og fram á Ystu Nöf þar sem hann nú býr…Lesa meira

true

Bjarni Þór er Skagamaður ársins 2018

Þorrablót Skagamanna var haldið í Íþróttahúsinu við Vesturgötu í gær í umsjón Club-71. Húsfyllir var og góð stemning. Meðal fastra liða var útnefning Skagamanns ársins. Að fengnum tillögum er það bæjarráð sem staðfestir valið og kynnti Elsa Lára Arnardóttir formaður þess niðurstöðuna. Bjarni Þór Bjarnason fékk verðlaunin fyrir að vera listamaður í fremstu röð og…Lesa meira

true

Vetrarfærð um allt land

Vetrarfærð er í öllum landshlutum samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun. Víðast er hálka eða hálkublettir. Hæglætisveður er um allt land en töluvert frost. Veðurstofan reiknar þó með breytingum þegar líður á daginn. Á vegum á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á aðalleiðum en snjóþekja á nokkrum fáfarnari vegum.  Lesa meira

true

Verða að tilkynna um hljóðritun símtala

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína í máli nr. 28/2018 um hljóðritun símtals án tilkynningar. Ákvörðunin varðar kvörtun neytanda þess efnis að símtal hans við félagið Islandus ehf. var hljóðritað án hans vitundar en samkvæmt fjarskiptalögum er hljóðritun símtals óheimil án þess að viðmælanda sé tilkynnt um það. „Islandus ehf. er ekki opinber stofnun…Lesa meira

true

Pönnukökur víða á borðum í dag

Meðal fastra liða í fjáröflun Soroptimistaklúbbs Akraness er gríðarmikill pönnukökubakstur daginn fyrir bóndadag. Fyrirtæki kaupa þá rjómapönnsur eða sykraðar og fá ekið heim að dyrum að morgni bóndadags. Klúbbkonur höfðu því í nægu að snúast í gær og bökuðu á fimmta þúsund ilmandi pönnukökur. Þær smökkuðust með ágætum – það getur ritstjórn Skessuhorns staðfest. Bændur…Lesa meira

true

Hrósa Reykhólahreppi en hnýta í Vegagerðina

Stjórn Landverndar hrósar sveitarstjórn Reykhólahrepps fyrir að hafa sýnt umhverfinu umhyggju með því að taka til skoðunar nýja leið vegna veglagningar í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu Landverndar. Um leið átelur stjórn samtakanna Vegagerðina fyrir að sýna ekki sömu framsýnu viðhorf og sveitarstjórn til nýrra hugmynda um endurbætur á Vestfjarðavegi, sem samtökin segja að…Lesa meira

true

Boða verklegar framkvæmdir fyrir 128 milljarða

Á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag kynntu fulltrúar tíu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á þessu ári. Samtals er gert ráð fyrir framkvæmdum að upphæð 128 milljarðar króna. Það er 49 milljarða króna hærri upphæð en kynnt var á Útboðsþingi síðasta árs. Fram kom að Reykjavíkurborg hyggst framkvæma á árinu…Lesa meira