Fréttir

true

Vill vindhraðamælingar við Borgarfjarðarbraut

Jón Ólafsson á Báreksstöðum í Andakíl hefur vakið máls á nauðsyn þess að komið verði upp vindhraðamælingum á þekktum roksvæðum við Borgarfjarðarbraut til að bæta megi umferðaröryggi. Kom hann hreyfingu á málið með því að skrifa byggðarráði Borgarbyggðar. Byggðarráð tók erindið fyrir á fundi í liðinni viku, þakkaði Jóni góða ábendingu, og fól sveitarstjóra að…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn aftur til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA gekk í dag frá samningi við sóknarmanninn Tryggva Hrafn Haraldsson. Hann gengur til liðs við ÍA frá Halmstad í Svíþjóð, þar sem hann hefur leikið undanfarið eitt og hálft ár eða svo. Tryggvi á að baki 27 leiki með Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni og í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Tryggvi er…Lesa meira

true

Landsmenn ríflega 357 þúsund

Í lok síðasta árs bjuggu 357.050 manns á Íslandi; 182.870 karlar og 174.180 konur. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 228.260 en 128.780 utan þess. Þannig er hlutfall þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins komið niður í um 36%. Í tölum Hagstofunnar um búferlaflutninga kemur fram að brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru fimm umfram aðflutta á síðasta ársfjórðungi…Lesa meira

true

Fjórir hætt komnir þegar ís gaf sig á Meðalfellsvatni

Fjórir menn féllu niður um ís á Meðalfellsvatni á sunndudaginn, en þeir voru við myndatöku á nýjum veiðiþætti fyrir sjónvarpsstöðina Hringbraut. Fréttatíminn greindi fyrst frá atvikinu. Verið var að kvikmynda dorgveiði en þá er boruð hola á ísinn og veitt niður um hana. Einn fjórmenninganna var Gunnar Bender veiðifréttamaður: „Ég fór bókstaflega á bólakaf og…Lesa meira

true

Mikilvægt að hreinsa frá sorpílátum

Töluvert hefur snjóað víða um land að undanförnu. Af þeim sökum er afar mikilvægt að fólk hreinsi vel frá sorptunnum heimila og fyrirtækja og létti þannig eins og kostur er störf sorphirðufólks. Þetta á við jafnt í dreifbýli sem þéttbýli.Lesa meira

true

Gerðu gott mót á Reykjavík International Games

Reykjavik International Games fóru fram í Laugardalslaug um helgina. Um er að ræða eitt stærsta sundmót sem haldið hefur verið á Íslandi, þar sem tæplega 400 sundmenn frá sjö löndum tóku þátt. Sundfélag Akraness átti tíu keppendur í mótinu. „Persónuleg met voru slegin og áttu krakkarnir mörg góð sund yfir helgina,“ segir í tilkynningu á…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Snæfells í höfn

Á föstudagskvöld fengu Snæfellingar loks leikinn sem þeir hafa beðið eftir í allan vetur, þegar þeir tóku á móti Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik. Hólmarar léku afar vel og höfðu heldur yfirhöndina þó leikurinn hafi verið mjög jafn og spennandi á löngum köflum. Að lokum fór svo að Snæfellingar höfðu betur með 89…Lesa meira

true

Frumvarp um skattaafslátt til þriðja geirans

Frumvarp til laga liggur nú fyrir á Alþingi og snýst það um endurgreiðslur til félagasamtaka sem starfa við mál sem snerta almannaheill, svo sem íþróttafélög og björgunarsveitir. Gert er ráð fyrir að félögin geti sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Jón Gunnarsson og mæti hann fyrir því í…Lesa meira

true

Tökur hefjast á morgun í Stykkishólmi

Á morgun mun kvikmyndagerðarfólk á vegum Sagafilm hefja kvikmyndatökur á sjónvarpsþáttaröð sem ber heitið 20/20. Munu þær standa yfir allt til 13. mars samkvæmt áætlun Sagafilm. Tökuliðinu mun fylgja mikið af farartækjum og umstang á nokkrum stöðum í bænum. Fyrirtækið hyggst tilkynna með fyrirvara í hvaða götum verður unnið að tökum.Lesa meira

true

Flokkarnir fá 744 milljónir af fjárlögum

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019. Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni og eru að þessu sinni 744 milljónir króna. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist…Lesa meira