Fréttir

true

Garðfuglatalning Fuglaverndar er framundan

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 25. -28. janúar. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað…Lesa meira

true

Miðflokksþingmenn snúa aftur á þing

„Í kjölfar óvarlegra orða minna, ólögmætrar upptöku á þeim, fjölmiðlaumfjöllunar og vandlætingar í samfélaginu tók ég þá ákvörðun að taka mér leyfi frá þingstörfum, íhuga stöðu mína og hvernig ég gæti safnað vopnum mínum, endurheimt traust kjósenda og haldið áfram þeim störfum sem ég var kjörinn til,“ segir Bergþór Ólason alþingismaður Miðflokksins í NV kjördæmi…Lesa meira

true

Bjartsýni í röðum ferðaþjónustufólks á Vesturlandi

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna var haldið í Kórnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Markmiðið með viðburðinum er að skapa vettvang fyrir starfsfólk ferðaskrifstofa og hótela á suðvesturhorninu að kynnast þeirri fjölbreyttu ferðaþjónustu sem stunduð er á landsbyggðinni, en einnig fyrir ferðaþjónustuaðila að mynda tengsl sín á milli. Mjög góð mæting var á Mannamót og skráðu tæplega þúsund…Lesa meira

true

Káramenn styrkja Minningarsjóð Arnars Dórs

Káramenn ætla að leggja Minningarsjóði Arnars Dórs lið þegar þeir mæta Selfyssingum í Fótbolti.net mótinu í Akraneshöllinni næstkomandi laugardag, 26. janúar. Aðgöngumiðar verða valfrjálsir og gilda annars vegar sem happdrættismiði auk þess sem honum fylgir kaffi og kruðerí. Allur ágóði miðasölunnar mun renna til Minningarsjóðs Arnars Dórs. Þeir sem ekki komast á leikinn geta engu…Lesa meira

true

Skíðabrekkan í Grundarfirði að verða tilbúin fyrir opnun

Snjónum hefur kyngt niður í landshlutanum undanfarna daga við mismikinn fögnuð fólks. Fyrir marga er snjórinn mikið gleðiefni og þá sérstaklega fyrir skíðafólk. Skessuhorn sló á þráðinn til Rutar Rúnarsdóttur, formanns Skíðasvæðis Snæfellsness og spurði hana út í stöðuna á skíðabrekkunni í Grundarfirði. Þar er allt orðið klárt fyrir skíðafólkið en enn vantar meiri snjó…Lesa meira

true

Eins stigs tap í dramatískum leik

Snæfellskonur þurftu að játa sig sigraðar eftir æsispennandi framlengdan leik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi, 88-87. Leikið var í Garðabæ. Stjarnan hafði undirtökin í fyrsta leikhluta og níu stiga forskot að honum loknum, 22-13. Snæfellskonur byrjuðu annan fjórðunginn af miklum krafti og minnkuðu muninn í eitt stig áður en hann var hálfnaður,…Lesa meira

true

Vetrarfærð á vegum og færð gæti spillst enn frekar

Vetrarfærð er nú á vegum víðsvegar um landið. Víðast hvar er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og sumsstaðar éljagangur eða snjókoma. Suðvestanlands hvessir heldur þegar líður á morguninn og skefur staðbundið ásamt ofankomu með köflum. Meðal annars verður blint á Kjalarnesi og erfið akstursskilyrði frá um klukkan tíu og fram undir miðjan dag. Þá verður skafrenningur…Lesa meira

true

Nýtt riðutilfelli greint í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðstliðnum á bænum Vallanesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. „Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna…Lesa meira

true

Svekkjandi tap Skallagríms

Skallagrímur heimsótti Keflavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu yfirhöndina lengi vel, en Keflvíkingar náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn í lokafjórðungnum, þar sem þær jöfnuðu metin, knúðu fram framlengingu og stálu  sigrinum á endasprettinum. Lokatölur urðu 61-54 fyrir Keflavík. Skallagrímskonur byrjuðu heldur brösulega og hittu illa úr skotum sínum.…Lesa meira

true

Bílasprautun Vesturlands opnuð um mánaðamótin

Þeir Guðmundur Antonsson og Grétar Jónsson hafa undanfarið unnið hörðum höndum að opnun nýs sprautu- og réttingaverkstæðis á Akranesi. Ber það heitið Bílasprautun Vesturlands og er staðsett að Smiðjuvöllum 7. Stefnt er að opnun verkstæðisins föstudaginn 1. febrúar næstkomandi. „Núna erum við að klára að koma okkur fyrir, setja upp og prófa tækin og koma…Lesa meira