Fréttir

true

Styttist í gangsetningu hjá GRun

Nú er allt á fullu í nýrri verksmiðju G.Run hf í Grundarfirði. Sjá má iðnaðarmenn í hverjum krók og kima í verksmiðjunni en stefnt er á gangsetningu um næstu mánaðamót. „Það verður öryggisúttekt hjá okkur síðustu vikuna í janúar og strax að henni lokinni hefst vinnsla,“ segir Unnsteinn Guðmundsson vélstjóri og einn eigenda Guðmundar Runólfssonar…Lesa meira

true

Vasaljósalestur á lestrarstund í Brekkubæjarskóla

Lestrarstundin Allir lesa var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi þriðjudaginn 8. janúar síðastliðinn, í tengslum við hina árlegu Bókamessu Brekkubæjarskóla. Á lestrarstund taka allir nemendur og starfsfólk skólans sér bók í hönd á sama tíma og lesa sér til yndisauka í tuttugu mínútur. Eins og gengur og gerist eru nemendur í mismunandi kennslustundum þegar Lestrarstundin…Lesa meira

true

Snæfell mætir Val í undanúrslitum bikarsins

Snæfell og Valur munu etja kappi í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik. Dregið var í bikarnum í hádeginu í dag. Sigurvegari þeirrar viðureignar mun mæta sigurvegaranum úr viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar í bikarúrslitaleiknum. Í karlaflokki mætast annars vegar Stjarnan og ÍR en hins vegar KR og Njarðvík. Bikarúrslitavika KKÍ hefst í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 13. febrúar…Lesa meira

true

Borgarnes Film Freaks hefst á morgun

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks hefst í Borgarnesi á morgun, fimmtudaginn 24. janúar og stendur yfir í þrjá daga. Opnunarkvöldið hefst kl. 18:00 á Sögulofti Landnámsseturs Íslands. Á föstudag og laugardag verður sýnt í Félagsmiðstöðinni Óðali og þá hefjast sýningar kl. 19:00. Allt í allt verða sýndar 29 myndir frá 16 löndum. „Þessa þrjá daga gefst…Lesa meira

true

Of lítill svefn hefur slæm áhrif á börn og ungmenni

Breyting á klukkunni er sögð hafa sérstaklega mikil áhrif á unglinga og ungt fólk sem er ekki að sofa nóg. Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Kristjönu Kristinsdóttur skólasálfræðing í Grundaskóla á Akranesi um væntanlega breytingu á klukkunni og svefn barna og unglinga. „Það er mikið áhyggjuefni hversu lítið ungt fólk…Lesa meira

true

Höfum aldrei kynnst neinu þessu líku áður

Ferðamenn er að finna á hverju strái jafnvel þó hávetur sé. Þessi tveir félagar frá Suður-Kóreu voru nýlega komnir til landsins þegar ljósmyndari Skessuhorns ók fram á bíl þeirra utan vegar við hringtorg í Mosfellsbæ í dag. „Við erum á leiðinni á Þingvelli og ætlum í ferð okkar að reyna að sjá norðurljósin. Það er…Lesa meira

true

Ríflega fimmtugur Land Rover á götuna eftir gagngera viðgerð

Þegar Gísli Einarsson, dagskrárgerðarmaður, lífskúnstner og fyrrum ritstjóri Skessuhorns fagnaði fertugsafmæli sínu 26. janúar 2007 færðu nokkrir vina hans honum að gjöf norðlenskan Land Rover jeppa af árgerð 1966. Bíll þessi hafði þá lokið hefðbundnum skyldustörfum, en hann hafði m.a. dyggilega þjónað þingeyskum bónda við búskap í rúma tvo áratugi, en farið eftir það á…Lesa meira

true

Svekkjandi tap hjá Grundfirðingum

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í körfubolta tók á móti liði Breiðabliks laugardaginn 19. janúar. Breiðablik er á toppi 3. deildar á meðan heimamenn voru í sjöunda sæti fyrir leikinn. Heimamenn komu ákveðnir til leiks og ætluðu að selja sig dýrt og var toppliðið í mestu vandræðum með grimma Grundfirðina. Grundarfjörður leiddi 21-19 eftir fyrsta leikhluta og í…Lesa meira

true

Bjarni ráðinn forstjóri ISI

Skagamaðurinn og fjárfestirinn Bjarni Ármannsson hefur verið ráðinn forstjóri Iceland Seafood International (ISI). Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Bjarni hafi síðan í haust verið stjórnarformaður fyrirtækisins, en taki nú við forstjórastöðunni af Helga Antoni Eiríkssyni.Lesa meira

true

Tíð umferðaróhöpp og hálkuslys

Tíðarfarið er áberandi í verkefnum Lögreglunnar á Vesturlandi undanfarna viku, bæði hálkuslys og umferðaróhöpp. Síðan á miðvikudag hefur lögreglu daglega borist tilkynning um gangandi vegfarendur sem hrasað hafa í hálku og meiðst, stundum fleiri en einn á dag. Þá eru umferðaróhöpp og vandræði vegna veðurs sömuleiðis áberandi og nokkrir festu sig við norðurljósamyndatökur. Umferðaróhapp varð…Lesa meira