Fréttir

true

„Garðyrkjan kom eiginlega óvænt upp í hendurnar á mér“

Íslenski veturinn skartaði sínu fegursta þegar blaðamaður Skessuhorns renndi í hlað á Laufskálum í Borgarfirði fyrir helgina. Þar býr Sindri Arnfjörð Sigurgarðarsson ásamt eiginkonu sinni, Ásu Erlingsdóttur. Sindri er fæddur í Reykjavík en hann ólst upp í Kópavogi. Það var ástin sem lokkaði hann í Borgarfjörðinn árið 1986. Árið 1980 byrjaði Sindri fyrir tilviljum að…Lesa meira

true

Stjórnendur Domino´s baka pitsurnar á Akranesi í dag

Í dag, miðvikudaginn 23. janúar, ætla stjórnendur Domino’s á Íslandi að standa vaktina á Akranesi á meðan starfsfólk þar gerir sér glaðan dag. „Domino´s á Akranesi fékk á seinasta ári viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Að sigurlaunum fær allt starfsfólkið frí frá hefðbundnum störfum til að fagna saman. Skagamenn þurfa þó engar áhyggjur að hafa,…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst í febrúar

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst föstudagskvöldið 8. febrúar næstkomandi með keppni í slaktaumatölti í Faxaborg í Borgarnesi. Dagskráin hefst klukkan 19:30 með setningu Vesturlandsdeildarinnar. Fyrsti hestur mætir síðan í braut hálftíma síðar. Vesturlandsdeildin er bæði einstaklings- og liðakeppni og að þessu sinni keppt í sjö liðum. Keppt verður í sex greinum á fimm kvöldum í Faxaborg. …Lesa meira

true

Ljúka fyrr skólabyggingu

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti fyrir jól að flýta framkvæmdum við stækkun og endurbætur á Grunnskóla Borgarness. Upphaflega var áætlað að framkvæmdum myndi ljúka 2022. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri segir að mikil hagkvæmni hafi falist í að vinna verkið í einni samfellu, bæði fyrir verktaka en ekki síður fyrir starfsemi grunnskólans. Meðan framkvæmdir standa yfir er hluta…Lesa meira

true

Of hratt ekið við slæmar aðstæður

Ferðamaður festi bíl sinn milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar í vikunni sem leið. Ferðamenn sátu fastir á Holtavörðuheiði vegna slæms skyggnis á kvöldi sunnudags og á sama tíma festu ferðamenn sig á Uxahryggjavegi. Í gærmorgun, þriðjudaginn 22. janúar, var haft samband við lögreglu vegna bíls sem skilinn hafði verið eftir á veginum skammt sunnan við Bifröst.…Lesa meira

true

Gat kom á sjókví í Arnarfirði

Matvælastofnun barst í dag tilkynning frá Arnarlaxi um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Hringsdal í Arnarfirði. „Gatið uppgötvaðist við skoðun kafara í morgun og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 15 x 50cm og á 20m dýpi og voru um 157.000 laxar í kvínni með meðalþyngd 1,3 kg,“ segir í…Lesa meira

true

Meirihluti hreppsnefndar fylgjandi vegarlagningu um Teigsskóg

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti í dag með þremur atkvæðum gegn tveimur að halda áfram með aðalskipulagsbreytingar sveitarfélagsins sem gerir ráð fyrir leið Þ-H um Teigsskóg. Kosið var um þrjár tillögur á fundinum. Ingimar Ingimarsson oddviti lagði fram tillögu um að ákvörðun um leiðarval yrði frestað og boðað til íbúakosningar um málið. Tillaga Ingimars var felld með…Lesa meira

true

Skiluðu inn mótmælum vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga

Í gær rann út frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða breytingu skipulags í landi Hamars við Borgarnes, þar sem gert er ráð fyrir að skotæfingasvæði rísi.  „Þetta er reyndar orðinn fastur liður eins og venjulega. Við erum nú að mótmæla sömu skipulagstillögunum í þriðja skipti á jafn mörgum árum. Það verður seint sagt um…Lesa meira

true

Starfsmaður Norðuráls brenndist í andliti

Kallað var eftir aðstoð Lögreglunnar á Vesturlandi vegna slyss sem varð í álveri Norðuráls á Grundartanga á um níuleytið í morgun. Starfsmaður fyrirtækisins brenndist í andliti eftir að hann fékk kríólít framan í sig. Að sögn lögreglu fór blessunarlega betur en á horfðist og áverkar mannsins eru ekki jafn alvarlegir og talið var í fyrstu.Lesa meira

true

Lögbýlaskrá geymir upplýsingar um 6700 býli

Lögbýlaskrá fyrir árið 2018 er komin út hjá Þjóðskrá. Hún er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingarbók og fasteignaskrá. Samkvæmt jarðalögum teljast það lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi þinglýst. Við þinglýsinguna fær viðkomandi eign sérstaka merkingu í þinglýsingarhluta fasteignaskrár og…Lesa meira