Fréttir

true

Búið á Hraunhálsi afurðahæsta kúabú Vesturlands

Bú Guðlaugar Sigurðardóttur og Jóhannesar Eybergs Ragnarssonar á Hraunhálsi í Helgafellssveit var afurðahæsta kúabú Vesturlands á síðasta ári, þar sem meðalafurðir reyndust 8.452 kg eftir hverja árskú. Búið á Hraunhálsi var jafnframt þriðja afurðahæsta bú landsins árið 2018. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum skýrsluhalds mjólkurframleiðslunnar sem birtar voru á vef Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins sl. fimmtudag.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn úr leik í bikarnum

Leikið var í átta liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn heimsóttu ÍR og þurftu að játa sig sigraða eftir æsispennandi leik, 86-79. Borgnesingar hafa því lokið þátttöku sinni í bikarnum í þetta skiptið. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þá náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með 13 stigum eftir upphafsfjórðunginn, 30-17.…Lesa meira

true

Fiskur fari á markað til að auka virði auðlindarinnar

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda áttu í síðustu viku fund með fulltrúum Fiskmarkaðs Suðurnesja, Fiskmarkaðs Íslands, Fiskmarkaðs Vestfjarða, Fiskmarkaðs Norðurlands og Reiknistofu fiskmarkaða. Málefni fiskmarkaða landsins voru rædd og mikilvægi þeirra fyrir aukna verðmætasköpun í sjávarútvegi. „Fundarmenn voru sammála um að skora á stjórnvöld að tryggja að allur sá afli sem ekki kemur til vinnslu hjá…Lesa meira

true

Frumvarp að nýrri stjórnarskrá

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá, byggða á frumvarpi stjórnlagaráðs og vinnu Alþingis í kjölfarið. „Er þetta í fyrsta skiptið sem slíkt frumvarp er lagt fram, en framlagning þess felur í sér möguleikann á að halda vinnunni við nýju stjórnarskrána áfram þar sem frá var horfið árið 2013,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Aron og Hekla vinsælustu nöfnin á síðasta ári

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman vinsælustu nafngjafir síðasta árs. Þar kemur fram að karlmannsnafnið Aron var vinsælasta nafnið fyrir sveinbörn og Hekla vinsælasta kvenmannsnafnið. Alls var 30 sveinbörnum gefið nafnið Aron en næst kom nafnið Kári sem 22 sveinbörnum var gefið. Þriðja algengasta karlmannsnafnið var Brynjar. Af stúlkunöfnum voru 17 stúlkur skírðar Hekla í höfuðið…Lesa meira

true

Landhelgisgæslan kaupir ný mælitæki

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Jón Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri ÍSMAR, undirrituðu nýverið samning um kaup Landhelgisgæslu Íslands á nýjum mælingabúnaði fyrir sjómælingaskipið Baldur. Annars vegar er um að ræða fjölgeislamæli sem ætlaður er til dýptarmæilnga fyrir sjókortagerð og hins vegar um jarðlagamæli ætlaðan til greiningar á jarðlögum hafsbotnsins. Að undangengnu útboði Ríkiskaupa var gengið…Lesa meira

true

Hús flutt að Langasandi

Á síðasta fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar var samþykkt að ganga frá kaupum á færanlegu mannvirki sem þjóna mun sem starfsmannaaðstaða og salerni við Guðlaugu á Langasandi. Kaupsamningur þess efnis er lagður fram til samþykktar í bæjarráði en um er að ræða færanlegt húsnæði sem keypt verður af Golfklúbbnum Leyni og stendur við Garðavöll. Kaupverð er sex…Lesa meira

true

Skrifað undir samstarfssamning Snæfellsbæjar og Frystiklefans

Síðdegis á föstudag var skrifað undir fjögurra ára samstarfssmaning Snæfellsbæjar og Frystiklefans í Rifi. Það voru Kári Viðarsson í Frystiklefanum, Sigrún Ólafsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar og Kristinn Jónasson bæjarstjóri sem undirrituðu samninginn. Í honum felst að bæjarfélagið styrkir starfsemi Frystiklefans um fasta upphæð á herju ári sem nýta skal til ýmissa viðburða og auðga…Lesa meira

true

Góður sigur ÍA

Skagamenn unnu góðan sigur á Stál-úlfi, 126-109, þegar liðin mættust í elleftu umferð í 2. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu betur, höfðu heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en ÍA var aldrei verið langt undan. Stál-úlfur leiddi með sex stigum eftir upphafsfjórðunginn, 27-33. Skagamenn þjörmuðu að gestunum í…Lesa meira

true

Tap gegn toppliðinu

Snæfellingar lágu gegn toppliði Þórs Ak., 97-62, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akureyri. Heimamenn byrjuðu af krafti og komust í 11-2 áður en upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. En þá tóku Snæfellingar við sér, minnkuðu muninn í þrjú stig og höfðu í fullu tré við toppliðið það sem…Lesa meira