Fréttir

true

Mannamót markaðsstofanna er í dag

Mannamót markaðsstofa landshlutanna fer fram í dag klukkan 13-17 og er að þessu sinni haldið í Kórnum í Kópavogi. Undanfarin ár hefur viðburðurinn verið haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli, en sökum mannfjölda í fyrra var ákveðið að færa hann í stærra húsnæði. Mannamót er haldið af markaðsstofum landshlutanna í samvinnu við flugfélagið Erni og…Lesa meira

true

Fyrverandi yfirlögregluþjónn dæmdur fyrir hegningarlagabrot

Fyrrverandi yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi greiddi í nóvember á síðasta ári sekt upp á 100 þúsund krónur vegna vændiskaupa. Ríkissaksóknari upplýsti lögreglustjórann á Vesturlandi í byrjun júní um að þáverandi yfirlögregluþjónn væri til rannsóknar vegna ætlaðs brots gegn almennum hegningarlögum. Maðurinn baðst lausnar frá störfum 1. júlí síðastliðinn og á það var fallist samdægurs.…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Skallagríms

Skallagrímur krækti í mikilvæg stig í Domino‘s deild kvenna þegar liðið sigraði Breiðablik, 84-74, í Borgarnesi í gærkvöldi. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 13-3 áður en upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Þá tóku Blikar við sér og minnkuðu muninn, en Skallagrímskonur höfðu áfram yfirhöndina og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 24-17. Þegar…Lesa meira

true

Sautján þúsund fermetrar undir þaki á Smiðjutorgi

Verktakafyrirtækið Uppbygging ehf. áformar að reisa Smiðjutorg, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli á Akranesi. Verkefni gæti kostað um fimm milljarða króna. Engilbert Runólfsson framkvæmdastjóri segir að Smiðjutorgið sé í skipulagsferli þessa dagana. „Samkvæmt síðustu fregnum sem ég heyrði er búið að vísa skipulaginu til umsagnar Skipulagsstofnunar. Ég vonast til þess að skipulagsferlinu verði að fullu…Lesa meira

true

Héldu námskeið í notkun hitamyndavéla

Slökkvilið Grundarfjarðar og Slökkvilið Snæfellsbæjar nýttu liðna helgi til að læra á nýjustu tæki liðanna. Þá komu leiðbeinendur frá Slökkviliðinu í Vík og Brunavörnum Austurlands og kenndu mönnum á nýju Flir-IR myndavélarnar sem liðin tóku nýverið í notkun. Mjög góð mæting var á námskeiðið sem stóð í tvo daga. IR myndavélarnar nema hitageisla og munu…Lesa meira

true

Óhöppum fjölgar með versnandi færð

Nokkur umferðarslys og -óhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið, þar af þrjú síðastliðinn mánudag. Bílvelta varð á Vesturlandsvegi skammt frá Höfn undir Hafnarfjalli síðdegis á mánudaginn. Ökumaður missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af og valt. Maðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur til…Lesa meira

true

Vestlendingum fjölgaði um tvö prósent milli ára

Vestlendingar voru 16.547 talsins 1. desember 2018, eða 4,6% af íbúum landsins og fjölgaði um 318 frá því 1. desember 2017, samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Íbúar landsins alls voru 356.671 hinn 1. desember síðastliðinn og fjölgaði um 8.451 frá því ári fyrr. Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi hafa fleiri en eitt þúsund íbúa. Fjölmennasta sveitarfélag…Lesa meira

true

Nýju snjóruðningstækin reynast vel

Snjóruðningstæki sáust í fyrsta skipti á þessu ári á götum Ólafsvíkur í gær. Það eru bræðurnir í B.Vigfússyni ehf. sem sjá um að ryðja götur bæjarins. Vigfús Þráinn Bjarnason vélamaður sagði í samtali við Skessuhorn að þetta væri í fyrsta skiptið sem þeir notuð nýju tækin að einhverju ráði, eftir að fyrirtækið tók að sér…Lesa meira

true

Fastir ferðamenn hér og þar

Lögreglan á Vesturlandi kom allnokkrum ferðamönnum sem festu bíla sína til aðstoðar í vikunni sem leið. Ferðamaður í norðurljósaleiðangri bakkaði bíl sínum ofan í skurð við Akrafjall skömmu eftir miðnætti þriðjudaginn 8. janúar. Eitt dekk bílsins lenti ofan í skurðinum og bíllinn festist. Sama dag var kallað eftir aðstoð lögreglu vegna ferðamanna sem fest höfðu…Lesa meira

true

Holtavörðuheiði lokuð um tíma

Búist er við að Holtavörðuheiði verði lokuð í dag í tvo klukkutíma, frá klukkan 13:30 til 15:30. Flutningabíll fór út af veginum og valt í morgun skammt frá Miklagili. Ekki urðu slys á fólki. Loka þarf veginum meðan bílnum verður náð upp. Mbl.is greindi frá.Lesa meira