Fréttir

true

Bókahátíðinni Júlíönu frestað um mánuð vegna kvikmyndatöku

Gréta Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík en bjó í Borgarnesi til sex ára aldurs. Þá flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún ólst upp fram á unglingsár þegar fjölskyldan flutti í Kópavoginn. Á fullorðinsárum hefur Gréta lengst af búið í Reykjavík en einnig í Stykkishólmi árin 1972 til 1987 og ól þar upp börnin sín.…Lesa meira

true

Mikill munur á leikskólagjöldum milli sveitarfélaga

Allt að 53% eða 150.205 kr. verðmunur er á almennum leikskólagjöldum á ári milli sveitarfélaga miðað við 8 tíma vistun með fæði. Verðmunurinn er enn meiri, 69% eða 131.802 kr. á ári ef sömu leikskólagjöld fyrir forgangshópa eru skoðuð. Munurinn er jafnframt meiri ef gjöld fyrir 9 tíma eru skoðuð. Á almennu gjaldi er 58%…Lesa meira

true

Vilja hitta ráðherra áður en kosið verður í hreppsnefnd

Ingimar Ingimarsson oddviti Reykhólahrepps sagði í viðtali á Rás-2 í morgun að hann telji líklegt að kosningu í sveitarstjórn um leiðarval á Vestfjarðarvegi verði frestað, en til stóð að sveitarstjórn myndi ákveða hvaða leið verður sett inn í nýtt skipulag. Fyrst þurfi sveitarstjórn að funda með Sigurði Inga Jóhannssyni ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnamála. Eins og…Lesa meira

true

Kæra meint fisktegundasvindl í útflutningi

Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á meintu tegundasvindli með íslenskan fisk til útflutnings. Íslenskt fiskvinnslufyrirtæki er grunað um að hafa selt íslenskri umboðsverslun með fisk og fiskafurðir verðlitlar fiskafurðir (keilu) sem verðmeiri vöru á borð við steinbít á árunum 2010 og 2011. Umboðsverslunin framseldi afurðirnar erlendum kaupendum. „Málið hófst þegar Matvælastofnun barst ábending um…Lesa meira

true

Halda til hafs þegar dúrar milli lægða

Gæftaleysi hefur verið að undanförnu en þó hafa sjómenn á Snæfellsnesi getað skotist út á milli þegar lægt hefur, eins og áhöfnin á dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH gerði á sunnudaginn. Ekki hefur fiskast vel í dragnót það sem af er árinu. Tryggvi Hafsteinsson lét kuldann og vindinn ekki hafa áhrif á sitt góða skap, en…Lesa meira

true

Martin Miller’s Gin hefur brátt uppbyggingu í Brákarey

Grímshús í Brákarey í Borgarnesi var reist árið 1942 og var það útgerðafélagið Grímur hf. sem stóð fyrir byggingu þess en það átti að hýsa búnað félagsins. Eftir eldsvoða á níunda áratugnum stóð húsið í mikilli niðurníðslu allt þar til árið 2013 sem hollvinafélag hússins, Gímshússfélagið, ákvað að hefja framkvæmdir við að gera húsið upp…Lesa meira

true

„Mesti uppgangur á landinu næstu tíu árin verður á Akranesi“

Fyrirtækið Uppbygging ehf. stendur þessa dagana að þremur stórum verkefnum á Akranesi. Um er að ræða byggingu fjölbýlishúss við Asparskóga 29, sem er vel á veg komin, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli og hótel við Kirkjubraut. Síðarnefndu verkefnin tvö eru í skipulagsferli. Uppbygging ehf. er í eigu hjónanna Engilberts Runólfssonar og Kristínar Minneyjar Pétursdóttur. Skessuhorn…Lesa meira

true

Hjúkrunarfræðingar kynna störf sín á afmælisári

Að kvöldi þriðjudagsins 18. nóvember árið 1919 komu saman fáeinar konur í herbergi í húsi við Aðalstræti 8 í Reykjavík. Þær voru þarna saman komnar í þeim tilgangi að stofna nýtt félag; „Félag íslenskra hjúkrunarkvenna,“ sem hafði þann tilgang að hjálpa stúlkum sem vildu læra hjúkrunarstörf að fara til Danmerkur til náms. Á þessu ári…Lesa meira

true

Garðabær, Akranes og Seltjarnarnes með sterkustu fjárhagsstöðuna

Í skýrslu sem Samtök atvinnulífsins gaf nýverið út er farið nokkuð ítarlega yfir fjármál sveitarfélaga hér á landi þar sem íbúar eru fjögur þúsund eða fleiri. Þegar opinber fjármál á Íslandi eru rædd fer oft minna fyrir umræðu um þátt sveitarfélaga en efni standa til. Sveitarfélög taka til sín og ráðstafa um fimmtungi af öllum…Lesa meira

true

Þæfingsfærð á fjallvegum

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Vesturlandi og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Ófært í Álftafirði og vegurinn um Fróðárheiði er lokaður, segir í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni.Lesa meira