Fréttir

true

Vesturland valið vetraráfangastaður Evrópu

Annað árið í röð hefur Vesturland hlotið viðurkenningu hjá tímaritinu Luxury Travel Guide. Árið 2017 var það valið sem myndrænasti áfangastaður Evrópu en árið 2018 sem vetraráfangastaður Evrópu, eða; ,,Winter Destination of Europe 2018“. Tímaritið sérhæfir sig í skrifum um áfangastaði, hótel, heilsulindir, tækni og fleira en blaðið leggur áherslu á betur borgandi ferðamenn. „Vesturland…Lesa meira

true

Arctic Adventures og Into the Glacier sameinast

Arctic Adventures hf. og Icelandic Tourism Fund (ITF) hafa gert samkomulag um sameiningu Into the Glacier ehf. og Arctic Adventures. ITF hefur einnig selt Arctic Adventures hluti í fjórum afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu sem eru með starfsemi víðsvegar um landið; Óbyggðasetrinu í Fljótsdal, Raufarhólshelli, Borea Adventures á Ísafirði og leiksýningunni „Icelandic Sagas – The greatest hits“…Lesa meira

true

Ný íslensk jurtamjólk framleidd á Akranesi

Í desember 2017 hlaut Karen Jónsdóttir, Kaja hjá Kaja Organic á Akranesi öndvegisstyrk að upphæð fjórar milljónir króna úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Styrkinn hlaut hún til þróunar á jurtamjólk. Nú, rúmlega ári síðar, er þróunarvinnu lokið og Kaja hefur sett í sölu þrjá drykki sem framleiddir eru úr haframjólk sem hún flytur inn frá Ítalíu. Það…Lesa meira

true

Vegagerðin telur Teigsskóg öruggustu, bestu og ódýrustu leiðina

Vegagerðin boðaði síðdegis í gær íbúa Reykhólahrepps og nágrannasveitarfélaga til upplýsingafundar um stöðu vegamála í Gufudalssveit. Húsfyllir var á fundinum sem haldinn var í Reykhólaskóla, en áætlað er að um 150 gestir hafi mætt. Auk heimafólks mættu fjölmargir íbúar frá suðurfjörðum Vestfjarða enda hafa þeir mikla hagsmuni af öruggari vegtengingu sem fyrst. Fram kom á…Lesa meira

true

Fjölmennar körfuboltabúðir í Borgarnesi

Körufuboltabúðir Skallagríms og Arion banka voru haldnar með miklum glæsibrag í Borgarnesi helgina 5. og 6. janúar síðastliðna. Þangað mættu 112 ungir og efnilegir körfuknattleikskrakkar af Vesturlandi og æfðu undir leiðsögn þjálfara og leikmanna meistaraflokka Skallagríms. Gestaþjálfarar búðanna, þau Ólöf Helga Pálsdóttir og Finnur Freyr Stefánsson vöktu mikla lukku meðal krakkanna, að því er fram…Lesa meira

true

Tímaritið ROK er skrifað bæði á pólsku og íslensku

Skömmu fyrir jól kom út nýtt eintak af tímaritinu ROK. Það er gefið út bæði á íslensku og pólsku. Í tímaritunum eru greinar sem tengjast bæði Íslandi og Póllandi. Þar er að finna viðtöl og greinar um tónlist, ferðamennsku, listsköpun og allt það sem gæti talist mannlegt. Fyrstu fjögur tölublöðin komu öll út samtímis en…Lesa meira

true

Almenningi boðið að tjá sig um hvort breyta eigi klukkunni

Greinargerðin „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðs Íslands. Samþykkt var að setja málið í opið samráð við almenning á ríkisstjórnarfundi 21. desember sl. og verður tími samráðs tveir mánuðir. „Greinargerðin var unnin í forsætisráðuneytinu og í henni er skoðað hvort færa eigi staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna…Lesa meira

true

Barn féll milli hæða

Sex ára gamalt barn féll á milli hæða í húsi innan umdæmis Lögreglunnar á Vesturlandi um hátíðirnar. Fallið var um tveir metrar og hlaut barnið áverka á baki og höfði. Barnið slapp engu að síður vel frá óhappinu, að sögn lögreglu. Sjúkraflutningamenn sem kallaðir voru á vettvang skoðuðu barnið gaumgæfilega og læknir mat áverka barnsins…Lesa meira

true

Snæfell aftur á sigurbraut

Snæfell vann góðan útisigur á baráttuglöðu liði Breiðabliks, 72-82, í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Breiðablik skoraði fyrstu stigin en Snæfell tók yfirhöndina og komst í 3-13 og höfðu síðan tólf stiga forskot eftir upphafsfjórðunginn, 16-28. Breiðabliksliðið kom ákveðið inn í annan leikhluta og minnkaði muninn jafnt og þétt á meðan Snæfell átti…Lesa meira

true

Þurfa að kaupa land undir reiðhöll

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar skömmu fyrir jól var samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við skiptastjóra þrotabús Smellinn hf. um kaup á þriggja hektara landi í eigu lögaðilans en Smellinn var úrskurðað gjaldþrota 3. september 2010. Um er að ræða land undir fyrirhugaða reiðhöll Hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda. Þegar samningsdrög úr þeim viðræðum…Lesa meira