Fréttir

true

Skallagrímskonur steinlágu gegn Val

Það var fremur þunnskipað lið Skallagríms steinlá gegn Val á útivelli, 83-43, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Liðið lék án Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur og munaði um minna. Valskonur tóku afgerandi forystu snemma í fyrsta leikhluta, komust í 21-6 eftir sjö mínútna leik og leiddu 26-11 eftir upphafsfjórðunginn. Leikurinn hélt áfram með…Lesa meira

true

Vaxandi samkeppni fasteignasala

Af 30 sölum fasteigna á Vesturlandi í síðasta mánuði voru sextán samningar um eignir á Akranesi. Þar af voru ellefu samningar um eignir í fjölbýli, þrír samningar um eignir í sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 480 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30 milljónir króna. Nú stefnir í að fimmta…Lesa meira

true

Vilja endurheimta Hítará sem næst fyrri farvegi

Stjórn Veiðifélags Hítarár hefur óskað eftir því við Borgarbyggð að leyft verði að grafa í gegnum skriðuna sem féll í Hítardal 7. júlí í fyrrasumar þannig að endurheimta megi dýrmæt uppeldissvæði árinnar sem næst fyrri farvegi árinnar. Borgarbyggð er að hluta eigandi lands sem skriðan féll yfir, en sveitarfélagið á eyðibýlið Hítardalsvelli. Byggðarráð samþykkti á…Lesa meira

true

Útibú Domusnova opnað á Akranesi eftir helgi

Stefnt er að því að opna útibú fasteignasölunnar Domusnova á Akranesi næstkomandi mánudag, 14. janúar. Víðir Arnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Domusnova, segir í samtali við Skessuhorn að fyrirtækið telji mikil tækifæri felast í fasteignamarkaðnum á Vesturlandi og þá sérstaklega á Akranesi. „Við teljum að aukinn fjöldi nýbygginga á svæðinu muni koma af stað miklu lífi í…Lesa meira

true

Akranesviti talin ein besta ferðauppgötvun ársins

Ferðablaðamenn breska tímaritsins Guardian fara fögrum orðum um Akranesvita í nýrri grein, „The best travel discoveries of 2018: chosen by Guardian writers“. Þar telja þeir Akranesvita meðal tólf bestu uppgötvana í ferðamennsku árið 2018. Blaðamaðurinn Robert Hull segir frá heimsókn sinni á Akranes. Á meðan félagi hans einbeitti sér að myndatökum með Akrafjall og Esjuna…Lesa meira

true

Ætla að sýna karakter

Nýtt ár hefst af krafti hjá Íþróttabandalagi Akraness. Í kvöld, miðvikudag klukkan 20, mun Jóhannes Guðlaugsson mæta á Jaðarsbökkum til að segja frá því hvernig hægt er að nýta verkefnið „Sýnum Karakter“ betur í þjálfun. „Jóhannes Guðlaugsson er Skagamaður og yfirþjálfari hjá ÍR en hann hefur nýtt mörg verkfæri og verkefni „Sýnum karakter“ í þjálfun.…Lesa meira

true

Tvær stofur Auðarskóla skemmdar eftir vatnsleka

Vatnsleki uppgötvaðist í Auðarskóla í Búðardal skömmu fyrir jól og viðgerðir standa nú yfir á tveimur kennslustofum. Það var Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri sem gekk fram á lekann skömmu fyrir jól. „Ég gekk fram á lekann rétt áður en ég fór í jólafrí, sá að dúkur á gólfinu var bólginn og þegar ég kom við…Lesa meira

true

Hestur sparkaði í konu

Kona hlaut skurð á höfði síðastliðinn sunnudag þegar hestur sparkaði í hana. Tildrög slyssins voru þau að konan var að skoða hóf á afturfæti hrossins. Þegar hún kraup niður á hnén sparkaði hesturinn í hana svo hún skarst á enni og hlaut áverka á hönd. Konan fékk aðhlynningu á heilsugæslunni í Borgarnesi.Lesa meira

true

Síðasti gæslumaðurinn hefur lokið vakt í skýli Hvalfjarðarganga

Um áramótin hætti Vegagerðin að halda úti mannaðri vakt í fyrrum gjaldskýli við norðurenda Hvalfjarðarganganna. Þar hafa ljósin því verið slökkt, utan aðventuljóss sem væntanlega mun loga þar skært næstu misserin. Eftir að ríkið eignaðist göngin og yfirtók rekstur þeirra var ákveðið að manna skýlið fyrst um sinn, án þess að viðkomandi starfsmenn innheimtu gjald.…Lesa meira

true

Færri nemendur tóku þátt í edrúpottinum

Um árabil hefur tíðkast að bjóða þeim nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands, sem sækja dansleiki á vegum skólans, að blása í áfengismæli og taka um leið þátt í happadrætti, svokölluðum edrúpotti. Þeir sem standast edrúprófið geta síðan unnið til verðlauna í lok skólaárs. Þátttaka í blæstri hefur undanfarin ár verið um 50%. „Á síðasta dansleik var þátttaka…Lesa meira