
„Háafellsgeitur bjóða sig fram við að endurvinna jólatré allra sem vilja gefa þeim sín. Sækjum í nágrennið,“ skrifar Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi á Háafelli í Hvítársíðu á Facebook síðu sína – og bætir við: „Þeir sem vilja afhenda sjálfir fá að sjálfsögðu geitaknús að launum.“Lesa meira








