Fréttir

true

Enn fækkar fjölmiðlum

Í bæjarblaðinu Stykkishólmspóstinum, sem kom út 20. desember síðastliðinn, var tilkynnt að 25 ára útgáfu blaðsins væri nú hætt og sömuleiðis útgáfu vefritsins Snæfellingar.is. „Dagar fréttaveitunnar eru taldir nema ef einhverjir áhugasamir vilji taka verkefnið að sér,“ segir í yfirlýsingu frá útgefandanum Anok margmiðlun. „Útgáfa Stykkishólmpóstsins var fastur kjarni í starfsemi fyrirtækisins en önnur verkefni…Lesa meira

true

Eigendur Guðmundar Runólfssonar hf. eru Vestlendingar ársins 2018

Val á Vestlendingi ársins stóð yfir í desember en þetta er í tuttugasta skipti sem Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands, stendur fyrir því. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi auk þess ritstjórn leitaði álits fjölmargra valinkunnra íbúa í landshlutanum, því betur sjá augu en auga í þessu sem mörgu öðru. Þessum gögnum var síðan safnað saman…Lesa meira

true

Gamla árið kvatt á hlaupum

Hið árlega gamlárshlaup Knattspyrnufélags ÍA var haldið eftir hádegi á gamlársdag. Hlaupið var prýðilega vel sótt og góður hópur sem hljóp út árið. Ræst var af stað frá Akratorgi kl. 13:00. Sú skemmtilega hefð hefur skapast í tengslum við hlaupið að hlauparar klæðast margir skrautlegum og skemmtilegum búningum. Undirstrikar það að léttleikinn er í fyrirrúmi…Lesa meira

true

Hlupu í Snæfellsbæ á Gamlársdag

Hlaupahópur Snæfellsbæjar, með þau Rán Kristinsdóttur og Fannar Baldursson í fararbroddi, stóð fyrir Gamlársdagshlaupi. Veður og færð voru ekki alveg upp á það besta; hálka og kalt. Hlauparar létu það þó ekki á sig fá og mættu um 20 galvaskir við Íþróttahús Snæfellsbæjar um hádegið á Gamlársdag. Boðið var upp á tvær vegalengdir og hlaupið…Lesa meira

true

Bílasalan Bílás boðin til sölu

Fasteignamiðlun Grafarvogs hefur fengið til sölumeðferðar Bílasölu Akraness ehf., eða hina rótgrónu bílasölu Bílás sem bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir hafa átt og rekið í 35 ár. Í auglýsingu kemur fram að fyrirtækið er í fullum rekstri og lagt er upp með að selja rekstur og um 600 fermetra fasteign að Smiðjuvöllum 17 sem eina…Lesa meira

true

Halla Margrét Jónsdóttir dúxaði í FVA

Halla Margrét Jónsdóttir útskrifaðist föstudaginn 21. desember síðastliðinn af náttúrufræðabraut frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Halla Margrét var dúx skólans með rúmlega 9,6 í lokaeinkunn. Hún segist þakka velgengninni að hún hafi haft gaman af náminu en sé þó líka dugleg að gera fleira en einungis að læra. „Námið liggur þokkalega fyrir mér en ég…Lesa meira

true

Anna Lilja Ásbjarnardóttir dúxaði við FSN

Laugardaginn 15. desember síðastliðinn útskrifaðist Anna Lilja Ásbjarnardóttir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Anna Lilja var dúx skólans að þessu sinni með 8,3 í meðaleinkunn. Aðspurð hvort nám hafi alltaf legið vel fyrir henni segir hún svo ekki vera. „Þegar ég var yngri var ég ekkert sérstaklega góður námsmaður. Ég hætti í menntaskóla þegar ég…Lesa meira

true

Fyrsta barn ársins fæddist á Akranesi

Fyrsta barn ársins er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi laust eftir kl. 6:00 á nýársmorgun. Stúlkan vó 3.654 grömm og er 51 sentímetri að lengd. Foreldrar stúlkunnar eru Sigríður Hjördís Indriðadóttir frá Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit og Hannes Björn Guðlaugsson, búsett í Reykjavík. Stúlkan er ekki aðeins fyrsta barn ársins heldur einnig fyrsta barn…Lesa meira

true

Jafnvel met í fjölda flugelda á gamlárskvöld

Miklu var skotið upp af flugeldum á gamlárskvöld í Ólafsvík á Snæfellsnesi, en blíðskaparveður var í bænum og þriggja stiga frost svo allar aðstæður til þess að skjóta upp flugeldum voru eins og best verður á kosið. Það var greinileg að nú var keypt mikið af flugeldum og fróðir menn telja að flugeldafjöldinn hafi jafnvel…Lesa meira

true

Blautt og hvasst í kortunum

Veðurstofan spáir sunnan 10-15 m/sek, en vaxandi vindi síðdegis í dag og 15-23 m/sek í nótt, hvassast verður um landið norðvestanvert. Hægari vindur austantil á landinu, lengst af suðvestan 8-15 m/s. Rigning eða súld með köflum og hiti 4 til 10 stig, en þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir annað kvöld.Lesa meira