Fréttir

true

Atvinnuleysi að aukast

Áætlað er að 204.700 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í nóvember 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.800 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Atvinnulausir í nóvember…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímur tók á móti Íslandsmeisturum KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik að kvöldi þrettándans. Var það fyrsti leikur Skallagríms í deildinni eftir jólafrí og máttu Borgnesingar sætta sig við tap, 78-94. Skallagrímsmenn áttu erfitt uppdráttar í fyrsta leikhluta. KR-ingar mættu hins vegar ákveðnir til leiks og tóku öll völd á vellinum strax í upphafi.…Lesa meira

true

Valdís Þóra er Íþróttamaður Akraness í sjöunda sinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, er Íþróttamaður Akraness 2018, þriðja árið í röð. Um leið sló Valdís Þóra met, því enginn annar íþróttamaður hefur oftar hlotnast þessi titill sjö sinnum. Sundkonurnar Ragnheiður Runólfsdóttir og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir hlutu báðar verðlaunin sex sinnum. Kjörinu var lýst í gær að kvöldi þrettándans, að lokinni brennu…Lesa meira

true

Bjarni Guðmann er íþróttamaður UMSB árið 2018

Kjöri á Íþróttamanni Ungmennasambands Borgarfjarðar 2018 var lýst á sunnudaginn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Íþróttamaður ársins 2018 er körfuknattleiksmaðurinn Bjarni Guðmann Jónsson. Bjarni er einn af lykilmönnum í meistaraflokki Skallagríms og átti hann stóran þátt í að vinna liðinu sæti í úrvalsdeild síðastliðið vor. Hann var einnig valinn til að leika með U20 ára landsliði…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu gegn Val

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Val, 78-70, þegar liðin mættust í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna eftir jólafrí á laugardaginn var. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík. Valskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks en Snæfell var þó ekki langt undan. Heimaliði náði hins vegar góðri rispu undir lok fyrsta leikhluta og hafði 16 stiga…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu í kaflaskiptum leik

Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hófst að nýju eftir jólafrí sl. laugardag. Skallagrímskonur heimsóttu Hauka og máttu sætta sig við tap eftir nokkuð kaflaskiptan leik, 72-69. Borgnesingar höfðu undirtökin í byrjun leiks en Haukar náðu yfirhöndinni um miðjan fyrsta leikhluta og góður sprettur undir lok fjórðungsins skilaði þeim ellefu stiga forskoti, 28-17. Haukakonur juku forskotið…Lesa meira

true

Þróttur átti lægsta tilboð í vegagerð í Skorradal

Skömmu fyrir jól voru opnuð hjá Vegagerðinni tilboð í endurbyggingu og malbikun á 3,7 kílómetra vegarkafla í norðanverðum Skorradal, vegi 508 frá Vatnsendahlíð að Dagverðarnesi. Vegur þessi hefur verið afar slæmur í mörg ár, en um hann er töluverð umferð sumarhúsafólks auk timburflutninga vegna grisjunar skóga. Áætlað er að verkið hefjist á þessu ári en…Lesa meira

true

Ragnheiður Inga skipuð rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir hefur verið skipuð rektor Landbúnaðarháskóla Íslands til fimm ára frá 1. janúar síðastliðnum. Ragnheiður er verkfræðingur að mennt og var áður framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Svinna-verkfræði sem sinnt hefur ráðgjöf á sviðum umhverfismála, nýsköpunar og rannsókna. Ragnheiður er með doktorspróf frá danska Tækniháskólanum og lauk MBA-prófi frá Háskóla Íslands. Hún hefur gegnt stöðu…Lesa meira

true

Sveit Vestra sigraði á Vesturlandsmótinu í bridds

Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds var spilað á Akranesi um liðna helgi. Alls tóku tólf sveitir þátt. Segja má að heimamenn á Vesturlandi hafa sýnt fádæma gestrisni því af fimm efstu sveitum á mótinu var einungis ein skipuð þeim. Úrslit urðu þau að gestasveitin Vestri bar sigur úr býtum með 161,34 stig. Sveitina skipuðu þeir…Lesa meira

true

Erindi um Guðrúnu frá Lundi flutt í Safnahúsi

Marín Guðrún Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur mun flytja erindi um Guðrúnu frá Lundi í Safnahúsi Borgarfjarðar fimmtudaginn 10. janúar næstkomandi. Marín Guðrún er jafnframt langömmubarn skáldkonunnar. Hún hefur víða haldið fyrirlestra og námskeið þar sem hún segir sögu Guðrúnar sem er um margt ævintýraleg. Á árinu 2019 eru 73 ár frá því að fyrsta bindi skáldsögunnar Dalalífs…Lesa meira