Fréttir

true

Geitur sólgnar í jólatrén

„Háafellsgeitur bjóða sig fram við að endurvinna jólatré allra sem vilja gefa þeim sín. Sækjum í nágrennið,“ skrifar Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi á Háafelli í Hvítársíðu á Facebook síðu sína – og bætir við: „Þeir sem vilja afhenda sjálfir fá að sjálfsögðu geitaknús að launum.“Lesa meira

true

Krabbameinsfélagið býður tveimur árgöngum ókeypis fyrstu skimun

Á undanförnum árum hefur heldur dregið úr þátttöku kvenna hér á landi í skimun fyrir krabbameinum og er hún minni en á hinum Norðurlöndunum. „Miklu skiptir að snúa þeirri þróun við. Krabbameinsfélagið hefur ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni til að kanna hvort kostnaður við skimunina hafi áhrif á þátttöku kvenna. Félagið telur mikilvægt að skimun…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá skipulögð í Safnahúsi á nýju ári

„Starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar verður lífleg á nýbyrjuðu ári og verða um 20 viðburðir á dagskrá, þ.á.m. myndlistarsýningar og fyrirlestrar,“ segir Guðrún Jónsdóttir forstöðukona safnsins í samtali við Skessuhorn. Fyrirlesarar verða Marín Guðrún Hrafnsdóttir, Þóra Elfa Björnsson, Ástráður Eysteinsson, Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir og Sigurjón Einarsson og fjalla þau um ýmis efni sem tengjast fagsviði safnanna.…Lesa meira

true

Hyggst fara fram á stjórnsýsluúttekt á Íslandspósti

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata hefur ákveðið að þegar þing kemur saman 21. janúar nk. mun hann leggja fram skýrslubeiðni til Ríkisendurskoðanda um að gerð verði stjórnsýsluúttekt á Íslandspósti ohf. Í lögum um Rísendurskoðanda segir m.a. að stjórnsýsluskoðun feli í sér mat á frammistöðu þeirra aðila sem ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með. Markmið stjórnsýsluendurskoðunar er að…Lesa meira

true

Minnisvarði um fyrsta vitann á Akranesi

Minnisvarði um fyrsta vita á Akranesi var formlega vígður fimmtudaginn 20. desember síðastliðinn á Akurshól. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri kveiktu á vitanum. Að frumkvæði Faxaflóahafna var efnt til samtarfs við Akraneskaupstað um gerð minnisvarðans en tilefnið er hundrað ára afmæli gamla vitans á Breið. Að lokinni athöfn var gestum boðið til…Lesa meira

true

Slys í steypuskála Norðuráls

Slys varð í álveri Norðuráls á Grundartanga um kvöldmatarleytið í gær þegar starfsmaður brenndist á olnboga, úlnlið og fingrum. Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli, greinir frá þessu í tilkynningu sem birtist í starfsmannahópi fyrirtækisins á Facebook. Tildrög slyssins voru þau að starfsmaður í steypuskála var að undirbúa sig við að skafa rennu frá…Lesa meira

true

Ráðgjafarnefnd um blóðgjöf skilar áliti innan skamms

Ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu mun í kjölfar fundar 17. janúar næstkomandi, skila Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra afstöðu sinni til þess hvort slaka beri á þeim reglum sem gilda hér á landi um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna. Málið hefur verið til umfjöllunar hjá fagráðinu að ósk ráðherra síðan 15. október sl., en auk þess var vakið…Lesa meira

true

Leiguverð á Vesturlandi er 70% af hæsta verði í Reykjavík

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 194,9 stig í nóvember 2018 (janúar 2011=100) og hækkaði um 1,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 2% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 9,2%. Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2018. Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð…Lesa meira

true

Auglýst eftir styrkumsóknum

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna. Reglur og viðmið varðandi styrkveitingar er að finna á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is, sem og umsóknareyðublaðið. Hægt er að sækja um styrki í Uppbyggingarsjóð Vesturlands þar til á miðnætti sunnudaginn 20.…Lesa meira

true

Snæfellsbær styrkir gerð golfvallar í Rifi

Beiðni Golfklúbbsins Jökuls um styrk til að gera nýjan golfvöll í Rifi var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar. Sagt var frá hugmyndum golfklúbbsins um nýjan golfvöll í Skessuhorni í byrjun desember. Bæjarstjórn samþykkti með fjórum atkvæðum gegn þremur að veita Golfklúbbnum Jökli styrk að verðmæti tíu milljónir króna á ári næstu fjögur árin, til…Lesa meira