Fréttir

true

„Ég var orðinn skrýtinn svo ég hélt því bara áfram“

Pétur Hraunfjörð í Grundarfirði er mikill hagyrðingur Pétur Hraunfjörð, hagmæltur sagnamaður, fyrrum sjómaður, bílstjóri og þúsundþjalasmiður, flutti í Grundarfjörð fyrir um það bil sjö árum síðan ásamt konu sinni Þóru. „Hún er dönsk,“ segir hann kíminn. Blaðamaður hváir og Pétur hlær. „Já hún er dönsk, hún fæddist í mars 1944. Þá vorum við öll dönsk,“…Lesa meira

true

Aðventumót FBBN í pútti

Eldri borgarar í Borgarnesi héldu sitt árlega Aðventumót í pútti fimmtudaginn 13. desember sl. í Eyjunni í Brákarey. Til leiks mættu 25 manns, 13 karlar og 12 konur. Var það 89. æfing hópsins á árinu og hefur mæting verið mjög góð allt árið. Fjórir félagar hlutu viðurkenningu fyrir 100% mætingu á tímabilinu október til desember;…Lesa meira

true

Fengu að kynnast öllum hliðum Rússlands í mótorhjólaferð

Síðastliðið sumar fóru frændurnir Unnar Bjartmarsson og Jón Helgason saman í mótorhjólaferð um Rússland. Þeir óku í fylgd með túlki og leiðsögumanni sem leiddi þá þúsund kílómetra um Úralfjöll á ekta rússneskum Úral-hjólum. Þar hittu þeir innfædda Rússa og fengu að kynnast þeirra lífi og aðstæðum um leið og þeir skoðuðu landið, heimsóttu söfn og…Lesa meira

true

Kynningarfundur vegna skotæfingasvæðis

Sveitarstjórn Borgarbyggðar auglýsti í síðustu viku tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi vegna skotæfingasvæðis í landi Hamars. Sagt var frá tillögunum lítilli frétt í síðasta blaði, en dagsetning kynningarfundar sem haldinn verður vegna málsins hafði misritast. Hið rétta er að kynningarfundurinn verður í dag, miðvikudaginn 19. desember, milli kl. 17:00 og 18:00 í Ráðhúsi…Lesa meira

true

Krummi sem spjallar, búálfur sem litar mjólkina og fleiri skemmtilegar verur

Rætt við Rebeccu og Hjalta á Hólum um jólin, dýragarðinn, Grænland, Afríku og ýmislegt fleira Á Hólum í Hvammsveit í Dölum búa hjónin Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld og Hjalti Freyr Kristjánsson með börnin sín þrjú, Matthías Hálfdán 11 ára, Kristjönu Maj 9 ára og Alexander Stein 6 ára. Rebecca var rétt nýkomin inn úr útihúsunum…Lesa meira

true

Afgangur frá rekstri og fasteignaskattur lækkar

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2019, sem samþykkti var á síðasta fundi bæjarstjórnar, gerir ráð fyrir um 424 milljóna króna afgangi af rekstri samstæðu A og B hluta bæjarsjóðs en afgangur A hluta 422 milljónir króna. Áætlað er að rekstrartekjur A og B hluta verði rúmir 7,6 milljarðar á næsta ári en rekstrargjöld rétt tæpir 7,5…Lesa meira

true

Handteknir fyrir meðferð og sölu fíkniefna

Þrír voru handteknir á Akranesi fyrir vörslu og meðferð fíkniefna og einn fyrir sölu og dreifingu síðastliðinn laugardag. Lagt var hald á kannabisefni og líklegt amfetamín sem fannst í fórum mannanna. Um meira en einungis vörsluskammta var að ræða. Játning liggur fyrir að sögn lögreglu og málið telst upplýst. Tveir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi…Lesa meira

true

Þrjú hálkuslys í umdæminu á liðnum dögum

Fimm minniháttar umferðarhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturland í liðinni viku og þrjú hálkuslys. Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi rétt vestan við Borgarnes aðfararnótt mánudags. Bíllinn fór utan vegar og hafnaði á hvolfi úti í skurði. Hálka var á veginum þegar slysið varð. Tveir voru í bílnum en sluppu þeir báðir með minniháttar meiðsli. Nokkurn…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns er komið í dreifingu

Jólablað Skessuhorns kom út í dag. Blaðið er að vanda stærsta tölublað ársins og jafnframt það síðasta. Næsta blað kemur út fimmtudaginn 3. janúar. Í efnistökum Jólablaðs er víða komið við. Rætt er við áhugavert fólk víðsvegar um landshlutann, farið yfir fréttir líðandi árs, kveðjur úr héraði eru á sínum stað, lagðar fyrir getraunir í…Lesa meira

true

Tafir á umferð um Hvalfjarðargöng í kvöld og nótt

Í kvöld, aðfararnótt miðvikudagsins 19. desember frá klukkan 22 til 07, verður fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum vegna þrifa. Umferð er stöðvuð við gangnamunna uns fylgdarbíll kemur. Áætlað er að brottför frá hvorum enda sé á ca. 20 mínútna fresti. „Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitsemi,“…Lesa meira