Fréttir

true

Verulega vaxandi ásókn í óverðtryggð lán

Ásókn í bæði óverðtryggð lán og fasta vexti hefur aukist verulega á undanförnum misserum. Í samantekt Viðskiptablaðsins kemur fram að taka nýrra óverðtryggðra lána umfram uppgreiðslur hjá bönkunum hefur vaxið um 280% á fyrstu tíu mánuðum ársins miðað við sama tímabil fyrir ári. Þá hafa ný íbúðalán með óverðtryggðum föstum vöxtum numið 31,8 milljörðum króna…Lesa meira

true

Stöðugar horfur í efnahag ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Fitch staðfesti á föstudaginn óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horfum. „Samkvæmt matsfyrirtækinu endurspeglar þessi einkunn annars vegar háar þjóðartekjur, sterkar stofnanir, góð lífskjör og gott viðskiptaumhverfi og hins vegar að hagkerfið reiðir sig í miklum mæli á hrávöruútflutning og er næmt fyrir ytri áföllum auk fyrri…Lesa meira

true

Skylt að taka sýni

Matvælastofnun vill minna sauðfjáreigendur á að láta taka sýni úr fullorðnu fé til riðuskimunar. „Ef afföll verða á kindum þá er mikilvægt að hafa samband við héraðsdýralækni sem mun sjá til þess að sýnin séu tekin eða hann leiðbeinir við að senda hausa beint á Keldur. Sýnatökurnar og sendingarkostnaður í þessu samhengi er bændum að…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Stjörnunni

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar eftir hörkuleik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Garðabæ í gær og lokatölur urðu 73-62, heimakonum í vil. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu 4-8 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá tók Stjarnan forystuna og leiddi 16-14 eftir upphafsfjórðunginn. Mikið jafnræði var með…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells í toppslagnum

Snæfell sigraði KR örugglega, 64-46, í toppslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Snæfell byrjaði leikinn mun betur og hélt KR í aðeins einu stigi fyrstu sex mínútur leiksins. Eftir það náðu gestirnir góðum spretti og minnkuðu muninn í 14-12 en Snæfellskonur leiddu 18-14 að fyrsta leikhluta loknum. Annar leikhluti…Lesa meira

true

Guðlaug við Langasand tekin í notkun

Í gær var Guðlaug við Langasand formlega tekin í notkun. Félagar úr Sjóbaðsfélagi Akraness voru fyrstir til að vígja laugina að aflokinni stuttri sjóferð. Meðan sjósundsfólkið gekk í sjóinn flutti Ragnar Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar ávarp og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fór yfir sögu mannvirkisins, kostnað og fjármögnun. Loks var klippt á borða…Lesa meira

true

Byggingarleyfi fyrir legsteinasafn fellt úr gildi

Síðastliðinn fimmtudag kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð í kærumálum sem snerta deiliskipulag fyrir Húsafell II í Borgarfirði og veitingu byggingarleyfis fyrir listaverkahús og pakkhús á deiliskipulögðu svæði. Eigendur fasteignar á samliggjandi lóð, Gamla bæ á Húsafelli I, kærðu ákvörðun byggingafulltrúa Borgarbyggðar frá 12. janúar 2016 að veita leyfi fyrir byggingu húss undir legsteinasafn…Lesa meira

true

Blöð Skessuhorns til jóla

Nú í jólamánuðinum eiga tvö blöð eftir að koma út af Skessuhorni. Næsta blað er miðvikudaginn 12. desember og verður með hefðbundnu sniði. Jólablað Skessuhorns kemur svo út miðvikudaginn 19. desember. Að vanda verður það stærsta blað ársins. Auglýsendum og þeim sem þurfa að koma að efni í Jólablaðið er bent á að vera tímanlega…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á að grunur er um salmonellu í ferskum kjúklingi frá Matfugli. Dreifing hefur verið stöðvuð og varan innkölluð. Innköllunin á einungis við um eftirfarandi rekjaleikanúmer: Vörumerki: Kjúklingurinn er m.a. seldur undir merkjum Bónusar, Krónunnar og Ali Framleiðandi/heimilisfang: Matfugl ehf. Völuteigi 2, Mosfellsbæ Rekjanleikanúmer: 215-18-44-1-06 Dreifing: Verslanir Bónusar, Krónunnar, Fjarðarkaupa og Iceland…Lesa meira