Fréttir

true

Hvassviðri fram yfir hádegi í dag

Talsvert er hvassara suðvestanlands en spáð hafði verið samhliða seinni lægðabylgjunni sem nú gengur yfir. Hviður allt að 45 m/s eru á veginum við Hafnarfjall og verður áfram svipað hvasst fram yfir hádegi, en 35 m/s eftir það. Á norðanverðu Snæfellsnesi nær vindhraði hámarki um hádegi í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun eru…Lesa meira

true

Garnaveiki greindist í Austfjarðahólfi

Garnaveiki hefur greinst í sauðfé á búinu Þrándarstöðum á Fljótsdalshéraði. Búið er innan Austfjarðahólfs en þar var garnaveiki á árum áður en ekki hefur verið staðfest garnaveiki í hólfinu í rúm 30 ár. Síðasta staðfesta tilvikið var á Ásgeirsstöðum í Fljótsdalshéraði árið 1986. Sjúkdómurinn uppgötvaðist þegar sjö vetra kind drapst skyndilega. Ekki er vitað hvernig…Lesa meira

true

Borgfirðingi færður farandbikar

Fyrsti aðalfundur Hestamannafélagsins Borgfirðings var haldinn þriðjudaginn 27. nóvember síðastliðinn í félagsheimilinu Vindási. Félagið varð sem kunnugt er til í janúar síðastliðnum eftir sameiningu félaganna Faxa og Skugga. Haukur Bjarnason, fyrir hönd Skáneyjarbúsins, færði Borgfirðingi farandbikar að gjöf. Verður bikarinn veittur þeim keppanda félagsins sem nær bestum samanlögðum árangri í keppnum hvers árs. Fyrsti handhafi…Lesa meira

true

Ocean Adventures kaupir nýjan farþegabát

Ferðaþjónustufyrirtækið Ocean Adventures í Stykkishólmi festi á dögunum kaup á nýjum farþegabát sem hefur fengið nafnið Elliðaey. Báturinn er níu metra langur og tekur 19 farþega. Hann var áður gerður út frá Hofsósi undir nafninu Súla. Það eru Hulda Hildibrandsdóttir og Hreiðar Már Jóhannesson sem eiga og reka Ocean Adventures. Fyrirtækið stofnuðu þau í fyrravor…Lesa meira

true

Steinþórsskjöldurinn dúkkar upp

Þegar Arionbanki lokaði útibúi sínu í Grundarfirði nú á dögunum þá var ýmislegt sem kom í ljós þegar verið var að ganga frá húsnæðinu til annarrar notkunar. Til dæmis fannst Steinþórsskjöldurinn í einni hirslunni og hafði verið þar í þónokkur ár. Steinþórsskjöldurinn var gefinn Ungmennafélagi Grundarfjarðar árið 1943 þegar félagið fagnaði tíu ára afmæli. Skjöldurinn…Lesa meira

true

Mikilvægt að vanda sig við flokkun á heimilisúrgangi

Mikil vitundavakning um umhverfisvernd hefur orðið í samfélaginu okkar síðustu ár og eru flestir orðnir meðvitaðir um að fara vel með jörðina okkar. Einn mikilvægur þáttur í því er að flokka heimilisúrganginn okkar svo hægt sé að endurvinna hann sem mest. Í daglegri neyslu fellur til mikið af úrgangi sem í flestum tilfellum mengar jörðina…Lesa meira

true

Fordæma notkun ólöglegra frammistöðubætandi efna

„Það er ljóst að notkun stera og annarra ólöglegra frammistöðubætandi efna hefur aukist mikið síðustu ár. Það er því á okkar ábyrgð að viðurkenna vandann og bregðast við með ákveðnum aðgerðum,“ segir í yfirlýsingu frá tíu líkamsræktarfyrirtækjum og íþróttafélögum. „Þeir notendur sem sjálfir grípa til slíkra örþrifaráða blekkja ekki aðeins sjálfa sig heldur einnig aðra…Lesa meira

true

Óveður í kortunum

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs síðdegis í dag á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Norðurlandi eystra og á miðhálendinu. Veðurspáin gerir ráð fyrir að í fyrstu verði austan 8-15 m/s og víða dálítil slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands. Þá gengur í suðaustan 15-25 m/s síðdegis og í kvöld, fyrst suðvestantil. Það verður…Lesa meira

true

Íslandsmót eldri spilara

Um síðustu helgi fór Íslandsmót (h)eldri spilara í bridds fram í Reykjavík. Íslandsmeistarar 2018 eru hjónin Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson. Í öðru sæti voru Aðalsteinn Jörgensen og Sigurður Sverrisson, en þriðja sætið tóku Hvanneyringarnir Lárus Pétursson og Sveinbjörn Eyjólfsson. Forysta hjónanna var nokkuð afgerandi en athygli vakti að einungis munaði 0,1 stigi á öðru…Lesa meira

true

Kynna skipulagsbreytingar vegna væntanlegs skotæfingasvæðis

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2010-2022 sem gerir ráð fyrir að breyta landnotkun svæðis í landi Hamars úr landbúnaði í opið svæði til sérstakra nota, þar sem gert er ráð fyrir að skotæfingasvæði komi. Ný reið- og gönguleið verður lögð 400 m sunnan við væntanlegt skotæfingasvæði. Nýr aðkomuvegur verður lagður að…Lesa meira