
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir frá Bakkakoti í Stafholtstungum tók í dag sæti á Alþingi í fjarveru Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra. Lilja Rannveig skipaði fjórða sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í NV kjördæmi við síðustu kosningar, en 1. varamaður er Stefán Vagn Stefánsson á Sauðárkróki. Lilja Rannveig er 22 ára háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF).Lesa meira








