Fréttir

true

Ævisaga Stefáns sterka komin út í bók

Út er komin ævisagan Stefán sterki, myndbrot úr mannsævi. Höfundur er Þórir Stephensen fyrrverandi dómkirkjuprestur. Fyrsta eintak bókarinnar var á mánudag afhent frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands en það var hinn ungi Stefánungur Stefán Björn Stephensen sem það gerði. Hann er sonarsonur höfundar og fjórði maður frá Stefáni sterka. Myndbrot úr mannsævi fjallar um…Lesa meira

true

Grunuð um að stinga tengdason sinn

Landsréttur staðfesti á á miðvikudag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Vesturlands yfir konu sem grunuð er um tilraun til manndráps á Akranesi. Konunni er gefið að sök að hafa stungið tengdason sinn með hnífi í brjóstkassann aðfararnótt 10. nóvember sl. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn alvarlega sár, þar sem mikið blæddi úr honum. Lögregla spurði hvað…Lesa meira

true

Hafa fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni

„Starfsfólk OR hefur fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar setja á borð fyrir almenning,“ segir í yfirlýsingu frá starfsmannafélagi OR. „Það særir okkur hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar tjá sig um vinnustaðinn sem þeir virðast ekki þekkja en leggja sig fram um að gera tortryggilegan, rangtúlka niðurstöður vinnustaðagreiningar og skýrslu Innri endurskoðunar…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í framkvæmdir á Fróðárheiði

Hjá Vegagerðinni voru fyrr í vikunni opnuð tilboð í endurbyggingu 4,8 kílómetra kafla á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Með lagningu nýs vegar frá Valavatni niður að vegamótum Útnesvegar Ólafsvíkurmegin lýkur síðasta hluta endurgerðar vegarins yfir heiðina. Þar með sér fyrir endan á langþráðu verkefni sem í raun hefur tekið áratugi. Fjögur fyrirtæki buðu í verkið og…Lesa meira

true

LÍS vinnur að réttindagæslumálum fyrir námsfólk

Elsa María Guðlaugs Drífudóttir er fædd og uppalin á Akranesi, gekk í Grundaskóla og eftir það lá leiðin í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk stúdentsprófi af málabraut. Þegar Elsa María stundaði síðar nám í Listaháskólanum var hún kosin í jafnréttisnefnd skólans sem fulltrúi nemenda og vorið 2016 fór hún í skiptinám til Vínar í…Lesa meira

true

Ferðalag frá Kínahverfinu í Borgarnesi og út á Ystu Nöf

Leikverkið „Farðu á þinn stað“ verður frumsýnt á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi 26. janúar næstkomandi. Höfundur verksins og eini leikarinn er Theodór Kr. Þórðarson, jafnan kallaður Teddi lögga. Hann tekur sjálfan sig til kostanna í sjálfsævisögulegum einleik þar sem ferðast er frá Kínahverfinu í Borgarnesi og alla leið út á Ystu Nöf. Skessuhorn sló á…Lesa meira

true

Rafmagnaður laugardagur í Bílás

Gríðarleg fjölgun hefur orðið í þeim hluta bílaflotans sem knúinn er vistvænni orku, íslensku rafmagni. „Það er lengi búin að vera umræða um vistvæna bíla og svo virðist sem rafbílarnir séu að taka forystukeflið í þeim slag, bæði hér á landi og erlendis. Mest hefur aukningin verið milli tímabila um 100% í sölu rafbíla, en…Lesa meira

true

Veiðikortið 2019 að koma út

Veiðikortið 2019 er væntanlegt í fyrstu viku desembermánaðar. Nokkrar breytingar hafa orðið á Veiðikortinu milli ára og vatnasvæði bætast við á móti öðrum sem hverfa út. Hreðavatn í Norðurárdal í Borgarfirði kemur nýtt inn. Góð veiði hefur verið í vatninu og þykir það henta sérlega vel fyrir fjölskyldur. Hólmavatn og Laxárvatn í Dölum koma aftur…Lesa meira

true

Misstu dampinn í seinni hálfleik

Skallagrímur mætti Þór Þ. í áttundu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Þorlákshöfn í gærkvöldi. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn stjórnina og sigruðu að lokum með 87 stigum gegn 74. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Þór komst tvisvar fimm stigum yfir en…Lesa meira

true

Ríkissjóður lækkar óverðtryggðar skuldir

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu í dag kemur fram að ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands að fjárhæð 24 milljarða króna. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf. Væntalega er því gert ráð fyrir því í ráðuneytinu að verðbólga fari vaxandi og að hagsmunum ríkissjóðs sé best borgið með að greiða niður óverðtryggðar skuldir.…Lesa meira