Fréttir

true

Varað er við hvassviðri í dag

Með skilum lægðar sem gengur yfir landið hvessir suðvestanlands af suðaustri eftir hádegi í dag. Spáð er stormi og reikna má með hviðum allt að 35 m/s frá því um kl. 14 og fram undir kl. 19 á utanverðu Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Þá verður einnig varhugaverð færð við Seljalandsfoss, undir V-Eyjafjöllum og á Reykjanesbraut…Lesa meira

true

Dramatík í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti Keflavík í sjöundu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 9-2. Keflvíkingar svöruðu fyrir sig og komust inn í leikinn aftur. Eftir það var mikið jafnræði með liðunum, sem spiluðu bæði þétta vörn. Keflvíkingar leiddu með einu stigi eftir upphafsfjórðunginn, 23-22. Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Vínlandssetur og Gestastofa Snæfellsness fá verkefnastyrki

Í samgönguráðuneytinu hefur verið undirritaður samningur við landshlutasamtök sveitarfélaga um níu verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Markmiðið með framlögum til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi…Lesa meira

true

Tíu ára afmæli Ritara á Akranesi

Síðastliðinn föstudag var því fagnað að tíu ár eru liðin frá því fyrirtækið Ritari ehf. var stofnað á Akranesi. Viðskiptavinum og velunnurum var boðið í heimsókn til að kynna sér starfsemina og samfagna með hópi starfsfólks. Ritari sérhæfir sig í heildarlausnum í skrifstofurekstri, hvort sem það er á sviði símsvörunar, bókana, bókhalds, úthringiþjónustu eða annarra…Lesa meira

true

Þjóðhátíðardegi Póllands var fagnað í Grundarfirði

Í tilefni af þjóðhátíðardegi Póllands og 100 ára sjálfstæði þjóðarinnar var haldin pólsk menningarhátíð í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardaginn 11. nóvember. Það voru Grundarfjarðarbær og pólskir íbúar í Grundarfirði sem stóðu fyrir hátíðinni en þar var sýning um Pólland, pólsk tónlist fékk að hljóma, andlitsmálning fyrir börn og pólskir þjóðarréttir voru á boðstólnum. Það voru margir…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir við Sjómannagarðinn í Ólafsvík

Áfram er unnið að framkvæmdum í Sjómannagarðinum í Ólafsvík en byrjað var á þeim síðla sumars. Fyrir liðna helgi gerði hlýindi og var þá ekki til setunnar boðið og steyptur hálfur hringurinn af stýrinu sem á að koma í kringum styttuna af sjómanninum. Unnið er eftir teikningum sem Valgerður Hlín Kristmannsdóttir gaf sjómönnum í Ólafsvík…Lesa meira

true

Starfsfólk Fjöliðjunnar tekur veglyklana í sundur

Fjöliðjan á Akranesi hefur tekið að sér að taka í sundur veglykla sem áskrifendur í Hvalfjarðargöng hafa skilað inn frá því gjaldtöku lauk í haust. Inni í hverjum lykli er rafhlaða og tölvukubbur sem þarf að fjarlægja svo hægt sé að endurvinna þá íhluti sem eru í veglyklunum. Þegar Skessuhorn kíkti við í Fjöliðjunni síðastliðinn…Lesa meira

true

Býður sjötugan Ford hópferðabíl til sölu

Sæmundur Sigmundsson fv. sérleyfishafi í Borgarnesi hefur auglýst til sölu eitt af djásnum bílaflota síns. Það er Ford hópferðabíll árgerð 1947, en bíllinn tekur 28 manns í sæti. „Þetta er bíll sem á sér ekki langa eigendasögu. Það var Jón Húnfjörð, bróðir Guðmundar Jónassonar, sem keypti bílinn nýjan og lét byggja yfir hann hjá Agli…Lesa meira

true

Minningartónleikar í Reykholti annað kvöld

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni var nýverið stofnaður Minningarsjóður til minningar um Heimi Klemenzson tónlistarmann frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Annað kvöld eru svo á döfinni fyrstu tónleikarnir sem sjóðurinn stendur fyrir. Það eru vinir, ættingjar og samverkamenn Heimis sem vilja með stofnun sjóðsins halda minningu hans á lofti og sérstaklega elju hans…Lesa meira

true

Draga á verulega úr plastpokanotkun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum fyrir 28. nóvemer nk. um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er innleidd Evróputilskipun er lýtur að því að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti. Í frumvarpinu er sett fram tillaga að tölulegum markmiðum sem skuli náð varðandi árlega notkun burðarpoka úr…Lesa meira