Fréttir

true

Býður sjötugan Ford hópferðabíl til sölu

Sæmundur Sigmundsson fv. sérleyfishafi í Borgarnesi hefur auglýst til sölu eitt af djásnum bílaflota síns. Það er Ford hópferðabíll árgerð 1947, en bíllinn tekur 28 manns í sæti. „Þetta er bíll sem á sér ekki langa eigendasögu. Það var Jón Húnfjörð, bróðir Guðmundar Jónassonar, sem keypti bílinn nýjan og lét byggja yfir hann hjá Agli…Lesa meira

true

Minningartónleikar í Reykholti annað kvöld

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni var nýverið stofnaður Minningarsjóður til minningar um Heimi Klemenzson tónlistarmann frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Annað kvöld eru svo á döfinni fyrstu tónleikarnir sem sjóðurinn stendur fyrir. Það eru vinir, ættingjar og samverkamenn Heimis sem vilja með stofnun sjóðsins halda minningu hans á lofti og sérstaklega elju hans…Lesa meira

true

Draga á verulega úr plastpokanotkun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum fyrir 28. nóvemer nk. um frumvarp vegna breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Með frumvarpinu er innleidd Evróputilskipun er lýtur að því að draga úr notkun á þunnum burðarpokum úr plasti. Í frumvarpinu er sett fram tillaga að tölulegum markmiðum sem skuli náð varðandi árlega notkun burðarpoka úr…Lesa meira

true

Áhöfn Helgu Maríu AK var sagt upp

HB Grandi hf. hefur sagt upp nítján skipverjum á ísfisktogaranum Helgu Maríu, sem á heimahöfn á Akranesi. Ástæða uppsagnanna er óvissa innan útgerðarinnar um hvað gert verður við skipið, en eins og kunnugt er hefur HB Grandi verið að endurnýja ísfisktogara sína undanfarin ár og er veiðigeta nýju skipanna, Engeyjar, Akureyjar og Viðeyjar, það mikil…Lesa meira

true

Lásu fyrir eldri borgara í tilefni dags íslenskrar tungu

Í gær hélt Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum hátíðlegan „Dag íslenskrar tungu“ í Brún í Bæjarsveit. Að venju komu nemendur úr grunnskólunum í heimsókn ásamt kennurum sínum og glöddu félagsmenn með upplestri. Meðal annars var sagt frá ýmsum kynjaskepnum og lesið frumsamið ljóð. Góður rómur var gerður að upplestrinum og lesurunum klappað lof í lófa. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Reynt hefur verið að nauðga fjórðu hverri konu

„Fjórðungur kvenna hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun á lífsleiðinni og sama hlutfall hefur verið beitt líkamlegu ofbeldi.“ Þetta sýna fyrstu niðurstöður í rannsóknarverkefninu Áfallasaga kvenna. Þær leiða enn fremur í ljós að ríflega 40% þátttakenda í rannsókninni eiga sögu um framhjáhald eða höfnun af hendi maka og svipað hlutfall hefur orðið fyrir andlegu ofbeldi…Lesa meira

true

Tekjur af stangveiði eru 69% af hagnaði í landbúnaði á Vesturlandi

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur unnið skýrslu um verðmæti lax- og silungsveiða á Íslandi. Þar kemur fram að árleg verðmæti veiðanna er 170 milljarðar og á þessu ári má rekja tæplega níu milljarða landsframleiðslu beint til lax- og silungsveiða. Skýrslan er unnin að frumkvæði Landssambands veiðifélaga, sem greiddi hluta af kostnaði við hana. Stangveiði er ein…Lesa meira

true

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter framundan á Akranesi

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter fer fram á Akranesi dagana 23. – 25. nóvember. Á hátíðinni verða sýndar 45 stuttmyndir og þar af 13 íslenskar stuttmyndir. „Við fengum sendar inn 270 myndir frá öllum heimshornum svo það var ekki auðvelt að velja úr,“ segir Ársæll Rafn Erlingsson í samtali við Skessuhorn, en Ársæll og Lovísa Lára Halldórsdóttir standa…Lesa meira

true

Björgin komin úr slipp í Skipavík

Síðastliðinn mánudag var Björg, bátur björgunarsveitarinnar Lífsbjargar, sótt í slipp í Skipavík í Stykkishólmi. Þar hafði hann verið síðustu vikuna í andlitslyftingu og lagfæringum. Var meðal annars skrokkurinn, dekkið og rekkverkið málað, skipt var um svokallað pakk, sem er þéttiþráður í stefnisröri, en einnig voru botnkranar yfirfarnir sem og öxull. Eitt og hálft ár er…Lesa meira

true

Árgangamót ÍA var haldið á laugardaginn

Hið árlega Árgangamót ÍA var haldið í áttunda sinn síðastliðinn laugardag. Eins og kunnugt er etja þar kappi lið árganga sem hafa æft knattspyrnu með ÍA í gegnum tíðina. Þátttaka í mótinu var góð að vanda. Að þessu sinni voru 23 lið skráð til leiks í öllum flokkum, eða samtals 234 leikmenn. Liðin skiptust í…Lesa meira